Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 29

17. mars 2025, kl. 16:15 til 18:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Helga Rakel Arnardóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Magnús Árni Gunnarsson

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 888 liður 17

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 17. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 394 liður 6

    Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 17. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Víkingurinn 2025 - Umsókn um íþróttastyrk

    Mál 2503118 Allur ferill málsins

    Víkingurinn 2025 keppni sterkustu manna landsins fer fram dagana 11 -13 Júní og er ætlunin að heimsækja 4 sveitarfélög og vera með 2 keppnisgreinar í hverju sveitarfélagi. Sótt er um styrk Fjarðabyggðar til að hluti keppninnar geti farið fram í sveitarfélaginu. Fjölskyldunefnd þakkar sýndan áhuga á að vera með fyrirhugaða keppni að hluta í Fjarðabyggð og lýsir yfir áhuga á að styðja við framkvæmd hennar, m.a. með gistingu, aðgengi að viðeigandi aðstöðu og annars konar aðstoð á meðan á keppninni stendur.

  2. 2. Lengri opnun sundlauga yfir páska

    Mál 2503119 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd fagnar aukinni eftirspurn eftir lengri opnun sundlaugarinnar á Eskifirði um páskana, auk þess aðdráttarafls sem skíðasvæðið hefur um páskana. Í ljósi þessa hyggst nefndin verða við óskum um lengdan opnunartíma sundlaugarinnar yfir páskana.

    Stjórnanda íþrótta- og tómstundamála er falið að kynna breytinguna fyrir íbúum og gestum, þannig að sem flestir geti notið sundlaugarinnar að loknum skíðadegi.

  3. 3. Sumarfrístund 2025

    Mál 2503091 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd leggur til að sumarfrístund haldi áfram að starfa í 40 klukkustundir á viku, þrátt fyrir styttri vinnuviku starfsfólks sveitarfélagsins. Mikilvægt er að hefja skráningu sem allra fyrst og meta stöðuna út frá þátttöku, mönnun, kostnaði og fjármögnun, til að tryggja fullnægjandi þjónustu fyrir börn og fjölskyldur þeirra.

  4. 4. Sterkur Stöðvarfjörður - beiðni um lengingu opnunartíma sundlaug Stöðvarfjarðar

    Mál 2310110 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir að breyta opnunartíma sundlauga á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn. Jafnframt er lögð áhersla á að tryggt verði að sundlaugin á Fáskrúðsfirði verði opin á meðan Franskir dagar standa yfir, þannig að íbúar og gestir geti notið þjónustunnar í tengslum við hátíðina.

  5. 5. Umgengnisreglur sundlauga Fjarðabyggðar

    Mál 2411092 Allur ferill málsins

    Ungengnisreglur sundlauga Fjarðabyggðar lagðar fyrir fjölskyldunefnd til kynningar.

  6. 6. Umengnisreglur íþróttahúsa Fjarðabyggðar

    Mál 2411044 Allur ferill málsins

    Umgengnisreglur íþróttahúsa Fjarðabyggðar lagðar fyrir fjölskyldunefnd til kynningar.