Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 33

14. maí 2025, kl. 16:15 til 17:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Benedikt Jónsson, varamaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 895 liður 13

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 14. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 397 liður 3

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 14. maí utan dagskrárliðar 6 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2026

    Mál 2504199 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til kynningar samþykktri tillögu að skipulagi við vinnu fjárhagsáætlunar 2026 ásamt dagsetningum í ferlinu. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og vísar til áfram haldandi vinnu á næsta fundi.

  2. 2. Breyting á deiliskipulagi Nes 1 á Reyðarfirði

    Mál 2505035 Allur ferill málsins

    Minnisblað vegna fyrirhugaðra breytinga á deiliskipulagi Nes 1 á Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda byggingar-, skipulags,- og umhverfisdeildar að vinna málið áfram samkvæmt umræður á fundinum.

  3. 3. Byggingarleyfi breytingar inni Skólavegur 57

    Mál 2505022 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga inni við Skólaveg 57, Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  4. 4. Byggingarleyfi Kirkjuból 2 Bogaskýli

    Mál 2505066 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingarleyfi fyrir bogaskemmu að Kirkjubóli 2, 736 Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  5. 5. Byggingarleyfi Búðareyri 25 - breytt notkun

    Mál 2410182 Allur ferill málsins

    Byggingarleyfi Búðareyri 25 - breytt notkun. Skipulags- og framkvæmdanefnd fellst á tillögu að breytingu á aðalskipulagi með það að markmiði að breyta skilmálum á landnotkunarflokki austan Leiruvogs og norðan Nesbrautar og felur skipulagsfulltrúa að afmarka breytinguna í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir fund að nýju.

  6. 6. Deiliskipulag miðbæjar Reyðarfjarðar Búðargata 3

    Mál 2411122 Allur ferill málsins

    Lagt fram til umræðu minnisblað stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar: Umsagnir og minnisblað við lok auglýsingar. Við kynningu óverulegrar breytingar á deiliskipulagi vegna lóðar á Búðargötu 3 komu fram ábendingar frá sóknarnefnd Reyðarfjarðarkirkju og nokkrum íbúum. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar þessar ábendingar og mun hafa þær til hliðsjónar við áframhaldandi úrvinnslu. Fram komu áhyggjur af aðgengismálum og lýsingu og tekur nefndin undir að það séu mikilvægir þættir sem skoða þarf vel við hönnun húsa, lóða og bílastæða. Nefndin leggur til að sóknarnefnd verði boðið til samtals vegna kirkju og safnaðarheimilis og vill eiga gott samstarf við sóknarnefndina um allar breytingar á svæðinu. Að öðru leyti er vísað til markmiða um byggðarmynstur sem sett eru fram í kafla 3.2.2 í Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040. Þar kemur fram stefna um að beina þjónustu, verslun og íbúðum í miðbæi og byggja inn í eyður þar sem hentar, ásamt viðleitni til að þétta eldri byggð þar sem mögulegt er. Ljóst er að fara þarf varlega og vanda til verka, ekki aðeins vegna nálægðar við kirkju og safnaðarheimili heldur einnig vegna þess að um mikilvægt miðsvæði á Reyðarfirði er að ræða. Mikilvægt er að slík svæði séu nýtt vel og fram komi heilleg og aðlaðandi götumynd. Kirkjunni er mestur sómi sýndur með því að hún sé hluti af fallegum og lifandi miðbæ. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverhverfisdeildar að vinna málið áfram samhliða vinnu við deiliskipulag miðbæjar Reyðarfjarðar.

  7. 7. Umsókn um stækkun á lóð að Þórhólsgötu 1A.

    Mál 2505003 Allur ferill málsins

    Umsókn um stækkun á lóð að Þórhólsgötu 1A. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti fyrirhugaða stækkun á lóð og kallar eftir uppdrætti af óverulegri breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Neskaupstaðar.

  8. 8. Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs ný áætlun 2025

    Mál 2209007 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að svæðisáætlun um úrgangsmál á Austurlandi 2025 til 2035 lögð fram til afgreiðslu í sveitarstjórnum á svæðinu en sex vikna auglýsingaferli Svæðisáætlunarinnar er nú lokið. Tekið hefur verið tillit til þeirra athugasemda sem bárust. Áætlunin fer nú í formlegt samþykktarferli innan sveitarstjórna Austurlands. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaða svæðisáætlun um úrgangsmál á Austurlandi 2025 til 2035 fyrir sitt leiti og vísar erindinu í bæjarráð.

  9. 9. Könnun um stöðu loftslagsmála hjá sveitarfélögum

    Mál 2504218 Allur ferill málsins

    Framlögð könnun um stöðu loftslagsmála hjá sveitarfélögum. Óskað er eftir að hvert sveitarfélag svari könnuninni einu sinni. Niðurstöður könnunarinnar verða teknar heildrænt saman yfir landið en ekki eftir sveitarfélögum. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að svarar könnun.

  10. 10. Skipulagsdagurinn 2025

    Mál 2504237 Allur ferill málsins

    Skipulagsdagurinn 2025. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar boðið.