Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2025

Umsagnarbeiðni v Kerfisáætlun 2025-2034 máls nr. 05092025

Mál 2504120 Fyrst á dagskrá 30. apríl 2025, síðast 8. maí 2025. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Skipulags- og framkvæmdanefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2025

    Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 32 liður 8

    Í kerfisáætlun fjallar Landsnet um hvernig skuli þróa og endurnýja flutningskerfi raforku. Kerfisáætlun er ætlað að tryggja að vel sé staðið að þróun flutningskerfisins, ákvarðanatakan byggi á bestu tiltæku þekkingu og sé opin og aðgengileg hagaðilum. Við gerð kerfisáætlunar er lagt mat á þróun flutnings og notkunar raforku, þróun markaða og annarra þátta sem geta haft áhrif á raforkukerfið. Gegnum kerfisáætlun geta orkufyrirtæki, notendur, sveitarfélög og aðrir hagaðilar fengið upplýsingar um hvaða framkvæmdir eru á döfinni, hvers vegna þær hafi verið settar í forgang og hvernig þær muni hafa áhrif á afhendingargetu og gæði raforkukerfisins.

    Lesa alla bókunina (138 orð til viðbótar)

    Kerfisáætlun er endurnýjuð annað hvort ár. Hún er kynnt og að lokum rýnd og samþykkt af Raforkueftirlitinu. Kerfisáætlunin fer í gegnum tvöfalt umsagnarferli: fyrst opið umsagnarferli þar sem öllum áhugasömum gefst kostur á að senda inn athugasemdir og síðan lokað umsagnarferli þar sem viðskiptavinir, núverandi og verðandi, geta sent inn athugasemdir.

    Opna umsagnarferlið er frá 9. apríl til 31. maí. Aðalmarkhópur þessa samráðs eru Samband íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitarfélaga og þau sveitarfélög sem kunna að þurfa að gera breytingar á skipulagsáætlunum sínum vegna kerfisáætlunar. Þetta samráð er samkvæmt 2. gr reglugerðar um kerfisáætlun um uppbyggingu flutningskerfi raforku nr. 870/2016 og lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.

    Á kynningartímabilinu verða haldnir opnir kynningarfundir víða um land. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Landsnets: https://landsnet.is/kerfisaaetlun/.

    Skipulags- og framkvæmdanefnd vísar erindinu í bæjarráð og ítrekar mikilvægi orkuöryggis á austurlandi.

  2. Bæjarráð, fundur 893 liður 8

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til bæjarráðs umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar vegna kerfisáætlunar Landsnets um þróun og endurnýjun flutningskerfis raforku.

    Bæjarráð samþykkir að fela bæjarritara að veitt umsögn vegna kerfisáætlunarinnar.

  3. Bæjarráð, fundur 893 liður 14.8

    Fundargerðin „Skipulags- og framkvæmdanefnd - 32“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Bæjarstjórn, fundur 396 liður 4.8

    Fundargerðin „Bæjarráð - 893“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  5. Bæjarstjórn, fundur 396 liður 6.8

    Fundargerðin „Skipulags- og framkvæmdanefnd - 32“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is