Bæjarráð, fundur 895
19. maí 2025, kl. 11:00 til 12:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 397 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 19. maí staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs ný áætlun 2025
Mál 2209007 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd drögum að svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs ný áætlun 2025. Framlögð drög að svæðisáætlun um úrgangsmál á Austurlandi 2025 til 2035 lögð fram til afgreiðslu í sveitarstjórnum á svæðinu en sex vikna auglýsingaferli Svæðisáætlunarinnar er nú lokið. Tekið hefur verið tillit til þeirra athugasemda sem bárust. Áætlunin fer nú í formlegt samþykktarferli innan sveitarstjórna Austurlands.
Bæjarráð samþykkir svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
2. Úrgangsmál - gerð útboðsgagna
Mál 2505110 Allur ferill málsins
Framlagt tilboð Eflu verkfræðistofu um gerð útboðsgagna vegna útboðs á söfnun og förgun úrgangs.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Eflu í gerð útboðsgagna og felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að fylgja málinu eftir.
-
3. Sólvellir 10b - sala
Mál 2503207 Allur ferill málsins
Framlögð tilboð í fasteignina að Sólvöllum 10 b á Breiðdalsvík sem bárust innan lokafrests sem var 15. maí sl.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við hæstbjóðanda sem barst innan tímafrests þann 15. maí og felur bæjarstjóra að undirrita skjöl og gögn vegna sölunnar.
-
4. Íþróttahús á Eskifirði
Mál 2501087 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga að skipan starfshóps um íþróttahús á Eskifirði.
Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkir að skipaður verði starfshópur um málefni íþróttahús á Eskifirði. Í hópnum sitji formaður fjölskyldunefndar, formaður skipulags- og framkvæmdanefndar, fulltrúi Fjarðalista, fulltrúi Ungmennafélagsins Austra og fulltrúi íbúasamtaka Eskifjarðar.
Formaður starfshópsins skal vera formaður fjölskyldunefndar. Sviðstjóri skipulags- og framkvæmdasviðs verður starfsmaður hópsins og mun sinna verkstjórn og eftirfylgni verkefna hópsins. Starfshópurinn hefur heimild til að kalla til sín gesti og sérfræðinga eftir þörfum.
Engin þóknun er greidd fyrir setu í starfshópnum.
Bæjarritara er falið að vinna erindisbréf fyrir starfshópinn í samræmi við umræður fundarins, auk þess að kalla eftir tilnefningum frá Fjarðalistanum, Ungmennafélaginu Austra og íbúasamtökum Eskifjarðar.
-
5. Beiðni um styrk til strandblaksvallar í Reyðarfirði
Mál 2504001 Allur ferill málsins
Framlögð að nýju styrkbeiðni vegna strandblakvallar. Staðsetning er samþykkt af hálfu forvígismanna á lóð íþróttamiðstöðvarinnar.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti staðsetningu strandblakvallarins og vísar staðsetningu til skipulags- og framkvæmdanefndar. Jafnframt samþykkir bæjarráð að styrkja gerð vallarins með kaupum á skeljasandi sem nemur 1,2 m.kr. Tekið af liðnum 21690, óráðstafað.
-
6. Viðtalstímar 2025
Mál 2504190 Allur ferill málsins
Tekin umræðu um málefni sem komið hafa upp í viðtalstímum bæjarfulltrúa og bæjarstjóra en þeir hafa farið fram á Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og Breiðdal. Viðtalstímar verða á Norðfirði og Eskifirði þriðjudag 20. maí og á Mjóafirði miðvikudaginn 21. maí.
-
7. Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026
Mál 2205170 Allur ferill málsins
Framlögð tilkynning Birgis Jónssonar þar sem hann hyggst koma til starfa af afloknu leyfi.
-
8. Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um veiðigjald 62 2025
Mál 2503241 Allur ferill málsins
Atvinnuveganefnd Alþingsi hefur sent til umsagnar frumvarp til laga um veiðigjald, aflaverðmæti í reiknistofni. Umsagnarfrestur er til og með 26. maí nk.
Tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
-
9. Áform um lagabreytingar á sviði sveitarstjórnarmála kynnt í samráðsgátt
Mál 2505092 Allur ferill málsins
Innviðaráðuneytið tilkynnir áform um lagabreytingarsem hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.
Um er að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja) og frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (endurskoðun sveitarstjórnarlaga).
-
10. Frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða, 298. mál
Mál 2505096 Allur ferill málsins
Frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu), 298. mál lagt fram til kynningar.
-
11. Ársskýrsla Náttúrustofu Austurlands 2024
Mál 2505102 Allur ferill málsins
Árskýrsla Náttúrustofu Austurlands fyrir árið 2024 lögð fram til kynningar.
-
12. Orkufundur 26.maí 2025
Mál 2504162 Allur ferill málsins
Framlagt fundarboð Samtaka orkusveitarfélgaa sem boða til orkufundar 26. maí í Hljómahöll Reykjanesbæjar.
-
13. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 33
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 14. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 13.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20262504199
- 13.2 Breyting á deiliskipulagi Nes 1 á Reyðarfirði2505035
- 13.3 Byggingarleyfi breytingar inni Skólavegur 572505022
- 13.4 Byggingarleyfi Kirkjuból 2 Bogaskýli2505066
- 13.5 Byggingarleyfi Búðareyri 25 - breytt notkun2410182
- 13.6 Deiliskipulag miðbæjar Reyðarfjarðar Búðargata 32411122
- 13.7 Umsókn um stækkun á lóð að Þórhólsgötu 1A. <br />2505003
- 13.8 Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs ný áætlun 20252209007
- 13.9 Könnun um stöðu loftslagsmála hjá sveitarfélögum2504218
- 13.10 Skipulagsdagurinn 20252504237
-
14. Hafnarstjórn - 326
Fundargerð hafnarstjórar frá 13. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 14.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20262504199
- 14.2 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
- 14.3 Fyrirhugaðar framkvæmdir Loðnuvinnslunnar2502033
- 14.4 Yfirlýsing vegna kaupréttar2209031
- 14.5 Beiðni um styrk vegna hátíðahalda á sjómannadaginn 20252505023
- 14.6 Umsókn um styrk til Stöð í Stöð 20252503086
- 14.7 Hafnafundur 20252504219
- 14.8 Ársreikningur Hafnasambands Íslands 20242505029
- 14.9 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20252502023
-
15. Fjölskyldunefnd - 32
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 12. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 15.1 Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 20252409153
- 15.2 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20262504199
- 15.3 Skýrsla stjórnenda - félagsþjónusta og barnavernd2311096
- 15.5 Undibúningur starfsáætlunar Nesskóla 2025-20262505053