Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 889

31. mars 2025, kl. 08:30 til 11:22, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 395 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 889 og 890 voru teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 889 frá 31. mars er staðfest með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2024

    Mál 2503240 Allur ferill málsins

    Yfirferð á vinnu við gerð ársreiknings. Sviðsstjóri fjármála- og greiningarsviðs kom á fund bæjarráðs og fór yfir vinnu við gerð ársreiknings.

  2. 2. Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 2025 2026

    Mál 2409157 Allur ferill málsins

    Vísað frá stjórn menningarstofu til afgreiðslu bæjarráðs tillögu um safnapassa fyrir öll söfn í umsjón og rekstri Fjarðabyggðar. Tillagan miðar að því að fjölga gestum safna og það veiti gestum safna möguleika á að heimsækja öll söfnin fyrir eitt gjald, 3.650 kr. á hverju ári.

    Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að gjaldskrá safna og tekur ný gjaldskrá gildi 1. apríl 2025.

  3. 3. Vatnsveitumál í Mjóafirði

    Mál 2503205 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Sigfúsar Vilhjálmssonar vegna vatnsveitu- og hafnarmála í Mjóafirði.

    Sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs falið að taka saman upplýsingar um vatnsveitumál í Mjóafirði og leggja fyrir bæjarráð. Bæjarráð samþykkir að í framhaldinu verði haldinn fundur með íbúum í Mjóafirði.

  4. 4. Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um veiðigjald 62 2025

    Mál 2503241 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að frumvarpi um breytingar á lögum um veiðigjald 62 2025 frá atvinnuvegaráðherra og fjármálaráðherra sem er til umsagnar í samráðsgátt.

    Bókun fulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks:

    "Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir yfir eindreginni andstöðu við fyrirhugaða hækkun veiðigjalda. Boðuð hækkun er bæði illa tímasett og óábyrg, sérstaklega í ljósi loðnubrests og núverandi skattaumhverfis sjávarútvegsfyrirtækja.

    Sjávarútvegur er einn af burðarásum atvinnulífs í Fjarðabyggð, sem og undirstaða í útflutningi landsins alls, og treysta samfélögin í sveitarfélaginu á öfluga starfsemi fyrirtækja í greininni. Þessi fyrirtæki hafa sýnt ábyrgð, skapað fjölda starfa, fjárfest í tækni og þjónustu í nærsamfélaginu, og leggja til styrki til félags-menningar- og íþróttalífs og þannig tekið þátt í að byggja upp samfélagið samhliða því að greiða inn í samneysluna í formi skatta og veiðigjalda.

    Það liggur fyrir að sjávarútvegurinn í heild greiðir nú þegar um 50 milljarða króna árlega til hins opinbera í gegnum beint og óbeint skattspor ? þar af hefur stór hluti komið frá starfsemi á Austurlandi. Til að mynda greiddi sjávarútvegurinn 9,2 milljarða kr. í veiðigjöld árið 2024 samkvæmt áætlun fjárlaga, og samtals yfir 30 milljarða frá 2021?2024. Um 20% veiðigjalda koma frá sjávarútvegi í Fjarðabyggð.

    Samanburður stjórnvalda við veiðigjaldakerfi í Noregi er afar umdeilanlegur ? þar sem norsk sjávarútvegsfyrirtæki njóta umfangsmikilla ríkisstyrkja sem ekki eiga sér hliðstæðu á Íslandi. Íslenskur sjávarútvegur stendur fyrir rekstri á markaðslegum forsendum, greiðir fulla skatta og ber sjálfur kostnað af innviðum og þróun.

    Bæjarráð hefur alvarlegar áhyggjur af því að slík hækkun veiðigjalda muni leiða til minni fjárfestinga í sjávarútvegi á Austurlandi, minnkandi samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs, bæði gagnvart útflutningi og á vinnumarkaði, keðjuverkandi áhrifa á afleidd störf og lífsgæði íbúanna í sveitarfélaginu og loks að verulega dragi saman í uppbyggingu atvinnulífs í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð hvetur stjórnvöld til að endurskoða áform sín þegar í stað og óskað er eftir því að ríkið leggi fram heildstæða greiningu á áhrifum fyrirhugaðra breytinga á byggð, atvinnu og fjárfestingu í sjávarútvegi eins 129. gr. sveitarstjórnarlaga kveður á um en þar skal leggja sérstakt mat á áhrifum lagabreytinga á fjárhag sveitarfélaga. Þá krefst bæjarráð Fjarðabyggðar þess að frestur til umsagna við boðað frumvarp verði hið minnsta lengdur til að gera sveitarfélögunum kleift að senda inn umsagnir byggðar á gögnum sem afla þarf."

    Bókun fulltrúa Fjarðalistans:

    "Mikilvægi sjávarútvegs fyrir atvinnulífið á svæðinu, samfélagslega velsæld og tekjustofna sveitarfélagsins eru óumdeild og því nauðsynlegt að ítarlegt mat fari fram á áhrifum þeirra á samfélög sem byggja afkomu sína að verulegu leyti á sjávarútvegi.

    Við teljum því mikilvægt að fram fari heildstætt mat á áhrifum frumvarpsins á starfsemi sjávarútvegsfyrirtækja, fyrirtæki sem þjónusta þau, og þau samfélög þar sem sjávarútvegur er meginatvinnugrein. Að sama skapi þarf að tryggja að hluti þess veiðigjalds sem innheimt er skili sér til viðkomandi byggðarlaga og nýtist þar sem gjaldið er til komið í þágu samfélags og atvinnulífs. Einnig er nauðsynlegt að kynna forsendur breytinganna gagnsætt og standa fyrir samráði m.a. við sveitarfélög sem eiga mikið undir sjávarútvegi.

    Fjarðalistinn leggur áherslu á að álagning veiðigjalda sé sanngjörn, fyrirsjáanleg og styðji við áframhaldandi verðmætasköpun, nýsköpun og stöðugleika í sjávarútvegi og nærumhverfi hans."

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda inn umsögn um málið fyrir hönd Fjarðabyggðar

  5. 5. Greining veikindalauna

    Mál 2503242 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að greiningu mannauðs- og umbótasviðs á þróun veikindalauna 2022 - 2024. Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna.

  6. 6. Ársfundur Starfsendurhæfingar Austurlands 2025

    Mál 2503227 Allur ferill málsins

    Framlagt fundarboð ársfundar Starfsendurhæfingar Austurlands sem haldinn verður 9. apríl nk. kl. 14:00.

    Bæjarráð felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að fara með umboð sveitarfélagsins á fundinum.

  7. 7. Tæknidagur Fjölskyldunnar 2025

    Mál 2408135 Allur ferill málsins

    Tæknidagurinn verður haldinn 5. apríl í íþróttahúsinu á Norðfirði.

    Fjarðabyggð tekur þátt í deginum en slökkvilið og framkvæmdasvið verða með bás á svæðinu.

  8. 8. Fundur bæjarráðs með Vegagerðinni

    Mál 2401188 Allur ferill málsins

    Málefni Vegagerðarinnar í Fjarðabyggð til umræðu með umdæmisstjóra Vegagerðarinnar á Austurlandi.

  9. 9. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 29

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 26. mars.

    1. 9.1 Óveruleg breyting á deiliskipulagi Kirkjubólseyrar, Norðfirði2411098
    2. 9.2 Óveruleg breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðis Hafnargata 1 Fáskrúðsfirði2503211
    3. 9.3 Umsókn um óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Neskaupstaðar vegna stúku við knattspyrnuvöll.2503208
    4. 9.4 Byggingarleyfi Borg, Mjóafirði2503129
    5. 9.5 735 Strandgata 12 - stálgrindarhús - byggingarleyfi1701186
    6. 9.6 Framkvæmdaleyfi útiæfingatæki Stöðvarfirði2503145
    7. 9.7 Fjarskiptamastur Fárskrúðsfirði2503147
    8. 9.8 Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar2302213
    9. 9.9 Lögbýlisumsókn Blávík2503070
    10. 9.10 Framkvæmdaleyfi náttúrustígur Kollaleiruháls2503198
    11. 9.11 Strandblaksvöllur Reyðarfirði2503193
    12. 9.12 Átak í leit og nýtingu jarðhita2503126
    13. 9.13 Bréf frá Félagi atvinnuveiðimanna í ref og mink.2503206
    14. 9.14 Úrgangsmál - textíll2503100
    15. 9.15 Skipulag úrgangsmála í Fjarðabyggð2404177
  10. 10. Hafnarstjórn - 324

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 24. mars.

    1. 10.1 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
    2. 10.2 Smábátahafnir Fjarðabyggðarhafna2503064
    3. 10.3 Fyrirhugaðar framkvæmdir Loðnuvinnslunnar2502033
    4. 10.4 Viðgerð stálþils Bræðslubryggju Eskifirði (norðurkantur)2501026
    5. 10.5 Landmótun og landfylling á Mjóeyrarhöfn2501155
    6. 10.6 Öryggismál hafna2206100
    7. 10.7 Naustahvammur vinnusvæði2503120
    8. 10.8 Olíuleit á Drekasvæðinu2503123
    9. 10.9 Beiðni um styrk - Ný Hafbjörg 20272503068
    10. 10.10 Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 20252503093
  11. 11. Stjórn menningarstofu - 16

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð stjórnar menningarstofu frá 24. mars.

    1. 11.1 Verkefni menningarstofu 20252501084
    2. 11.2 Sumarsmiðjur gjald sumarið 20252501084
    3. 11.3 Viðbót við gjaldskrá safna Fjarðabyggðar2503101
    4. 11.4 Viðurkenning safna Fjarðabyggðar2503092
    5. 11.5 Samningur um afnot- og umgengni á safninu Frakkar á Íslandsmiðum endurskoðun2405020
    6. 11.6 Þjónustusamningur við Sjóminjasafn 2024-20262503175
    7. 11.7 Skjalasafn Fjarðabyggðar2409018
    8. 11.8 Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins2206071
    9. 11.9 Víkingar á vesturleið2503188
    10. 11.10 Umsókn um styrk til Stöð í Stöð 20252503086