Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 886

10. mars 2025, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Kristinn Þór Jónasson, varamaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 394 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Elís Pétur Elísson, Jóna Árný Þórðardóttir.

    Fundargerð bæjarráðs frá 10. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Áhrif kjarasamninga 2024

    Mál 2409041 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað vegna áhrif innanhústillögu ríkissáttasemjara í kjaradeilu Sambands sveitarfélaga við KÍ frá 28.11.24 á launaáætlun 2024.

    Bæjarráð vísar minnisblaðinu til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2024.

  2. 2. Fiskeldissjóður - umsóknir 2025

    Mál 2502013 Allur ferill málsins

    Farið yfir umsóknir til Fiskeldissjóðs um styrk vegna verkefna sem sótt er um framlög til og falla að markmiðum sjóðsins.

    Bæjarráð fór yfir umsóknir og samþykkir tillögur með áorðnum breytingum. Sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs falið að skila tillögum inn.

  3. 3. Ofanflóðaframkvæmdir við Lambeyrará - uppkaup lóða Túnagata 11b og Gilsbakki

    Mál 2502237 Allur ferill málsins

    Framlagt svar Ofanflóðasjóðs vegna uppkaupa á lóðum vegna framkvæmda við Lambeyrará.

    Bæjarráð samþykkir að fram fari mat skv. ferlum um uppkaup vegna framkvæmda og tekur málið fyrir þegar mötin liggja fyrir.

  4. 4. Sameiginlegir páskapassar Oddsskarðs og Stafdals

    Mál 2502009 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkti fyrir sitt leyti sameiginlega páskapassa fyrir Oddsskarð og Stafdal. Málið hefur einnig farið fyrir fjölskylduráð Múlaþings og fékk samþykki þar.

    Bæjarráð samþykkir tillögu um skíðapassa fyrir páska árið 2025.

  5. 5. Umgengnisreglur íþróttavalla og Fjarðabyggðarhallarinnar

    Mál 2411094 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að umgengnisreglum íþróttavalla Fjarðabyggðar og Fjarðabyggðarhallarinnar til samþykktar bæjarráðs en reglurnar hafa verið staðfestar af fjölskyldunefnd.

    Bæjarráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísa þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  6. 6. Akstur barna á knattspyrnuæfingar

    Mál 2503046 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Knattspyrnufélag Austfjarða sem fjallar um akstur barna á knattspyrnuæfingar.

    Bæjarráð vísar erindi til skoðunar hjá fjölskyldusviði og að skoða frekari nýtingu á þeim ferðum sem þegar eru í boði í samgöngukerfi Fjarðabyggðar.

  7. 7. Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa

    Mál 2004159 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að samningi um þjálfun í Janusarverkefninu til afgreiðslu bæjarráðs en samningur fjallar um þjálfun í verkefninu.

    Bæjarráð samþykkir samninga með tillögu um eftirfylgni þeirra og umhald og felur bæjarstjóra undirritun þeirra.

  8. 8. Erindi um nýtt íþróttahús á Eskifirði

    Mál 2503056 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar bréf Ungmennafélagsins Austra vegna íþróttahúss á Eskifirði.

    Bæjarráð er enn að skoða lausnir í málum íþróttahúss á Eskifirði og verða málefni því tengd rædd frekar þegar niðurstaða liggur fyrir.

  9. 9. Upplýsingabeiðni - útvistun ræstinga- og þrifa starfa

    Mál 2503059 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni Alþýðusambands Íslands þar sem óskað er upplýsingar um útvistun þrifa til fyrirtækja.

    Bæjarráð vísar erindi til afgreiðslu hjá sviðsstjóra mannauðs- og umbótasviðs.

  10. 10. Upplýsingafundur um áhrif vindorku

    Mál 2503041 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Náttúruverndarsamtaka Austurlands um fyrirhugaðan kynningarfund um áhrif vindorku.

    Bæjarráð sendir fulltrúa sinn til fundarins.

  11. 11. Aðalfundur Lánasjóðs Sveitarfélaga ohf - 20.mars 2025

    Mál 2503024 Allur ferill málsins

    Framlagt fundarboð á aðalfund Lánasjóðs sveitafélaga sem haldinn verður 20. mars nk.

    Bæjarráð samþykkir að Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri fari með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  12. 12. Samstarf um verkefni

    Mál 2503048 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar erindi samtakanna Landsbyggðin lifi um samstarfsverkefni sveitafélaga í dreifbýli vegna þátttöku samtakanna í samstarfsverkefninu Coming, Staying, Living Ruralizing Europe.

    Bæjarráð þakkar fyrir erindið en tekur ekki þátt í verkefninu að svo stöddu.

  13. 13. Frumvarp til laga um kílómetragjald á ökutæki.

    Mál 2503060 Allur ferill málsins

    Framlagt til umfjöllunar frumvarp til laga um kílómetragjald á ökutæki, Þingskjal 123.

    Bæjarráð felur bæjarritara að skila inn umsögn vegna frumvarpsins.

  14. 14. Tillaga til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun nr. 24 152

    Mál 2503055 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, 101. mál.

    Bæjarráð felur bæjarritara að vinna drög að umsögn á grundvelli fyrri samþykkta sveitarfélagsins og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  15. 15. Fundargerðir - samtaka svf á köldum svæðum 2025

    Mál 2501180 Allur ferill málsins

    79.fundargerð Samtaka sveitafélaga á köldum svæðum lögð fram til kynningar.

  16. 16. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025

    Mál 2502038 Allur ferill málsins

    Fundargerðir 970. fundar stjórnar Sambandsins lagðar fram til kynningar.

  17. 17. Fundargerðir stjórnar Náttúrustofu Austurlands árið 2025

    Mál 2503033 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands frá 5. febrúar 2025.