NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 30
2. apríl 2025, kl. 16:15 til 18:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Elís Pétur Elísson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 890 liður 11
Fundargerð 30. fundar skipulags,- og framkvæmdanefndar lögð fram staðfestingar
Bæjarstjórn, fundur 395 liður 5
Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 29. og 30. teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 30 frá 31. mars er staðfest með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Byggingarleyfi Búðarmelur 27
Mál 2503264 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi að Búðarmel 27, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
2. Deiliskipulag breyting Leira 1
Mál 2404178 Allur ferill málsins
Lagt fram á ný með breyttri legu vegar óveruleg breyting á deiliskipulagi Leira 1, Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi með fyrirvara um breytingu á skipulagsmörkum deiliskipulagsins Dalbraut 1. Breytingin hefur verið auglýst samkvæmt 2. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Málinu er vísað til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.
-
3. Óveruleg deiliskipulagsbreyting Bakkagerði 1
Mál 2503258 Allur ferill málsins
Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í gildi er deiliskipulagið Bakkagerði 1, samþykkt 18.12.2003 ásamt áorðnum breytingum.
Breyting er gerð á uppdrætti. Breytingin tekur til lóða við Brekkugerði 18 og 16, Breiðamel 1-9, Mógerði 1 og Litlagerði 1a og 1b. Með breytingunni eru lóðirnar uppfærðar í samræmi við landeignaskrá, sem einnig hafa verið samþykktar í skipulags- og framkvæmdanefnd og bæjarstjórn Fjarðabyggðar. Einnig er skilgreindur göngustígur á milli Brekkugerðis og Melbrekku sem nú þegar er búið að leggja. Að öðru leyti gilda skilmálar eldra skipulags. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu til endanlegrar samþykktar í bæjarstjórn.
-
4. Óveruleg deiliskipulagsbreyting fyrir miðbæ Reyðarfjarðar Búðareyri 10 og 12
Mál 2502073 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir miðbæ Reyðarfjarðar, Búðareyri 10 og 12. Skipulags- og framkvæmd samþykkir breytinguna. Ekki er talið að hún hafi grenndaráhrif svo henni er vísað til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.
-
5. Umsagnarbeiðni vegna aðalskipulag Múlaþings 2025-2045
Mál 2503216 Allur ferill málsins
Múlaþing hefur óskað eftir umsögn vegna aðalskipulag Múlaþings 2025-2045, nr. 1030/2023: Kynning tillögu á vinnslustigi (Nýtt aðalskipulag). Skipulags- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugasemd og felur skipulagsfulltrúa að svara erindinu.
-
6. Samantekt vegna umhverfismála á Fáskrúðsfirði
Mál 2503229 Allur ferill málsins
Samantekt vegna umhverfismála á Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd vísar erindinu til stjórnanda þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar.
-
7. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Blómsturvellir 27
Mál 2503256 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Blómsturvellir 27. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu þar til framkvæmdir að Blómsturvöllum 31 eru komnar á það stig að gefinn verði út lóðarleigusamning.
-
8. Umsókn um breytingu á lóð Blómsturvellir 31
Mál 2503257 Allur ferill málsins
Umsókn um breytingu á lóð Blómsturvellir 31. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu þar til framkvæmdir að Blómsturvöllum 31 eru komnar á það stig að gefinn verði út lóðarleigusamning.
-
9. Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags - og framkvæmdanefndar 2025
Mál 2404221 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu reksturs og framkvæmdir 2025. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
-
10. Viðhald og nýframkvæmdir gatna 2025
Mál 2503269 Allur ferill málsins
Lögð fram áætlun vegna viðhalds og framkvæmda gatna Fjarðabyggðar 2025. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaða áætlun.
-
11. Útfærsla lóðar Sólvellir 23 Breiðdalsvík
Mál 2503270 Allur ferill málsins
Útfærsla lóðar Sólvellir 23 Breiðdalsvík. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða útfærslu og felur skipulagsfulltrúa að gefa út nýtt lóðarblað fyrir Sólvelli 23. Elís Pétur vék af fundi undir þessum lið.