Óveruleg breyting á deiliskipulagi Skuggahlíðarháls, frístundabyggð
Mál 2505133 Fyrst á dagskrá 28. maí 2025, síðast 5. júní 2025. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Skipulags- og framkvæmdanefnd.
Í heiti málsins: Skipulag
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2025
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 34 liður 8
Lögð fram til samþykktar óveruleg breyting á deiliskipulagi Skuggahlíðarháls, frístundabyggð. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti óverulega breytingu á deiliskipulagi. Breytingin er ekki talin hafa grenndaráhrif og vísað til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.
-
Bæjarráð, fundur 897 liður 9.8
Fundargerðin „Skipulags- og framkvæmdanefnd - 34“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 398 liður 8
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar óverulegri breytingu á deiliskipulagi Skuggahlíðarháls, frístundabyggð. Breytingin er ekki talin hafa grenndaráhrif.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 8 atkvæðum óverulega breytingu á deiliskipulagi Skuggahlíðarháls, frístundabyggð.
-
Bæjarstjórn, fundur 398 liður 3.8
Fundargerðin „Skipulags- og framkvæmdanefnd - 34“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.