Hafnarstjórn, fundur 325
28. apríl 2025, kl. 16:00 til 17:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Heimir Snær Gylfason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 893 liður 13
Fundargerð hafnarstjórnar frá 28. apríl lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 396 liður 7
Fundargerð hafnarstjórnar frá 28. apríl lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Engin tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 28. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fyrirhugaðar framkvæmdir Loðnuvinnslunnar
Mál 2502033 Allur ferill málsins
Lögð fram kostnaðaráætlun vegna endurbóta á Innri- og ytri löndunarbryggju á Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn samþykkir að fara í styrkingu á Ytri löndunarbryggju og felur starfsmönnum að afla frekari gagna frá fyrirtækinu vegna Innri löndunarbryggju. Stjórnanda Fjarðabyggðarhafna falið að fara yfir fjárhagsáætlun og leggja fyrir hvar kostnaði fyrir verkið verður mætt.
-
2. Hafnarvog Reyðarfirði
Mál 2503065 Allur ferill málsins
Á 323.fundi hafnarstjórnar var óskað eftir frekari gögnum varðandi hafnarvog á Reyðarfirði. Lagt fram innra vinnuskjal til undirbúnings fjárhagsáætlunar 2026. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að afla frekari upplýsinga og leggja fyrir að nýju.
-
3. Styrkumsókn - Franskir dagar 2025
Mál 2504078 Allur ferill málsins
Umsókn um styrk vegna Franskra daga 2025. Hafnarstjórn samþykkir að veita styrk í samræmi við styrkveitingar síðustu ár.
-
4. Sjávarútvegsskólinn á Austurlandi 2025
Mál 2504122 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Sjávarútvegsskóla unga fólksins er varðar samstarf og kostnaðarþátttöku sumarið 2025. Hafnarstjórn samþykkir að veita styrk í samræmi við styrkveitingar síðustu ár.
-
5. Söfnun fyrir endurnýjun björgunarbáts
Mál 2504185 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi frá Björgunarsveitinni Brimrúnu á Eskifirði um söfnun vegna fyrirhugaðrar endurnýjunar björgunarbáts sveitarinnar. Hafnarstjórn tekur vel í erindið og felur hafnarstjóra og stjórnanda Fjarðabyggðarhafna að funda með forsvarsmönnum Brimrúnar.
-
6. Vöktun í Fjarðabyggðarhöfnum
Mál 2501146 Allur ferill málsins
Lagt fyrir að nýju og farið yfir uppfærða stöðu á vöktun erlendra farmskipa í Fjarðabyggðarhöfnum.
-
7. Slipptaka Vattar 2025
Mál 2504188 Allur ferill málsins
Farið yfir fyrirhugað skipulag í tengslum við slipptöku Vattar.
-
8. Vor í Fjarðabyggð
Mál 2503122 Allur ferill málsins
Þann 11.-23.maí næstkomandi verður árlegt umhverfisátak Fjarðabyggðar "Vor í Fjarðabyggð" haldið og munu Fjarðabyggðarhafnir taka þátt í því. Hafnarstjórn hvetur fyrirtæki til að taka virkan þátt í átakinu með tiltekt og fegrun umhverfis síns.
-
9. Aðalfundur Cruise Iceland 2025
Mál 2503239 Allur ferill málsins
Aðalfundur Cruise Iceland verður haldinn í Hofi á Akureyri þann 30.apríl næstkomandi. Stjórnandi Fjarðabyggðarhafna og starfsmaður sækja fundinn fyrir hönd Fjarðabyggðarhafna.
-
10. Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2025
Mál 2503093 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Fiskmarkaðs Austurlands sem fór fram á Eskifirði mánudaginn 24. mars síðastliðinn ásamt ársreikningi 2024 og tilkynningu um greiðslu arðs.
-
11. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2025
Mál 2502023 Allur ferill málsins
Fundargerðir 470. og 471. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands lagðar fram til kynningar