Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 28

18. mars 2025, kl. 16:00 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 888 liður 18

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 18. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 394 liður 4

    Til máls tóku Þuríður Lillý Sigurðardóttir og Elís Pétur Elísson.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 18. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Byggingarleyfi - Niðurrif Strandgata 6 - 740 Norðfjörður

    Mál 2503113 Allur ferill málsins

    Byggingarheimild - Niðurrif Strandgata 6 - 740 Norðfjörður. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarheimild þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  2. 2. Óv.dsk breyting á miðbæjarskipulagi Neskaupstaðar Egilsbraut 22 og Egilsbraut 26

    Mál 2501005 Allur ferill málsins

    Óv.dsk breyting á miðbæjarskipulagi Neskaupstaðar Egilsbraut 22 og Egilsbraut 26. Uppfærðir uppdrættir þar sem kvöð um gönguleið hefur verið bætt inn á. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir eigendum að Egilsbraut 12, 14, 19, 21, 23 og 25, Norðfirði og leggja niðurstöðu grenndarkynningar fyrir nefnd.

  3. 3. Umsókn um breytingu á byggingarreit að Daltúni 7, 735

    Mál 2411039 Allur ferill málsins

    Tekið fyrir að nýju umsókn um breytingu á byggingarreit að Daltúni 7, 735. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti breytingu á byggingarreit og kallar eftir að uppdráttur vegna óverulegrar breytingu á deiliskipulagi verði lagður fyrir fundinn að nýju.

  4. 4. Umsókn um lóð Búðarmelur 27

    Mál 2503074 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð Búðarmelur 27, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti úthlutun lóðarinnar og vísar erindinu í bæjarráð.

  5. 5. Umsókn um afnot af lóð skotíþróttasvæði Reyðarfjörður

    Mál 2501189 Allur ferill málsins

    Skotíþróttafélagið Dreki sækir um afnot af lóð samkv. deiliskipulagi aksturs- og skotíþróttasvæði vestan Bjarga. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti að félagið hafi afnot af lóðinni og vísar erindinu til afgreiðslu í bæjarráði.

  6. 6. Framkvæmdaleyfi strengir Breiðamel Reyðarfirði

    Mál 2502245 Allur ferill málsins

    Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna lagningar heimtauga, stofnstrengja, rör, götuskápa og háspennustreng í nýjar götur Reyðarfirði (Melgerði, Melbotn). Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  7. 7. Framkvæmdaleyfi Plæging á tveimur Háspennustrengjum frá Melbrún á Reyðarfirði út að væntanlegu rofahúsi ofan Mjóeyrar.

    Mál 2503050 Allur ferill málsins

    Plæging á tveimur Háspennustrengjum frá Melbrún á Reyðarfirði út að væntanlegu rofahúsi ofan Mjóeyrar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  8. 8. Umsókn um að hafa klæddan gám á íbúðarhúsalóð

    Mál 2411016 Allur ferill málsins

    Umsókn um að hafa klæddan gám á íbúðarhúsalóð. Lóðarhafi óskar eftir að hafa smáhýsið innan við 3 metra frá lóðarmörkum. Skipulags- og framkvæmdanefnd hafnar umsókninni á þeim forsendum að gámar eru ekki leyfðir í íbúðarbyggð, klæddir eða ekki. Einnig liggur fyrir að einingin rúmast ekki innan svæðisins án þess að brjóta í bága við byggingarreglugerð. Nefndin vísar umsækjanda á skipulagt gámasvæði í Neskaupstað.

  9. 9. Framkvæmdaleyfi tenging milli línuslóða Kollaleiruháls

    Mál 2503067 Allur ferill málsins

    Umsókn Skógræktarfélags Reyðarfjarðar um framkvæmdaleyfi vegna tengingu á slóða við Kollaleiruháls. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  10. 10. Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður

    Mál 2009034 Allur ferill málsins

    Tillaga að fjölskyldusvæði á Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að útbúa óverulega breytingu á deiliskipulagi og setja í auglýsingu.

  11. 11. Umsókn um undanþágu frá aðalskipulag

    Mál 2503090 Allur ferill málsins

    Umsókn um undanþágu frá aðalskipulagi. Trúnaðarmál. Lagt fram bréf umsækjanda ásamt minnisblaði stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar. Skipulags- og framkvæmdanefnd veitir ekki undanþágu frá aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040. Ekki stendur til að breyta reglum varðandi gististaði í íbúðabyggð. Nefndin felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að svara umsækjanda.

  12. 12. Ungmennaráð - Söndun gatna

    Mál 2502007 Allur ferill málsins

    Ungmennaráð Fjarðabyggðar vill vekja athygli á mikilvægi tímabærs sandburðar á götum og göngustígum sveitarfélagsins. Í dag er sandburður oft framkvæmdur of seint, sem skapar hættu fyrir gangandi vegfarendur, sérstaklega börn á leið í skóla. Með betra skipulagi og fyrirbyggjandi aðgerðum væri hægt að tryggja öruggari aðstæður og draga úr slysahættu. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar erindið og vísar til úrvinnslu hjá sviðsstjóra.

  13. 13. Ungmennaráð - fjöldi og staðsetning ruslatunna í gönguleiðum og við ljósastaura

    Mál 2503014 Allur ferill málsins

    Ungmennaráð hvetur Skipulags- og framkvæmdanefnd til að endurskoða fjölda og staðsetningu ruslatunna í sveitarfélaginu, með sérstakri áherslu á göngustíga, almenningssvæði og vinsælar útivistarleiðir. Skipulags- og framkvæmdanefn tekur vel í erindið og felur stjórnanda þjónustu- og framkvæmdarmiðstöðvar að koma með tillögu að úrbótum og leggja fyrir nefndina að nýju.

  14. 14. Naustahvammur vinnusvæði

    Mál 2503120 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga verkefnastjóra hafna og stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar um aukið öryggi á hafnarsvæði Norðfjarðarhafnar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar erindinu til hafnarstjórnar.

  15. 15. Vor í Fjarðabyggð

    Mál 2503122 Allur ferill málsins

    Umræða um verkefnið Vor í Fjarðabyggð. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur starfsmönnum sviðsins að leggja drög að útfærslu á verkefninu og leggja fyrir nefnd að nýju.

  16. 16. Ofanflóð 2025- málþing um snjóflóð og samfélög

    Mál 2503018 Allur ferill málsins

    Samband íslenskra sveitarfélaga vekur athygli framkvæmdastjóra og sveitarstjórnar á ráðstefnu sem verður haldinn á Ísafirði 5-6 maí 2025. Skipuleggjendur málþingsins eru ofanflóðasjóður, Veðurstofa Íslands, Vegagerðin, Almannavarnir, Samband íslenskra sveitarfélaga, Byggðastofnun, Verkfræðingafélag Íslands og Snjóflóðasamtök Íslands. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar gott boð.

  17. 17. Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar

    Mál 2302213 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að samningi við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu til næsta fundar.

  18. 18. Úrgangsmál - textíll

    Mál 2503100 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar varðandi textílsöfnun, málm og gler. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfismála að koma með útfærslu á ílátum.

  19. 19. Umsókn um stöðuleyfi

    Mál 2503127 Allur ferill málsins

    Umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám á gámasvæði Mjóeyrahöfn. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir stöðuleyfið og felur skipulagsfulltrúa að gera nýjan leigusamning.

  20. 20. Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs ný áætlun 2025

    Mál 2209007 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að endurskoðaðri svæðisáætlun Austurlands ásamt aðgerðaráætlun um úrgangsmál á Austurlandi en vinna er nú á lokametrunum. Kynningarfundur var fimmtudaginn 13.mars með Stefáni Gíslasyni frá Environice. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og fagnar vinnu við nýja svæðisáætlun.