Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 31

16. apríl 2025, kl. 16:00 til 17:45, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 892 liður 16

    Fundargerð 31. fundar skipulags- og framkvæmdanefndar lögð fram til staðfestingar

  • Bæjarstjórn, fundur 396 liður 5

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 31 og 32 utan liðar 3 í fundargerð nr. 31 eru teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Engin tók til máls.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 16. apríl, utan liðar 3 er staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umsókn um lóð Hjallaleira 5 og 7

    Mál 2504117 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð Hjallaleira 5 og 7 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti úthlutun lóðar með fyrirvara um óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu í bæjarráð.

  2. 2. Byggingarleyfi Borg, Mjóafirði

    Mál 2503129 Allur ferill málsins

    Niðurstaða grenndarkynningar. Umsókn um byggingarheimild vegna viðbyggingar sólskála vestan megin á íbúðarhúsið Borg Mjóafirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað og vísar niðurstöðu grenndarkynningar til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.

  3. 3. Deiliskipulag miðbæjar Reyðarfjarðar Búðargata 3

    Mál 2411122 Allur ferill málsins

    Lagt fram til umræðu minnisblað stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar: Umsagnir og minnisblað við lok auglýsingar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gera drög að svörum við athugasemdum í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir fund að nýju.

  4. 4. Framkvæmdaleyfi vegna stoðvirkja Norðfirði

    Mál 2504021 Allur ferill málsins

    Framkvæmdaleyfi vegna stoðvirkja Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  5. 5. Framkvæmdaleyfi stúka við fótboltavöll Norðfirði

    Mál 2504083 Allur ferill málsins

    Framkvæmdaleyfi stúka við fótboltavöll Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir með fyrirvara um deiliskipulagsbreytingu á miðbæ Neskaupstaðar og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  6. 6. Umsókn um að hafa klæddan gám á íbúðarhúsalóð

    Mál 2411016 Allur ferill málsins

    Gámur við Gilsbakka 7 er ranglega staðsettur samkvæmd afgreiðslu skipulags- og framkvæmdanefndar en málið var tekið fyrir á 22. fundi þann 20.11.2024 og 28. fundi þann 18.3.2025. Skipulags- og framkvæmdanefnd hafnaði umsókn um að klæða gáminn og nota sem smáhýsi á þeim forsendum að gámar eru ekki leyfðir í íbúðarbyggð, klæddir eða ekki. Einnig liggur fyrir að einingin rúmast ekki innan svæðisins án þess að brjóta í bága við byggingarreglugerð. Nefndin vísaði umsækjanda á skipulagt gámasvæði í Neskaupstað.

    Stjórnandi byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar hefur verið í samskiptum við eigendur vegna þess. Nefndin felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að setja sig í samband við eigenda gámsins og tilkynna honum að dagsektir, 20.000 kr á dag verði lagðar frá 16. maí.2025 verði ekki búið að fjarlægja eininguna. Nefndin vísar í lögfræðiálit í minnisblaði smáhýsi gámur - apríl 2025.

  7. 7. Styrktarsjóður EBÍ 2025

    Mál 2504042 Allur ferill málsins

    Styrktarsjóður EBÍ 2025. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að koma með tillögur að verkefni.

  8. 8. Jarðhiti jafnar leikinn - Styrkir til nýtingar og leitar á jarðhita

    Mál 2503223 Allur ferill málsins

    Loftslags- og orkusjóður auglýsir 1 milljarð í styrki til nýtingar og leitar á jarðhita.

    https://uos.is/frettir/jardhiti-jafnar-leikinn?fbclid=IwY2xjawJPhyhleHRuA2FlbQIxMAABHSRdHxwhT3frWi5IQWuGal_LtEMXe4fH3qhRAXhgP5BUvj4uLORAPc5iiw_aem__yM1by721H3iW5VReRHs2Q

    Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að vinna áfram að tillögum að umsókn í sjóðinn og leggja fyrir næsta fund.

  9. 9. Sólvellir 10b - sala

    Mál 2503207 Allur ferill málsins

    Sólvellir 10b - sala. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða tillögu fasteigna- og framkvæmdafulltrúa um sölu á íbúð að Sólvöllum 10b.

  10. 10. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2025

    Mál 2502155 Allur ferill málsins

    Fundargerð 184. fundar heilbrigðisnefndar Austurlands lögð fram til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þökkum kynninguna.

  11. 11. Umsókn um lóð fyrir flugskýli á Norðfirði

    Mál 2412155 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð fyrir flugskýli á Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdnefnd samþykkir lóðarúthlutun fyrir sitt leyti og óskar eftir uppdrætti vegna breytingar á deiliskipulagi Naust 1.

  12. 12. Framkvæmdaleyfi fyrir hreinsivirki Breiðdalsvík

    Mál 2504128 Allur ferill málsins

    Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir hreinsistöð á Breiðdalsvík. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  13. 13. Umsókn um óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar neskaupstaðar vegna stúku við knattspyrnuvöll

    Mál 2503208 Allur ferill málsins

    Niðurstaða grenndarkynningar vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi miðbæjar neskaupstaðar vegna stúku við knattspyrnuvöll. Eigendur að Mýrargötu 2 gera ekki athugasemd við fyrirhugaða breytingu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísar erindunu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.

  14. 14. Sómastaðir 4 spennistöð

    Mál 2504133 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð að Sómastöðum 4-spennistöð, Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykktir lóðarúthlutun fyrir sitt leyti og vísar erindinu í bæjarráð.