Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 396

8. maí 2025, kl. 17:30 til 18:40, í Frystihúsinu í Breiðdal. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (12)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Pálína Margeirsdóttir, varamaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, 2. varaforseti bæjarstjórnar
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varamaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Haraldur Líndal Haraldsson, embættismaður

Dagskrá

Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2024 - síðari umræða

    Mál 2503240 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:04:40

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir ársreikningi Fjarðabyggðar og stofnan fyrir árið 2024 við síðari umræðu.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Stefán Þór Eysteinsson og Ragnar Sigurðsson

    Bókun Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks:

    "Meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokksins lýsir yfir ánægju með útkomu ársreiknings Fjarðabyggðar fyrir árið 2024. Niðurstöður ársreikningsins sýna viðsnúning á rekstri sveitarfélagsins sem er afar ánægjulegt og byggir á góðri vinnu og samstöðu innan bæjarstjórnar sem og hjá starfsmönnum sveitarfélagsins. Engu að síður er ljóst að miklar áskoranir eru framundan í rekstri Fjarðabyggðar líkt og annara sveitarfélaga með hliðsjón af auknum kostnaði og óvissu með aukna skattheimtu af hálfu ríkisvaldsins gagnvart fyrirtækjum í sveitarfélaginu sem skert geta útsvarstekjur þess. Því er mikilvægt að halda áfram í niðurgreiðslu skulda og halda þétt utan um rekstur sveitarfélagsins samhliða því að veita áfram íbúum þess góða þjónusta í framúrskarandi samfélagi."

    Bókun Fjarðalistans:

    "Fjarðalistinn fagnar því að rekstur sveitarfélagsins skuli skila jákvæðri niðurstöðu árið 2024 líkt og fjárhagsáætlun 2024, sem samþykkt var í tíð fyrri meirihluta, gerði ráð fyrir. Þessi viðsnúningur kemur ekki af sjálfu sér, heldur byggir hann að miklu leyti á markvissri vinnu síðustu ára og jákvæðri breytingu á ytri áhrifaþáttum.

    Rekstrarniðurstaða fyrir árið 2024 litast af verulegu leyti af einskiptistekjum vegna slita Skólaskrifstofu Austurlands, um 196 m.kr, sem og þeirri staðreynd að kjarasamningsbundnar launahækkanir voru minni á árinu en áætlun gerði ráð fyrir og munu fyrir vikið lenda á þessu ári.

    Ytri áhrifaþættir hafa spilað stórt hlutverk í rekstri sveitarfélagsins síðustu ár og hefur verðbólga haft þar mikil áhrif í formi aukins fjármagnstekjukostnaðar. Lækkun verðbólgu á árinu 2024 varð til þess að fjármagnstekjukostnaður í A hluta lækkaði um 96 m.kr. á milli ára sem var í takt við áætlanir. Á sama tíma var aukning lífeyrisskuldbindinga mun minni en síðustu ár og var sömuleiðis í takt við áætlanir.

    Ákveðið áhyggjuefni er að undir forystu nýs meirihluta hafi lántaka A hluta frá B hluta numið 413 m.kr. eða 314 m.kr. umfram áætlanir ársins. Einnig er vert að nefna að fjárfestingar ársins í A hluta fara flestar fram úr áætlunum ársins eða um samtals 141 m.kr. Þessar staðreyndir styðja ekki við yfirlýsingar meirihlutans um ábyrga fjárhagsstjórn og markvissa forgangsröðun fjármuna.

    Þrátt fyrir töluverða fjárfestingu síðustu ár er fjárfestingaþörf enn til staðar í rekstri sveitarfélagsins, ásamt öðrum áskorunum. Því þarf áfram að sýna aga í fjármálum sveitarfélagsins en á sama tíma er mikilvægt að hagræðingar komi ekki niður á þjónustu í sveitarfélaginu né í formi aukinnar gjaldtöku á íbúa þess eins og við höfum nú þegar séð t.a.m. í formi mikilla hækkunar leikskólagjalda."

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2024 og áritar hann.

  2. 2. Bæjarráð - 891

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:32:40

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 891, 892 og 893, utan liðar 13 í fundargerð 892. eru teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 14. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Skipulag úrgangsmála í Fjarðabyggð24041770:33:08
    2. 2.2 Einangrun og kynding í Fjarðabyggðarhöllina24032300:34:04
    3. 2.3 Kynding Fjarðabyggðarhallarinnar25041030:35:28
    4. 2.4 Íþróttahús á Eskifirði25010870:36:24
    5. 2.5 Uppbygging miðbæjarkjarna á Reyðarfirði25011850:37:20
    6. 2.6 Til umsagnar 268. mál - Verndar- og orkunýtingaráætlun (bætt málsmeðferð og aukin skilvirkni).2504060
    7. 2.7 Nýjar samþykktir EBÍ-breytingar á kjöri í fulltrúaráð EBÍ2504062
    8. 2.8 Ársfundur Byggðastofnunar 20252504096
    9. 2.9 Ársfundur Náttúruhamfaratryggingar Íslands 22. maí 20252504099
    10. 2.10 Fundargerðir - samtaka svf á köldum svæðum 20252501180
    11. 2.11 Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 20252502038
  3. 3. Bæjarráð - 892

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:39:12

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 891, 892 og 893, utan liðar 13 í fundargerð 892. eru teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 28. apríl, utan liðar 13, er staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Yfirlýsing vegna kaupréttar22090310:39:12
    2. 3.2 Skipulag úrgangsmála í Fjarðabyggð2404177
    3. 3.3 Viðtalstímar 202525041900:41:04
    4. 3.4 Styrkir til verkefna til að draga úr losun gróðhúsaloftegunda og notkun jarðefnaeldsneytis2504189
    5. 3.5 Umsókn um lóð Hjallaleira 5 og 72504117
    6. 3.6 Sómastaðir 4 spennistöð2504133
    7. 3.7 Til umsagnar 272. mál - Sveitarstjórnarlög (mat á fjárhagslegum áhrifum)2504126
    8. 3.8 Til umsagnar 271. mál - Stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu og byggðamála (stefnumörkun)2504112
    9. 3.9 Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 20252502038
    10. 3.10 Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 20252501007
    11. 3.11 Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 20252502101
    12. 3.12 Fundarboð Stapa þriðjudaginn 13.maí nk.2504152
    13. 3.13 Aðalfundur Breiðdalsseturs 20252504192
    14. 3.14 Orkufundur 26.maí 20252504162
    15. 3.15 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 202625041990:45:16
    16. 3.16 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 312504011F
    17. 3.17 Fjölskyldunefnd - 312504010F
  4. 4. Bæjarráð - 893

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:42:00

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 891, 892 og 893, utan liðar 13 í fundargerð 892. eru teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 5. maí staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 202425032400:42:00
    2. 4.2 Umsókn í framkvæmdasjóð ferðamannastaða 202524091070:42:28
    3. 4.3 Skipulag úrgangsmála í Fjarðabyggð2404177
    4. 4.4 Yfirlýsing vegna kaupréttar2209031
    5. 4.5 Ljósleiðaravæðing þéttbýlis24091650:42:56
    6. 4.6 Styrkumsókn til að gera upp Austurleiðarútu fyrir Skógasafn2504230
    7. 4.7 Til umsagnar 270. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis2504223
    8. 4.8 Umsagnarbeiðni v Kerfisáætlun 2025-2034 máls nr. 050920252504120
    9. 4.9 Skaðsemi vindorkuvera á Íslandi2504217
    10. 4.10 Ársreikningur Náttúrustofu Austurlands 20242504209
    11. 4.11 Fundargerðir stjórnar Náttúrustofu Austurlands árið 20252503033
    12. 4.12 Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 20252502038
    13. 4.13 Hafnarstjórn - 3252504016F
    14. 4.14 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 322504018F
  5. 5. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 31

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:54:08

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 31 og 32 utan liðar 3 í fundargerð nr. 31 eru teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Engin tók til máls.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 16. apríl, utan liðar 3 er staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 Umsókn um lóð Hjallaleira 5 og 72504117
    2. 5.2 Byggingarleyfi Borg, Mjóafirði2503129
    3. 5.3 Deiliskipulag miðbæjar Reyðarfjarðar Búðargata 324111220:54:08
    4. 5.4 Framkvæmdaleyfi vegna stoðvirkja Norðfirði2504021
    5. 5.5 Framkvæmdaleyfi stúka við fótboltavöll Norðfirði2504083
    6. 5.6 Umsókn um að hafa klæddan gám á íbúðarhúsalóð2411016
    7. 5.7 Styrktarsjóður EBÍ 20252504042
    8. 5.8 Jarðhiti jafnar leikinn - Styrkir til nýtingar og leitar á jarðhita2503223
    9. 5.9 Sólvellir 10b - sala2503207
    10. 5.10 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20252502155
    11. 5.11 Umsókn um lóð fyrir flugskýli á Norðfirði2412155
    12. 5.12 Framkvæmdaleyfi fyrir hreinsivirki Breiðdalsvík2504128
    13. 5.13 Umsókn um óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar neskaupstaðar vegna stúku við knattspyrnuvöll2503208
    14. 5.14 Sómastaðir 4 spennistöð2504133
  6. 6. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 32

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 31 og 32 utan liðar 3 í fundargerð nr. 31 eru teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Engin tók til máls.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 30. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 6.1 Óv.dsk breyting á miðbæjarskipulagi Neskaupstaðar Egilsbraut 22 og Egilsbraut 262501005
    2. 6.2 Óveruleg breyting á deiliskipulagi Dalbraut 12504155
    3. 6.3 Óverulega breytingu á deiliskipulagi deiliskipulag Eskifjarðar miðbær vegna stækkunar lóðar að Strandgötu 46c2409052
    4. 6.4 Framkvæmdaleyfi fornminjar á Stöðvarfirði2504111
    5. 6.5 Umsókn um lóð Sólbakki 1 bílskúr2504140
    6. 6.6 Fyrirspurn um leyfi frá sveitarfélaginu Fjarðabyggð um að mæla losun gróðurhúsalofttegunda auk fleiri tengdra þátta á Hólmum, jörð eigu sveitarfélagsins í Reyðarfirði2504178
    7. 6.7 Græn svæði í þéttbýli2504191
    8. 6.8 Umsagnarbeiðni v Kerfisáætlun 2025-2034 máls nr. 050920252504120
    9. 6.9 Jarðhiti jafnar leikinn - Styrkir til nýtingar og leitar á jarðhita2503223
    10. 6.10 Ósk um stækkun á lóð Hjallaleira 212504216
  7. 7. Hafnarstjórn - 325

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:55:32

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 28. apríl lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Engin tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 28. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 7.1 Fyrirhugaðar framkvæmdir Loðnuvinnslunnar2502033
    2. 7.2 Hafnarvog Reyðarfirði2503065
    3. 7.3 Styrkumsókn - Franskir dagar 20252504078
    4. 7.4 Sjávarútvegsskólinn á Austurlandi 20252504122
    5. 7.5 Söfnun fyrir endurnýjun björgunarbáts2504185
    6. 7.6 Vöktun í Fjarðabyggðarhöfnum2501146
    7. 7.7 Slipptaka Vattar 20252504188
    8. 7.8 Vor í Fjarðabyggð2503122
    9. 7.9 Aðalfundur Cruise Iceland 20252503239
    10. 7.10 Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 20252503093
    11. 7.11 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20252502023
  8. 8. Fjölskyldunefnd - 31

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 14. apríl lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Engin tók til máls.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 14. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 8.1 Aðgerðaáætlun barnaverndar2504110
    2. 8.2 Geðverndar og virkni úrræði2504109
    3. 8.3 Móttaka og innritun barna í leikskóla2504113
    4. 8.4 Frístundakerfið Vala samningur og vinnslusamningur2502062
    5. 8.5 Frumkvæðisathugun á stoð- og stuðningsþjónustureglum sveitarfélaga - Skýrsla2502156
  9. 9. Óveruleg breyting á deiliskipulagi miðbæjar Neskaupstaðar

    Mál 2503208 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:56:00

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir óverulegri breytingu deiliskipulags.

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar niðurstöðu grenndarkynningar vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi miðbæjar Neskaupstaðar vegna stúku við knattspyrnuvöll. Eigendur að Mýrargötu 2 gera ekki athugasemd við fyrirhugaða breytingu.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum niðurstöðu grenndarkynningar og óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Neskaupstaðar.

  10. 10. Óveruleg breyting á deiliskipulagi miðbæjar Neskaupstaðar

    Mál 2501005 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:03:16

    Jón Björn Hákonarson vakti athygli á vanhæfi sínu við afgreiðslu dagskrárliðsins og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu hans.

    2. varaforseti mælti fyrir óverulegri breytingu deiliskipulags.

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar óverulegri breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Neskaupstaðar vegna Egilsbrautar 22 og 26. Engar athugasemdir bárust vegna grenndarkynningar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 8 atkvæðum niðurstöðu grenndarkynningar og óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Neskaupstaðar.

  11. 11. Óveruleg breyting á deiliskipulagi Dalbraut 1 Eskifirði

    Mál 2504155 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:58:20

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir óverulegri breytingu á deiliskipulagi.

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar óverulegri breytingu á deiliskipulagi Dalbrautar 1, Eskifirði. Um er að ræða breytingu á skipulagsmörkum í tengslum við óverulega breytingu á deiliskipulagi Leirubakka og Bleiksá. Ekki er talið að breyting hafi grenndaráhrif.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum óverulega breytingu á deiliskipulagi Leirubakka og Bleiksá.

  12. 12. Grenndarkynning vegna Borgar í Mjóafirði

    Mál 2503129 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:58:48

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir niðurstöðu grenndarkynningar.

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar niðurstöðu grenndarkynningar vegna bygginar sólskála við Borg í Mjóafirði. Engar athugasemdir voru gerðar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum niðurstöðu grenndarkynningar vegna sólskála við Borgí Mjóafirði.

  13. 13. Erindisbréf öldungaráðs - síðari umræða

    Mál 1610001 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:59:16

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu að uppfærðu erindisbréfi.

    Vísað til síðari umræðu tillögu að breytingum á erindsbréfi öldungaráðs. Ekki hafa orðið breytingar á tilögunni á milli umræðna.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum uppfært erindisbréf öldungaráðs.

  14. 14. Aðalfundur Breiðdalsseturs 2025

    Mál 2504192 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:00:12

    Að tillögu forseta bæjarstjórnar er fundarliðurinn tekin sérstaklega fyrir úr fundargerð bæjarráðs nr. 892 en um er að ræða fundarboð á aðalfund Breiðdalsseturs sem fram fer 10. maí nk. og skipun fulltrúa Fjarðabyggðar í stjórn setursins.

    Á 892. fundi bæjarráðs var Jóna Árný Þórðardóttir skipuð aðalmaður í stjórn Breiðdalsseturs, en ekki var skipaður varamaður. Forseti bæjarstjórnar lagði því til að bæjarstjórn staðfesti skipun Jónu Árnýar Þórðardóttur sem aðalmanns í og skipi Hákon Hansson sem varamann í stjórn Breiðdalsseturs.

    Engin tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 9 atkvæðum.