Bæjarráð, fundur 888
24. mars 2025, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 394 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 24. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Uppbygging miðbæjarkjarna á Reyðarfirði
Mál 2501185 Allur ferill málsins
Framlagt erindi R101 ehf. um uppbyggingu miðbæjarkjarna á Reyðarfirði og viljayfirlýsingu vegna uppbyggingarinnar.
Bæjarráð fagnar áformum um uppbyggingu miðbæjarkjarna á Reyðarfirði og samþykkir að veita viljayfirlýsingu um mögulega leigu á einni hæð í fyrirhuguðu húsnæði nýs miðbæjarkjarna undir bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Skilyrði fyrir viljayfirlýsingunni er að rýmið geti hýst alla starfsemi bæjarskrifstofu sveitarfélagsins á einum stað, þannig að hægt verði að sameina skrifstofuhald. Bæjarráð felur bæjarstjóra að eiga frekara samráð við R101.
-
2. Grænn orkugarður á Reyðarfirði
Mál 2108124 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fór yfir undirbúning fyrir fund sem haldinn verður 1. apríl í Reykjavík um grænan orkugarð á Reyðarfirði með þingmönnum og hagaðilum.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í fundinum ásamt formanni hafnarstjórnar og skipulags- og framkvæmdanefndar og felur bæjarstjóra undirbúning hans ásamt starfsmönnum.
-
3. Flýting vegtengingar Suðurfjarðavegar
Mál 2412103 Allur ferill málsins
Fjallað um áform um flýtiframkvæmdir í vegakerfinu og ástand Suðurfjarðavegar.
Bæjarráð Fjarðabyggðar fagnar þeim áformum innviðaráðherra sem fram komu á Landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga um að hefja strax uppbyggingu samgöngukerfisins, sér í lagi gagnvart viðhaldi. Mikilvægt er að þessi áform leiði til tafarlausra aðgerða eins og að er stefnt, enda er ástand lykilvegakerfa á Austurlandi óviðunandi og hefur veruleg áhrif á öryggi vegfarenda og atvinnulíf.
Bæjarráð ítrekar fyrri bókanir sínar um brýna þörf á endurbótum Suðurfjarðavegar, hluta Þjóðvegar 1, sem er ein mikilvægasta samgönguæð Austurlands. Vegurinn er afar slitinn, þolir illa það mikla og þunga umferðarálag sem um hann fer og skapar hættu fyrir ökumenn. Ástand vegarins hefur ítrekað valdið tjóni á farartækjum og falið í sér aukna slysahættu, sérstaklega yfir vetrarmánuðina.
Jafnframt vill bæjarráð árétta að brýrnar yfir Sléttuá á Reyðarfirði og Stöðvará í Stöðvarfirði eru löngu úreltar og uppfylla ekki þær kröfur sem gerðar eru til nútíma samgöngumannvirkja. Brýn þörf er á nýjum brúm, enda þolir núverandi ástand ekki frekari bið. Stór vinnutæki þurfa að fara yfir Slettuá á vaði með sem er óásættanlegt með tilliti til öryggis og óhagræðis.
Bæjarráð Fjarðabyggðar leggur því ríka áherslu á að bæði Suðurfjarðavegur og brýrnar yfir Sléttuá í Reyðarfirði og Stöðvará í Stöðvarfirði verði sett í forgang í þeirri áætlun stjórnvalda sem nú er unnið að. Báðar þessar brýr eru á þjóðvegi 1 og er brúin yfir Sléttuá umferðarþyngsta einbreiða brú á þjóðvegi 1 á Austurlandi.
Tryggja þarf öruggar og traustar samgöngur á Austurlandi í takt við þarfir samfélagsins og atvinnulífsins, enda er bætt vegakerfi forsenda fyrir öflugri byggðaþróun og efnahagslegum vexti svæðisins.
-
4. Málstefna
Mál 2503187 Allur ferill málsins
Framlögð drög að málstefnu sveitarfélagsins til umfjöllunar.
Bæjarráð vísar málstefnu fyrir Fjarðabyggðar til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
-
5. Niðurfelling á fasteignagjöldum Karlsstaðir
Mál 2503138 Allur ferill málsins
Framlögð ósk Ferðafélags fjarðamanna um niðurfellingu á fasteignagjöldum á gistiskálanum í Vöðlavík.
Bæjarráð samþykkir með vísan til reglna Fjarðabyggðar um styrk til greiðslu fasteignagjalda að veita styrk til Ferðafélags fjarðamanna.
-
6. Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfirði Ægisgata 6
Mál 2502027 Allur ferill málsins
Tekið fyrir að nýju deiliskipulag miðbæjarins á Reyðarfirði og lóða við Bræðslureit.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að vinna málið áfram.
-
7. Umsókn um lóð Búðarmelur 27
Mál 2503074 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd tillögu um skipti á lóðinni Búðarmelur 27 á og Litlagerði 6 á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar Búðarmels 27 á Reyðarfirði.
-
8. Umsókn um lóð fyrir skotíþróttasvæði á Reyðarfirði
Mál 2501189 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd umsókn Skotíþróttafélagsins Dreka um lóð samkvæmt deiliskipulagi akstursíþrótta- og skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við Skotíþróttafélagið Dreka um umsókn þeirra um lóðina og framtíðaráform félagsins.
-
9. Hagsmunaskráning kjörinn fulltrúa
Mál 2503201 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga Fjarðalistans um að innleidd verði hagsmunaskráning kjörinna fulltrúa hjá Fjarðabyggð.
Bæjarráð felur bæjarritara að skoða útfærslur og leggja fyrir bæjarráð minnisblað um málið.
-
10. Til umsagnar 158. mál - Borgarstefna.
Mál 2503179 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar 158. mál, þingsályktunartillag um borgarstefnu.
Bæjarráð felur bæjarritara að senda umsögn.
-
11. Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2025
Mál 2503093 Allur ferill málsins
Framlagt aðalfundarboð Fiskmarkaðs Austurlands en aðalfundur verður haldinn 24. mars.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri og fjármálastjóri verði aðalmenn í stjórn og verkefnastjóri hafna verði varamaður þeirra.
-
12. Drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um strandveiðar
Mál 2503176 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar umsögn um drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um strandveiðar.
-
13. Fundarboð fulltrúaráðs Stapa lífeyrissjóður 15.apríl 2025
Mál 2503196 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar fundarboð fulltrúaráðs Stapa lífeyrissjóður en fundur verður haldinn 15.apríl 2025.
Vísað til skoðunar hjá fjármálastjóra.
-
14. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Mál 2502038 Allur ferill málsins
Fundargerð 972. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar
-
15. Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 2025
Mál 2501007 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 81 lögð fram til kynningar.
-
16. Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Grjótá
Mál 2002092 Allur ferill málsins
Farið yfir hönnun ofanflóðavarna í og við Grjótá á Eskifirði með fulltrúum Framkvæmdasýslu ríkisins og Ofanflóðasjóðs ásamt hönnuðum varnanna.
Opinn kynningarfundur verður haldinn á Eskifirði kl. 20:00 í kvöld þar sem gerð verður grein fyrir hönnuninn og framkvæmdaáætlun.
-
17. Fjölskyldunefnd - 29
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 17. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 17.1 Víkingurinn 2025 - Umsókn um íþróttastyrk2503118
- 17.2 Lengri opnun sundlauga yfir páska2503119
- 17.3 Sumarfrístund 20252503091
- 17.4 Sterkur Stöðvarfjörður - beiðni um lengingu opnunartíma sundlaug Stöðvarfjarðar2310110
- 17.5 Umgengnisreglur sundlauga Fjarðabyggðar2411092
- 17.6 Umengnisreglur íþróttahúsa Fjarðabyggðar2411044
-
18. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 28
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 18. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 18.1 Byggingarleyfi - Niðurrif Strandgata 6 - 740 Norðfjörður2503113
- 18.2 Óv.dsk breyting á miðbæjarskipulagi Neskaupstaðar Egilsbraut 22 og Egilsbraut 262501005
- 18.3 Umsókn um breytingu á byggingarreit að Daltúni 7, 7352411039
- 18.4 Umsókn um lóð Búðarmelur 272503074
- 18.5 Umsókn um afnot af lóð skotíþróttasvæði Reyðarfjörður2501189
- 18.6 Framkvæmdaleyfi strengir Breiðamel Reyðarfirði2502245
- 18.7 Framkvæmdaleyfi Plæging á tveimur Háspennustrengjum frá Melbrún á Reyðarfirði út að væntanlegu rofahúsi ofan Mjóeyrar.2503050
- 18.8 Umsókn um að hafa klæddan gám á íbúðarhúsalóð2411016
- 18.9 Framkvæmdaleyfi tenging milli línuslóða Kollaleiruháls2503067
- 18.10 Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður2009034
- 18.11 Umsókn um undanþágu frá aðalskipulag2503090
- 18.12 Ungmennaráð - Söndun gatna2502007
- 18.13 Ungmennaráð - fjöldi og staðsetning ruslatunna í gönguleiðum og við ljósastaura2503014
- 18.14 Naustahvammur vinnusvæði2503120
- 18.15 Vor í Fjarðabyggð2503122
- 18.16 Ofanflóð 2025- málþing um snjóflóð og samfélög2503018
- 18.17 Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar2302213
- 18.18 Úrgangsmál - textíll2503100
- 18.19 Umsókn um stöðuleyfi2503127
- 18.20 Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs ný áætlun 20252209007