Bæjarráð, fundur 894
12. maí 2025, kl. 08:30 til 09:40, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 397 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson, Kristinn Þór Jónasson.
Fundargerð bæjarráðs frá 12. maí staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2026
Mál 2504199 Allur ferill málsins
Upphafsfundur fjárhagsáætlunargerðar 2026, farið yfir fjárhagsáætlunarferlið með formönnum nefnda, sviðsstjórum og starfsmönnum sem koma að fjárhagsáætlunarferlinu.
Bæjarráð felur sviðsstjórum ásamt formönnum nefnda að hefja vinnu við fjárhagsáætlunargerðina 2026 í nefndum og með hlutaðeigandi starfsmönnum sviða.
-
2. Eskifjarðarhöfn - stækkun
Mál 2003091 Allur ferill málsins
Lagðar fram til afgreiðslu niðurstöður útboðs í framkvæmdina Leirubakki gatnagerð og veitulagnir.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda og vísar erindi til afgreiðslu hafnarstjórnar.
-
3. Yfirlýsing vegna kaupréttar
Mál 2209031 Allur ferill málsins
Framlögð drög kaupsamnings milli Fjarðabyggðar og Machinery ehf. um kaup Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar á fasteigninni að Hafnargötu 6 á Reyðarfirði, fasteignanúmer F2177464.
Bæjarráð samþykkir að fyrir sitt leyti kaup Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar á fasteigninni og vísar kaupunum til hafnarstjórnar. Jafnframt er hafnarstjóra falið að ganga frá kaupunum og undirritun skjala þeim tengdum.
-
4. Samningur um afnot- og umgengni á safninu Frakkar á Íslandsmiðum endurskoðun
Mál 2405020 Allur ferill málsins
Vísað frá stjórn menningarstofu til afgreiðslu bæjarráðs uppfærðum samningi milli Fjarðabyggðar og Íslandshótela um samstarf í tengslum við safnið Frakkar á Íslandsmiðum.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
5. Heimsókn Skonnortunar Etoile
Mál 2505047 Allur ferill málsins
Fimmtudaginn 19. júní næstkomandi mun skútann Etoile leggjast að bryggju á Fáskrúðsfirði.
Fulltrúar Fjarðabyggðar mæta við móttöku á skipinu.
-
6. Lokun Lyfju á Eskifirði
Mál 2505028 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Lyfju um lokun apóteksins á Eskifirði.
Bæjarráð harmar ákvörðun Lyfju um að loka útibúi á Eskifirði. Bæjarstjóra er falið að koma mótmælum bæjarráðs á framfæri við forsvarsmenn Lyfju og ræða mögulegar úrbætur og ráðstafanir til að tryggja lyfjaþjónustu íbúa áfram, sérstaklega gagnvart þeim sem eiga erfitt með að sækja þjónustuna annað.
-
7. Íslendingadagar 2025
Mál 2505070 Allur ferill málsins
Farið yfir heimsókn fulltrúa Fjarðabyggðar á Íslandsdaga í Gravelines haustið 2025 og tilnefning fulltrúa nefndar um franska daga.
Bæjarráð kallar eftir tilnefningu nefndarinnar.
-
8. Hóf vegna 50 ára ferjusiglinga
Mál 2505055 Allur ferill málsins
Framlagt boð Smyril line í tilefna af 50 ára afmæli ferjusiglinga ferju milli Seyðisfjarðar og Færeyja.
-
9. Fundargerðir Austurbrúar og SSA 2025
Mál 2502102 Allur ferill málsins
Framlagðar til kynningar fundargerðir stjórnar Austurbrúar og stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi frá 25. apríl og 2. maí sl.
-
10. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Mál 2502038 Allur ferill málsins
Fundargerð 978. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
-
11. Stjórn menningarstofu - 17
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 5. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 11.1 Þjónustusamningur við Sjóminjasafn 2024-20262503175
- 11.2 Viðurkenning safna Fjarðabyggðar2503092
- 11.3 Samningur um afnot- og umgengni á safninu Frakkar á Íslandsmiðum endurskoðun2405020
- 11.4 Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins2206071
- 11.5 Útilistaverk á sementstanka2504238
- 11.6 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20262504199
- 11.7 Styrktarsjóður EBÍ 20252504042
-
12. Starfshópur um nýtingu mannvirkja í rekstri Fjarðabyggðar - 7
Fundargerð starfshóps um nýtingu mannvirkja í eigu Fjarðabyggðar frá 8. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.