Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 34

28. maí 2025, kl. 16:15 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Benedikt Jónsson, varamaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 897 liður 9

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar 28. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 398 liður 3

    Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 28. maí staðfest með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Byggingarleyfi Skuggahlíðarháls E11

    Mál 2505130 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingarleyfi fyrir sumarbústað við lóð E11, Skuggahlíðarhálsi. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  2. 2. Byggingarleyfi Hafnargata 1 viðbygging Fásk

    Mál 2505162 Allur ferill málsins

    Umsókn Loðnuvinnslunar um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Hafnargötu 1, Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  3. 3. Byggingarleyfi Blómsturvellir 31

    Mál 2505144 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishús við Blómsturvelli 31, Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnenda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að grenndarkynna byggingaráformin og leggja fyrir fund að nýju.

  4. 4. Byggingarheimild niðurrif Mýrargata 8

    Mál 2505180 Allur ferill málsins

    Byggingarheimild niðurrif Mýrargata 8. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarheimild til niðurrifs þegar öllum tilteknum gögnum hefur verið skilað.

  5. 5. Byggingarheimild niðurrif Strandgata 62 Norðfirði

    Mál 2505179 Allur ferill málsins

    Byggingarheimild niðurrif Strandgata 62, Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarheimild til niðurrifs þegar öllum tilteknum gögnum hefur verið skilað.

  6. 6. Deiliskipulag efri byggð Stöðvarfjarðar

    Mál 2302013 Allur ferill málsins

    Deiliskipulag efri byggð Stöðvarfjarðar lokið auglýsingu og svör við athugasemdum. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og felur skipulagsfulltrúa að svara athugasemdum. Málinu er vísað til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.

  7. 7. Fjarskiptamastur Fárskrúðsfirði

    Mál 2503147 Allur ferill málsins

    Fjarskiptamastur Fárskrúðsfirði. Niðurstaða grenndarkynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhuguð áform um uppsetningu fjarskiptamasturs og vísar málinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn. Stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar er falið að svara umsagnaraðilum.

  8. 8. Óveruleg breyting á deiliskipulagi Skuggahlíðarháls, frístundabyggð

    Mál 2505133 Allur ferill málsins

    Lögð fram til samþykktar óveruleg breyting á deiliskipulagi Skuggahlíðarháls, frístundabyggð. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti óverulega breytingu á deiliskipulagi. Breytingin er ekki talin hafa grenndaráhrif og vísað til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.

  9. 9. Óveruleg breyting á deiliskipulagi Naust 1 - flugskýli

    Mál 2505137 Allur ferill málsins

    Lögð fram til samþykktar óveruleg breyting á deiliskipulagi Naust 1. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti óverulega breytingu á deiliskipulagi. Breytingin er ekki talin hafa grenndaráhrif og vísað til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn. Jákvæð umsögn Isavia liggur fyrir.

  10. 10. Umsókn í framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2025

    Mál 2409107 Allur ferill málsins

    Farið yfir úthlutanir úr Framkæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2025. Þrír staðir fengu úthlutað í Fjarðabyggð, Bleiksárfoss, Búðarárfoss og Streytishvarf. Farið yfir mögulega fjármögnun á verkefnunum. Skipulags- og framkvæmdanefnd fagnar úthlutunum sem Fjarðabyggð fékk úr Framkæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2025. Nefndin felur sviðstjóra að vinna málið áfram.

  11. 11. Framkvæmdaleyfi Helgustaðanáma þjónstuhús

    Mál 2505021 Allur ferill málsins

    Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir þjónustuhús við Helgustaðanámu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  12. 12. Umsókn um að hafa klæddan gám á íbúðarhúsalóð

    Mál 2411016 Allur ferill málsins

    Mótmæli vegna fyrirhugaðra dagsekta. Vísað er til fyrri ákvörðunar um höfnun umsóknar vegna smáhýsis við Gilsbakka 7. Skipulags- og framkvæmdanefnd bendir á að fjarlægðarmörk nást ekki. Nefndin bendir einnig á að byggingarreglugerð fjallar sérstaklega um gáma og ekki er til staðar fordæmi sem skýra það að gámar geti, þrátt fyrir breytingar, talist smáhýsi. Nefndin telur mikilvægt að stefna að samræmi varðandi fyrirkomulag smáhýsa þar sem gætt sé að kröfum reglugerðar. Staðfest er ákvörðun um að fjarlægja beri gám af lóðinni Gilsbakki 7. Upphaf dagsekta, að fjárhæð kr. 20.000, miðast við 9. júní. 2025.

  13. 13. Umsókn um lóð fyrir flugskýli á Norðfirði

    Mál 2412155 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð fyrir flugskýli á Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir lóðarúthlutun með fyrirvara um óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu í bæjarráð.

  14. 14. Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2026

    Mál 2505170 Allur ferill málsins

    Umræða um starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdasviðs fyrir árið 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að vinna málið áfram.

  15. 15. Framkvæmdaleyfi Leirubakki Eskifirði

    Mál 2505116 Allur ferill málsins

    Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna lagningu veitulagna og gatnagerð á nýju hafnarsvæði Eskifjarðar við Leirubakka. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  16. 16. Beiðni um styrk til strandblaksvallar í Reyðarfirði

    Mál 2504001 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi vegna strandblakvallar á Reyðarfirði. Staðsetning á íþróttasvæðinu á Reyðarfirði er samþykkt af hálfu forvígismanna. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti staðsetningu strandblakvallarins og vísar staðsetningu til skipulags- og framkvæmdanefndar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaða staðsetningu.

  17. 17. Húsnæði Nesskóla 2025

    Mál 2505069 Allur ferill málsins

    Erindinu vísað frá fjölskyldunefnd til skipulags- og framkvæmdanefndar.

    Bókun fjölskyldunefndar:Lagt fram erindi frá starfsmönnum Nesskóla varðandi húsnæði skólans og þrengsla vegna þess að ekki er hægt að nýta fyrri aðstöðu tónlistarskóla. Verið er að vinna að því að meta ástand húsnæðisins í tengslum við fjárhagsáætlunargerð 2026. Fjölskyldunefnd vísar erindinu til áframhaldandi vinnu innan skipulags- og framkvæmdasviðs og starfshópi um nýtingu mannvirkja í rekstri Fjarðabyggðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að vinna málið áfram.

  18. 18. Öldugata 6 - Niðurrif Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2402216 Allur ferill málsins

    Öldugata 8 - Endurnýjun á niðurrifsheimild. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að endurnýja niðurrifsheimildina þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  19. 19. Óveruleg breyting á deiliskipulagi Melur 1

    Mál 2505197 Allur ferill málsins

    Óveruleg breyting á deiliskipulagi Melur 1, Reyðarfirði lögð fram til staðfestingar. Grenndarkynningu við Kvíabrekku 1a er lokið. Engar athugugasemdir voru gerðar við fyrirhugaðarframkvæmdir. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leiti óverulega breytingu á deiliskipulagi Melur 1 og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.

  20. 20. Byggingarleyfi Búðarmelur 1

    Mál 2505195 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingarleyfi og niðurstaða grenndarkynningar vegna 4 íbúðar raðhúss við Búðarmel 1, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað og vísar grenndarkynningu til afgreiðslu í bæjarstjórn.