Hafnarstjórn, fundur 323
10. mars 2025, kl. 16:00 til 17:15, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Heimir Snær Gylfason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 394 liður 7
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 10. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fyrirhugaðar framkvæmdir Loðnuvinnslunnar
Mál 2502033 Allur ferill málsins
Lögð fram minnisblöð frá Sigurði Áss Grétarssyni vegna fyrirhugðra framkvæmda Loðnuvinnslunnar. Ljóst er að fara þarf í endurbætur á Innri og ytri löndunarbryggjum á Fáskrúðsfirði og er sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs falið að afla frekari upplýsinga og gagna.
-
2. Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - MV Sif W
Mál 2503043 Allur ferill málsins
Erindi frá Torcargo ehf. dags. 5. mars 2025 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Igor Sinkevych, skipstjóra á Mv Sif W. Hafnarstjórn samþykkir að umbeðin undanþága verði gefin út þegar öll gögn liggja fyrir.
-
3. Smábátahafnir Fjarðabyggðarhafna
Mál 2503064 Allur ferill málsins
Mál varðandi smábátahafnir Fjarðabyggðarhafna rædd. Ljóst er að fara þarf í dýpkun smábátahafna í Fjarðabyggð og er verkefnastjóra hafna falið að leita frekari upplýsinga um kostnað og framkvæmd og leggja fyrir að nýju.
-
4. Hafnarvog Reyðarfirði
Mál 2503065 Allur ferill málsins
Komið er að viðhaldi hafnarvogarinnar á Reyðarfirði og skoða þarf hvaða möguleikar eru í stöðunni. Hafnarstjórn felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs og verkefnastjóra hafna að afla frekari gagna fyrir fjárhagsáætlunargerð 2026.
-
5. Almenn mál í rekstri Fjarðabyggðarhafna
Mál 2503066 Allur ferill málsins
Almenn umræða um málefni Fjarðabyggðarhafna