Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 893

5. maí 2025, kl. 08:30 til 10:10, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 396 liður 4

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 891, 892 og 893, utan liðar 13 í fundargerð 892. eru teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 5. maí staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2024

    Mál 2503240 Allur ferill málsins

    Ársreikningur tekinn til umfjöllunar milli umræðna í bæjarstjórn.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt sviðsstjóra fjármála- og greiningarsviðs að ganga frá ársreikningi til afgreiðslu bæjarstjórnar við síðari umræðu. Niðurstöður ársreiknings hafa ekki breyst milli umræðna.

  2. 2. Umsókn í framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2025

    Mál 2409107 Allur ferill málsins

    Farið yfir úthlutanir úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2025 í verkefni í Fjarðabyggð. Þrjú verkefni fengu úthlutað styrk, Bleiksárfoss, Búðarárfoss og Streytishvarf, alls fengust um 100 m.kr. til framkvæmdanna.

    Framlagt og kynnt, vísað til skipulags- og framkvæmdanefndar og skipulags- og framkvæmdasviðs til frekari vinnslu og framkvæmda.

  3. 3. Skipulag úrgangsmála í Fjarðabyggð

    Mál 2404177 Allur ferill málsins

    Áframhald á umræðum frá síðasta fundi um úrgangsmál í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að vinna áfram að undirbúningi.

  4. 4. Yfirlýsing vegna kaupréttar

    Mál 2209031 Allur ferill málsins

    Vísað frá síðasta fundi bæjarráðs til áframhaldandi umræðu niðurstöðu Héraðsdóms Austurlands vegna Hafnargötu 6 á Reyðarfirði.

    Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra ásamt lögmanni sveitarfélagsins að ganga til samninga við eiganda eignarinnar um kaup hennar. Vísað til hafnarstjórnar. Samningur tekinn fyrir að nýju þegar hann liggur fyrir.

  5. 5. Ljósleiðaravæðing þéttbýlis

    Mál 2409165 Allur ferill málsins

    Farið yfir gang framkvæmda við lagningu ljósleiðar í þéttbýlum Fjarðabyggðar en framkvæmdir hófust í byrjun apríl.

    Unnið er í tengingu ljósleiðara í öll heimili og fyrirtæki í þéttbýlum Breiðdals, Stöðvarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar og Norðfjarðar í sumar og ganga framkvæmdir eftir áætlun. Þéttbýlin á Reyðarfirði og Eskifirði verða tengd á árinu 2026.

  6. 6. Styrkumsókn til að gera upp Austurleiðarútu fyrir Skógasafn

    Mál 2504230 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Rótarýklúbb Rangæinga sem biður hér með um styrk til að gera fyrstu rútu Austurleiðar hf.

    Bæjarráð þakkar boðu um þátttöku í verkefninu en getur því miður ekki tekið þátt í því.

  7. 7. Til umsagnar 270. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

    Mál 2504223 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 270. mál - Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

    Bæjarráð vísar til fyrri umsagna sinna vegna málsins og felur bæjarstjóra að senda umsögn inn vegna málsins.

  8. 8. Umsagnarbeiðni v Kerfisáætlun 2025-2034 máls nr. 05092025

    Mál 2504120 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til bæjarráðs umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar vegna kerfisáætlunar Landsnets um þróun og endurnýjun flutningskerfis raforku.

    Bæjarráð samþykkir að fela bæjarritara að veitt umsögn vegna kerfisáætlunarinnar.

  9. 9. Skaðsemi vindorkuvera á Íslandi

    Mál 2504217 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar opið bréf til sveitastjórna um skaðsemi vindorkuvera á Íslandi frá þremur meðlimum Landverndar og Facebookhópnum Mótvindur Ísland.

  10. 10. Ársreikningur Náttúrustofu Austurlands 2024

    Mál 2504209 Allur ferill málsins

    Ársreikningur Náttúrustofu Austurlands 2024 lagður fram til kynningar.

  11. 11. Fundargerðir stjórnar Náttúrustofu Austurlands árið 2025

    Mál 2503033 Allur ferill málsins

    Fundargerðir 2. og 3. fundar stjórnar Náttúrustofu Austurlands lagðar fram til kynningar.

  12. 12. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025

    Mál 2502038 Allur ferill málsins

    Fundargerð 977. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

  13. 13. Hafnarstjórn - 325

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 28. apríl lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 13.1 Fyrirhugaðar framkvæmdir Loðnuvinnslunnar2502033
    2. 13.2 Hafnarvog Reyðarfirði2503065
    3. 13.3 Styrkumsókn - Franskir dagar 20252504078
    4. 13.4 Sjávarútvegsskólinn á Austurlandi 20252504122
    5. 13.5 Söfnun fyrir endurnýjun björgunarbáts2504185
    6. 13.6 Vöktun í Fjarðabyggðarhöfnum2501146
    7. 13.7 Slipptaka Vattar 20252504188
    8. 13.8 Vor í Fjarðabyggð2503122
    9. 13.9 Aðalfundur Cruise Iceland 20252503239
    10. 13.10 Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 20252503093
    11. 13.11 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20252502023
  14. 14. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 32

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 30. apríl lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 14.1 Óv.dsk breyting á miðbæjarskipulagi Neskaupstaðar Egilsbraut 22 og Egilsbraut 262501005
    2. 14.2 Óveruleg breyting á deiliskipulagi Dalbraut 12504155
    3. 14.3 Óverulega breytingu á deiliskipulagi deiliskipulag Eskifjarðar miðbær vegna stækkunar lóðar að Strandgötu 46c2409052
    4. 14.4 Framkvæmdaleyfi fornminjar á Stöðvarfirði2504111
    5. 14.5 Umsókn um lóð Sólbakki 1 bílskúr2504140
    6. 14.6 Fyrirspurn um leyfi frá sveitarfélaginu Fjarðabyggð um að mæla losun gróðurhúsalofttegunda auk fleiri tengdra þátta á Hólmum, jörð eigu sveitarfélagsins í Reyðarfirði2504178
    7. 14.7 Græn svæði í þéttbýli2504191
    8. 14.8 Umsagnarbeiðni v Kerfisáætlun 2025-2034 máls nr. 050920252504120
    9. 14.9 Jarðhiti jafnar leikinn - Styrkir til nýtingar og leitar á jarðhita2503223
    10. 14.10 Ósk um stækkun á lóð Hjallaleira 212504216