Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 32

30. apríl 2025, kl. 16:15 til 17:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 893 liður 14

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 30. apríl lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 396 liður 6

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 31 og 32 utan liðar 3 í fundargerð nr. 31 eru teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Engin tók til máls.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 30. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Óv.dsk breyting á miðbæjarskipulagi Neskaupstaðar Egilsbraut 22 og Egilsbraut 26

    Mál 2501005 Allur ferill málsins

    Grenndarkynningu lokið við vegna óverulegrar breytingar á miðbæjarskipulagi Neskaupstaðar við Egilsbraut 22 og 26. Engar athugasemdir bárust. Skipulags- og framkvæmdarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.

  2. 2. Óveruleg breyting á deiliskipulagi Dalbraut 1

    Mál 2504155 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Dalbraut 1, Eskifirði. Um er að ræða breytingu á skipulagsmörkum í tengslum við óverulega breytingu á deiliskipulagi Leirubakka og Bleiksá. Skipulags- og framkvæmd samþykkir breytinguna fyrir sitt leyti. Ekki er talið að hún hafi grenndaráhrif svo henni er vísað til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.

  3. 3. Óverulega breytingu á deiliskipulagi deiliskipulag Eskifjarðar miðbær vegna stækkunar lóðar að Strandgötu 46c

    Mál 2409052 Allur ferill málsins

    Óverulega breytingu á deiliskipulagi Eskifjarðar miðbær vegna stækkunar lóðar að Strandgötu 46c. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að kalla eftir uppdrætti að óverulegri breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Eskifjarðar.

  4. 4. Framkvæmdaleyfi fornminjar á Stöðvarfirði

    Mál 2504111 Allur ferill málsins

    Framkvæmdaleyfi fornminjar á Stöðvarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  5. 5. Umsókn um lóð Sólbakki 1 bílskúr

    Mál 2504140 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð að Sólbakka 1, Norðfirði fyrir bílskúra. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti úthlutun lóðarinnar og kallar eftir uppdrætti af óverulegri breytingu á deiliskipulagi Bakkar 3.

  6. 6. Fyrirspurn um leyfi frá sveitarfélaginu Fjarðabyggð um að mæla losun gróðurhúsalofttegunda auk fleiri tengdra þátta á Hólmum, jörð eigu sveitarfélagsins í Reyðarfirði

    Mál 2504178 Allur ferill málsins

    Fyrirspurn um leyfi frá sveitarfélaginu Fjarðabyggð um að mæla losun gróðurhúsalofttegunda auk fleiri tengdra þátta á Hólmum, jörð eigu sveitarfélagsins í Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugasemd við að mælingar fari fram næstu 3 árin og felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að upplýsa Land og skóg.

  7. 7. Græn svæði í þéttbýli

    Mál 2504191 Allur ferill málsins

    Græn svæði í þéttbýli. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar erindið.

  8. 8. Umsagnarbeiðni v Kerfisáætlun 2025-2034 máls nr. 05092025

    Mál 2504120 Allur ferill málsins

    Í kerfisáætlun fjallar Landsnet um hvernig skuli þróa og endurnýja flutningskerfi raforku. Kerfisáætlun er ætlað að tryggja að vel sé staðið að þróun flutningskerfisins, ákvarðanatakan byggi á bestu tiltæku þekkingu og sé opin og aðgengileg hagaðilum. Við gerð kerfisáætlunar er lagt mat á þróun flutnings og notkunar raforku, þróun markaða og annarra þátta sem geta haft áhrif á raforkukerfið. Gegnum kerfisáætlun geta orkufyrirtæki, notendur, sveitarfélög og aðrir hagaðilar fengið upplýsingar um hvaða framkvæmdir eru á döfinni, hvers vegna þær hafi verið settar í forgang og hvernig þær muni hafa áhrif á afhendingargetu og gæði raforkukerfisins.

    Kerfisáætlun er endurnýjuð annað hvort ár. Hún er kynnt og að lokum rýnd og samþykkt af Raforkueftirlitinu. Kerfisáætlunin fer í gegnum tvöfalt umsagnarferli: fyrst opið umsagnarferli þar sem öllum áhugasömum gefst kostur á að senda inn athugasemdir og síðan lokað umsagnarferli þar sem viðskiptavinir, núverandi og verðandi, geta sent inn athugasemdir.

    Opna umsagnarferlið er frá 9. apríl til 31. maí. Aðalmarkhópur þessa samráðs eru Samband íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitarfélaga og þau sveitarfélög sem kunna að þurfa að gera breytingar á skipulagsáætlunum sínum vegna kerfisáætlunar. Þetta samráð er samkvæmt 2. gr reglugerðar um kerfisáætlun um uppbyggingu flutningskerfi raforku nr. 870/2016 og lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.

    Á kynningartímabilinu verða haldnir opnir kynningarfundir víða um land. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Landsnets: https://landsnet.is/kerfisaaetlun/.

    Skipulags- og framkvæmdanefnd vísar erindinu í bæjarráð og ítrekar mikilvægi orkuöryggis á austurlandi.

  9. 9. Jarðhiti jafnar leikinn - Styrkir til nýtingar og leitar á jarðhita

    Mál 2503223 Allur ferill málsins

    Jarðhitaleit í Fjarðabyggð. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að vinna langtímaáætlun er varðar jarðhitaleit í Fjarðabyggð.

  10. 10. Ósk um stækkun á lóð Hjallaleira 21

    Mál 2504216 Allur ferill málsins

    Ósk um stækkun lóðar við Hjallaleiru 21, Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu þar til ákvörðun liggur fyrir varðandi stækkun á öðrum lóðum á Hjallaleiru.