Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 29

26. mars 2025, kl. 16:15 til 18:20, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 889 liður 9

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 26. mars.

  • Bæjarstjórn, fundur 395 liður 4

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 29. og 30. teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir

    Fundargerð 29. fundar skipulags- og framkvæmdanefndar frá 26. mars er staðfest með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Óveruleg breyting á deiliskipulagi Kirkjubólseyrar, Norðfirði

    Mál 2411098 Allur ferill málsins

    Óveruleg breyting á deiliskipulagi Kirkjubólseyrar, Norðfirði vegna Kirkjubólseyrar 2. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfideildar að ræða við lóðarhafa.

  2. 2. Óveruleg breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðis Hafnargata 1 Fáskrúðsfirði

    Mál 2503211 Allur ferill málsins

    Óveruleg breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðis Hafnargata 1 Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leiti óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu í bæjarstjórn. Skipulags- og framkvæmdanefnd telur ekki þörf á að grenndarkynna breytingarnar í ljósi þess að þær hafi engin grenndaráhrif.

  3. 3. Umsókn um óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Neskaupstaðar vegna stúku við knattspyrnuvöll.

    Mál 2503208 Allur ferill málsins

    Umsókn um óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Neskaupstaðar vegna stúku við knattspyrnuvöll. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna fyrirhugaðar framkvæmdir að Mýrargötu 2 og leggja niðurstöðu grenndarkynningar fyrir fund að nýju.

  4. 4. Byggingarleyfi Borg, Mjóafirði

    Mál 2503129 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingarheimild vegna viðbyggingar sólskála vestan megin á íbúðarhúsið. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynnna fyrirhugaðar framkvæmdir og leggja niðurstöðu grenndarkynningar fyrir fund að nýju.

  5. 5. 735 Strandgata 12 - stálgrindarhús - byggingarleyfi

    Mál 1701186 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar vegna dúkskemmu að Strandgötu 12, Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að ræða við forsvarsmenn Egersund eftir umræður á fundinum.

  6. 6. Framkvæmdaleyfi útiæfingatæki Stöðvarfirði

    Mál 2503145 Allur ferill málsins

    Lögð er fram umsókn Ungmennafélagsins Súlan, Stöðvarfirði um framkvæmdaleyfi vegna uppsetningu á útiæfingatækjum vestan við kirkjugarð og neðan göngustígs. Samhliða við umsókn er minnisblað stjórnenda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar lagt fram. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað og að jákvæð umsögn Heilbrigðisstofnunar Austurlands (Haust)

    liggi fyrir.

  7. 7. Fjarskiptamastur Fárskrúðsfirði

    Mál 2503147 Allur ferill málsins

    Minnisblað stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar lagt fram vegna umsóknar um lóð fyrir fjarskiptamastur á Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaða framkvæmd og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna framkvæmdina fyrir eigendum að Nesvegi 2 og Goðatúni 4-5-5a-6-6a-7-7a og 9.

  8. 8. Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar

    Mál 2302213 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög af samning við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir drög að samningi við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.

  9. 9. Lögbýlisumsókn Blávík

    Mál 2503070 Allur ferill málsins

    Lögbýlisumsókn Blávík. Skipulags- og framkvæmdarnefnd bendir á að samkvæmt Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2020-2040 tilheyrir landsvæði Blávíkur flokknum landbúnaðarsvæði. Skilmálar skógræktar á landbúnaðarsvæði eru eftirfarandi "Skógrækt á landbúnaðarsvæðum getur falist í skjólbeltum og annarri hagnýtingu trjágróðurs til landbóta og fegrunar, auk landgræðslu, án þess að um sérstaklega tilgreind svæði sé að ræða. Ný skógræktarsvæði, allt að 50 ha, eru heimil innan landbúnaðarsvæða án breytingar á aðalskipulagi. Skógrækt er þó ekki heimil á góðu ræktarlandi, nema um skjólbelti sé að ræða, né heldur á svæðum sem njóta verndar vegna jarðminja, vistkerfa eða menningarminja". Þar af leiðandi getur nefndin ekki gefið jákvæða umsögn um skógrækt á svæðinu og felur Stjórnanda bygginga-, skipulags- og umhverfisdeildar að rita umsögn. Skipulags- og framkvæmdanefnd vísar umsókn um lögbýli til atvinnuvegaráðuneytis sem fer með slík mál.

  10. 10. Framkvæmdaleyfi náttúrustígur Kollaleiruháls

    Mál 2503198 Allur ferill málsins

    Umsókn Skógræktarfélags Reyðarfjarðar um framkvæmdaleyfi vegna náttúrustígs við Kollaleiruháls. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  11. 11. Strandblaksvöllur Reyðarfirði

    Mál 2503193 Allur ferill málsins

    Tillaga skipulagsfulltrúa að svæði við andapollinn á Reyðarfirði fyrir strandblaksvöll. Skipulags- og framkvæmdanefnd fagnar framtakinu og samþykkir fyrirhugaða staðsetningu.

  12. 12. Átak í leit og nýtingu jarðhita

    Mál 2503126 Allur ferill málsins

    Til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að koma með tillögur fyrir næsta fund að mögulegum umsóknum.

  13. 13. Bréf frá Félagi atvinnuveiðimanna í ref og mink.

    Mál 2503206 Allur ferill málsins

    Bréf frá Félagi atvinnuveiðimanna í ref og mink. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar erindinu.

  14. 14. Úrgangsmál - textíll

    Mál 2503100 Allur ferill málsins

    Úrgangsmál - textíll. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra og stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að fjárfesta í grenndargámum og setja upp við móttökustöðvar í Fjarðabyggð.

  15. 15. Skipulag úrgangsmála í Fjarðabyggð

    Mál 2404177 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað verkefnastjóra umhverfismála í Múlaþingi fyrir Fjarðabyggð að beiðni sviðsstjóra ásamt stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og felur sviðstjóra og stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að útbúa tillögu í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir fund að nýju.