Bæjarráð, fundur 897
2. júní 2025, kl. 08:30 til 09:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 398 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 2. júní staðfest með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Viljayfirlýsing vegna samstarfs um kyndingu Fjarðabyggðarhallarinnar
Mál 2505188 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að viljayfirlýsingu milli Fjarðabyggar, Tandraorku og Alor vegna kyndingar Fjarðabyggðarhallarinnar.
Bæjarráð samþykki viljayfirlýsinguna.
-
2. Þarfagreining vegna húsnæðisuppbyggingar fyrir 60
Mál 2406138 Allur ferill málsins
Fjallað um þarfagreiningu fyrir húsnæði 60 ára og eldri í Fjarðabyggð. Framlögð drög að spurningarlista til að meta þörf fyrir húsnæðisúrræði fyrir aldurshópinn 60 ára og eldri.
Bæjarráð samþykkir að vísa til öldungaráðs spurningalista sem hluta af þarfagreiningu húsnæðis fyrir 60 ára og eldri.
-
3. Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
Mál 2009034 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað Verkís vegna endurskoðunar á hönnun ofanflóðamannvirkja í Nes- og Bakkagilum á Norðfirði, keiluraðir.
Bæjarráð vísar erindi til skipulags- og framkvæmdanefndar og óskað verði eftir kynningarfundi vegna niðurstöðu endurskoðunarinnar.
-
4. Samstarfssamningur um rannsóknarsetur Gamli skólinn Eskifirði
Mál 2505189 Allur ferill málsins
Fjallað um hlutverk Gamla skólans á Eskifirði og lagt fyrir minnisblað frá Háskóla Íslands um rannsóknarsetur.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir að nýju.
-
5. Umsókn um lóð fyrir flugskýli á Norðfirði
Mál 2412155 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð fyrir flugskýli á Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir lóðarúthlutun með fyrirvara um óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu í bæjarráð.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar með fyrirvara um niðurstöðu breytinga á skipulagi svæðisins.
-
6. Hringferð Sambandsins
Mál 2505196 Allur ferill málsins
Samband íslenskra sveitarfélag hyggst heimsækja Fjarðabyggð þann 19. júní nk. milli 14:30 og 16:00 á Reyðarfirði.
Bæjarráð er boðað til fundar.
-
7. Fiskeldissjóður - umsóknir 2025
Mál 2502013 Allur ferill málsins
Framlögð afgreiðsla Fiskeldissjóðs á umsóknum Fjarðabyggðar en þrjú verkefni fengu styrkveitingar, hvert að fjárhæð 44.840.000 kr. eða alls 134.520.000 kr.
Bæjarráð vísar til skipulags- og framkvæmdasviðs að útfæra framkvæmdir og hrinda þeim í framkvæmd í ljósi niðurstöðu úthlutunar og leggja fyrir skipulags- og framkvæmdanefnd og bæjarráð.
-
8. Fundargerðir - samtaka svf á köldum svæðum 2025
Mál 2501180 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar 81. fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum.
-
9. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 34
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar 28. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 9.1 Byggingarleyfi Skuggahlíðarháls E112505130
- 9.2 Byggingarleyfi Hafnargata 1 viðbygging Fásk2505162
- 9.3 Byggingarleyfi Blómsturvellir 312505144
- 9.4 Byggingarheimild niðurrif Mýrargata 82505180
- 9.5 Byggingarheimild niðurrif Strandgata 62 Norðfirði2505179
- 9.6 Deiliskipulag efri byggð Stöðvarfjarðar2302013
- 9.7 Fjarskiptamastur Fárskrúðsfirði2503147
- 9.8 Óveruleg breyting á deiliskipulagi Skuggahlíðarháls, frístundabyggð2505133
- 9.9 Óveruleg breyting á deiliskipulagi Naust 1 - flugskýli2505137
- 9.10 Umsókn í framkvæmdasjóð ferðamannastaða 20252409107
- 9.11 Framkvæmdaleyfi Helgustaðanáma þjónstuhús2505021
- 9.12 Umsókn um að hafa klæddan gám á íbúðarhúsalóð2411016
- 9.13 Umsókn um lóð fyrir flugskýli á Norðfirði2412155
- 9.14 Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 20262505170
- 9.15 Framkvæmdaleyfi Leirubakki Eskifirði2505116
- 9.16 Beiðni um styrk til strandblaksvallar í Reyðarfirði2504001
- 9.17 Húsnæði Nesskóla 20252505069
- 9.18 Öldugata 6 - Niðurrif Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2402216
- 9.19 Óveruleg breyting á deiliskipulagi Melur 12505197
- 9.20 Byggingarleyfi Búðarmelur 12505195
-
10. Stjórn menningarstofu - 18
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 26. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 10.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20262504199
- 10.2 Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 2025 20262409157
- 10.3 Dagskrá gönguvikunnar 20252505089
- 10.4 Útilistaverk á sementstanka2504238
- 10.5 Flutningur muna Safnahússins úr Gylfastöðum2502253
- 10.6 Umsókn um styrk vegna sóknar fyrir valdeflandi listasmiðjur í Fjarðabyggð2505168
- 10.7 Verkefni menningarstofu 20252501084
- 10.8 Leikskólaverkefnið 20252502163
- 10.9 Aðalfundur Landskerfis bókasafna 20252504055
-
11. Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 1
Fundargerð starfshóps um íþróttahúsið á Eskifirði frá 30. maí lögð fram til umfjöllunar og staðfestingar.