Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu

Stjórn menningarstofu, fundur 18

26. maí 2025, kl. 14:00 til 15:10, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
  • Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Árni Pétur Árnason, embættismaður
  • Anna Karen Marinósdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 897 liður 10

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 26. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 398 liður 5

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 26. maí staðfest með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2026

    Mál 2504199 Allur ferill málsins

    Framhaldið vinnu við fjárhagsáætlun 2026. Umræða tekin um forgangsverkefni og framkvæmdir við söfn.

    Stjórn felur bæjarritara að móta tillögur fyrir næsta fund stjórnar vegna fjárhagsáætlunar 2026 í samræmi við umræður á fundum stjórnar um áhersluverkefni næsta árs.

  2. 2. Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 2025 2026

    Mál 2409157 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað verkefnastjóra safna um endurgjaldslaus afnot af söfnum einn dag á hverju tímabili. Umræða tekin um þessi afnot ásamt því að tengja þau við viðburði í söfnum og hvatningu til almennings að nýta söfnin til afþreyingar.

    Stjórn samþykkir að veittur sé afsláttur frá gjaldskrá þannig að hvert safn hafi safnið opið einn dag á endurgjalds sumarið 2025. Hver dagur sé valinn út frá starfsemi hlutaðeigandi safns.

  3. 3. Dagskrá gönguvikunnar 2025

    Mál 2505089 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að dagskrá gönguvikunnar 2025 og ósk frá forráðamönnum hennar um að Íslenska stríðsárasafnið verði opið án endurgjalds fyrir gesti hennar á kvöldvöku.

    Stjórn vísar til samþykkis fyrir endurgjaldslausum degi en að auki styður safnið við dagskrá gönguvikunnar með því að hafa opnun án endurgjalds meðan á kvöldvökunni á Reyðarfirði stendur.

  4. 4. Útilistaverk á sementstanka

    Mál 2504238 Allur ferill málsins

    Tekið fyrir að nýju umfjöllun um útilistaverk á sementstanka við Ægisgötu á Reyðarfirði og hugmyndir listamanna. Stjórn fól forstöumanni að vinna að málinu ásamt verkefnastjóra.

    Eigendur hafa veitt leyfi sitt fyrir uppsetningu á verkinu og gert er ráð fyrir að vinna við framkvæmdina hefjist í júní og verði lokið fyrir mánaðarmótin júní júlí. Bæjarritara falið að ganga frá samkomulagi við listamanninn um verkið.

  5. 5. Flutningur muna Safnahússins úr Gylfastöðum

    Mál 2502253 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar drög að minnisblaði um flutningi muna úr Strandgötu 62 á Norðfirði yfir í Hafnarbraut 4 sjávarmegin. Búið er að fara yfir framkvæmdina með sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs.

    Stjórn felur verkefnastjóra safna og bæjarritara að vinna á skipulagningu með skipulags- og framkvæmdasviði og flutningum safnmuna.

  6. 6. Umsókn um styrk vegna sóknar fyrir valdeflandi listasmiðjur í Fjarðabyggð

    Mál 2505168 Allur ferill málsins

    Barnamenningarsjóður hefur veitt styrkt að fjárhæð 1.835.000 kr. til listasmiðja Menningarstofu en sótt var um styrk til þeirra.

    Stjórn fagnar því að fengist hafi styrkur til listasmiðjanna og þakkar veittan styrk.

  7. 7. Verkefni menningarstofu 2025

    Mál 2501084 Allur ferill málsins

    Framlögð skýrsla menningarstofu um framvindu verkefna síðust mánaða ásamt því sem framundan er. Verkefnastjóri menningarmála fylgdi greinargerð úr hlaði.

    Stjórn þakkar greinargóða lýsingu verkefna og fagnar góðri framvindu í menningarlífinu.

  8. 8. Leikskólaverkefnið 2025

    Mál 2502163 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar greinargerð um verkefnið leikur að orðum sem haldið var í vor og leikskólar Fjarðabyggðar og Múlaþings tóku þátt í verkefninu og voru nemar skólanna flytjendur.

    Stjórn lýsir yfir mikill ánægju með verkefnið og þakkar starfsmönnum umhald og skipulagningu þess og hvetur til þess að verkefnið verði árviss viðburður.

  9. 9. Aðalfundur Landskerfis bókasafna 2025

    Mál 2504055 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Landskerfis bókasafna ásamt skýrslur stjórnar þar sem fjallað var gagnasafnskerfið Sarp.