Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 322

10. febrúar 2025, kl. 16:00 til 18:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Heimir Snær Gylfason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 883 liður 17

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 10. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 392 liður 4

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 10. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Þróun og framtíðarskipulag Mjóeyrarhafnar

    Mál 2408152 Allur ferill málsins

    Lagðar fram áætlanir í vinnu við framtíðarskipulag Mjóeyrarhafnar. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að semja við EFLU verkfræðistofu um fyrstu tvo áfanga vinnunnar.

  2. 2. Landmótun og landfylling á Mjóeyrarhöfn

    Mál 2501155 Allur ferill málsins

    Málið var lagt fyrir 321. fund hafnarstjórnar. Farið á ný yfir stöðu og áætlun landmótunar og landfyllingar á Mjóeyrarhöfn. Um er að ræða tilraunaverkefni á vegum Fjarðabyggðarhafna og hafnarstjóra er falið að ganga frá samkomulagi vegna framkvæmda vorsins.

  3. 3. Fyrirhugaðar framkvæmdir Loðnuvinnslunnar

    Mál 2502033 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi frá Elís Benedikt Eiríkssyni, verkfræðingi hjá EFLU, fyrir hönd Loðnuvinnslunnar um fyrirhugaðar framkvæmdir fyrirtækisins á athafnasvæði þess á Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn óskar eftir frekari upplýsingum frá Loðnuvinnslunni og felur hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna að funda með forsvarsmönnum fyrirtækisins.

  4. 4. Óveður 1.-6.febrúar 2025 - Áhrif á hafnir

    Mál 2502036 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðuna á Fjarðabyggðarhöfnum eftir óveður sem gekk yfir laugardaginn 1.febrúar annars vegar og miðvikudaginn 5.febrúar til fimmtudagsins 6.febrúar hins vegar. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að fara yfir tryggingamál og þau verkefni sem þarf að leysa eftir óveðrið.

  5. 5. Vöktun í Fjarðabyggðarhöfnum

    Mál 2501146 Allur ferill málsins

    Farið yfir málin varðandi hafnarvernd í Fjarðabyggðarhöfnum og fyrirliggjandi breytingar í vöktun erlendra farmskipa sem til hafnar koma. Hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna er falið að funda með þeim hagsmunaaðilum sem málið varðar.

  6. 6. Hafnarsvæði Mjóafjarðarhafnar

    Mál 2502061 Allur ferill málsins

    Farið yfir málin varðandi hafnarsvæðið í Mjóafirði, öryggismál, viðhaldsþörf hafnarmannvirkja og húsnæðismál. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að vinna að úrbótum í öryggismálum á bryggjunni, skoða viðhaldsmál og leggja fyrir að nýju.

  7. 7. Ný þjónustumiðstöð - Norðfjörður

    Mál 2006157 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðuna á lóð og frágangi nýrrar þjónustumiðstöðvar og hafnarhúss á Norðfirði. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að ganga frá skipulagi lóðar og frágangi utanhúss.

  8. 8. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2024

    Mál 2402027 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 468.fundar Hafnasambands Íslands.

  9. 9. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2025

    Mál 2502023 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 469.fundar Hafnasambands Íslands.