Hafnarstjórn, fundur 324
24. mars 2025, kl. 16:00 til 17:41, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Heimir Snær Gylfason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 889 liður 10
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 24. mars.
Bæjarstjórn, fundur 395 liður 6
Fundargerð 324. fundar hafnarstjórnar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Til máls tók Jón Björn Hákonarson
Fundargerð 324. fundar hafnarstjórnar frá 24. mars er staðfest með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Eskifjarðarhöfn - stækkun
Mál 2003091 Allur ferill málsins
Lögð fram kostnaðaráætlun EFLU fyrir fyrirhugaðar framkvæmdir á hafnarsvæðinu við Frystihússbryggjuna á Eskifirði.
Hafnarstjórn samþykkir að hefja undirbúning útboðs á verkinu á grundvelli fyrirliggjandi gagna.
-
2. Smábátahafnir Fjarðabyggðarhafna
Mál 2503064 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi frá Dal-Björgu þar sem lýst er yfir áhuga á samstarfi um dýpkun hafna fyrir Fjarðabyggð.
Hafnarstjórn þakkar erindið og felur verkefnastjóra hafna að ræða við forráðamenn Dal-Bjargar. Þá er verkefnastjóra hafna og sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs falið að hefja vinnu við verðkönnun á dýpkun með langarmagröfum og flutningi á efnis upp á land.
-
3. Fyrirhugaðar framkvæmdir Loðnuvinnslunnar
Mál 2502033 Allur ferill málsins
Lögð fram gögn um þær endurbætur sem nauðsynlegar eru á Innri og ytri löndunarbryggjum á Fáskrúðsfirði með tilliti til fyrirhugaðra framkvæmda Loðnuvinnslunnar ásamt tillögu Loðnuvinnslunnar að breytingu deiliskipulags á athafnasvæði fyrirtækisins.
Hafnarstjórn fór yfir gögnin en vísar breytingu á deiliskipulagi til umfjöllunar í skipulags- og framkvæmdanefnd.
-
4. Viðgerð stálþils Bræðslubryggju Eskifirði (norðurkantur)
Mál 2501026 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað verkefnastjóra hafna varðandi viðgerð á stálþili norðurkants Bræðslubryggjunnar á Eskifirði. Framkvæmdum við viðgerðina er lokið.
-
5. Landmótun og landfylling á Mjóeyrarhöfn
Mál 2501155 Allur ferill málsins
Framlögð framvinduskýrsla vegna framkvæmda við landmótun og landfyllingu á Mjóeyrarhöfn en verkið hefur gengið vel að undanförnu og þessi þáttur verksins er langt á veg komin.
Hafnarstjórn þakkar fyrir kynninguna.
-
6. Öryggismál hafna
Mál 2206100 Allur ferill málsins
Yfirferð og umræða um stöðu mála á úrbótum í öryggismálum Fjarðabyggðarhafna. Framlagt minnisblað verkefnastjóra hafna varðandi málið, en að undanförnu hefur verið fundað með hagsmunaðaðilum.
Hafnarstjórn þakkar fyrir kynninguna og fagnar jákvæðri umræðu hagsmunaaðila varðandi aukna öryggisvitund á höfnum Fjarðabyggðar.
Verkefnastjóra hafna falið að vinna málið áfram og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.
-
7. Naustahvammur vinnusvæði
Mál 2503120 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga verkefnastjóra hafna og stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar um aukið öryggi á hafnarsvæði Norðfjarðarhafnar. Skipulags- og framkvæmdanefnd hefur samþykkti tillöguna fyrir sitt leyti vísaði erindinu til hafnarstjórnar.
Verkefnastjóra hafna er falið að fá verð í aðgangsstýringar í samræmi við minnisblað og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.
-
8. Olíuleit á Drekasvæðinu
Mál 2503123 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar bókun bæjarráðs frá 17. mars sl.
Hafnarstjórn þakkar fyrir kynninguna.
-
9. Beiðni um styrk - Ný Hafbjörg 2027
Mál 2503068 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi frá Björgunarbátasjóð SVFÍ Neskaupstað vegna endurnýjunar björgunarskipsins Hafbjargar. Í erindinu er þess farið á leit að hafnarsjóður styrki endurnýjunina.
Hafnarstjórn þakkar fyrir erindið og tekur jákvætt í það. Hafnarstjóra falið að ræða við hagsmunaaðila og leggja erindið fyrir að nýju.
-
10. Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2025
Mál 2503093 Allur ferill málsins
Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands var haldinn mánudaginn 24. mars. Hafnarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og greiningarsviðs voru fulltrúar Fjarðabyggðar á fundinum.
Hafnarstjórn þakkar kynninguna.