Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu

Stjórn menningarstofu, fundur 17

5. maí 2025, kl. 14:00 til 15:40, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
  • Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, embættismaður
  • Árni Pétur Árnason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 894 liður 11

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 5. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 397 liður 6

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Ragnar Sigurðsson.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 5. júní staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Þjónustusamningur við Sjóminjasafn 2024-2026

    Mál 2503175 Allur ferill málsins

    Sameiginlegur fundur stjórnar með stjórn Sjóminjasafns Austurlands. Benedikt Jóhannsson og Jens Garðar Helgason boðuðu forföll. Farið yfir starfsemi safnsins. Tekið fyrir að nýju á næsta fundi.

  2. 2. Viðurkenning safna Fjarðabyggðar

    Mál 2503092 Allur ferill málsins

    Framhaldið umfjöllun um framþróun og viðurkenningu minjasafna Fjarðabyggðar sem stuðlar að eflingu þeirra og faglegu starfi. Tekið upp á næsta stjórnarfundi og vísað í framhaldi til fjárhagsáætlunargerðar. Lögð fram drög að kostnaðaráætlun 2026 til 2030 við framkvæmdina.

    Kynning frá Guðbrandi Benediktssyni frestast til næsta fundar.

  3. 3. Samningur um afnot- og umgengni á safninu Frakkar á Íslandsmiðum endurskoðun

    Mál 2405020 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að uppfærðum samningi við Íslandshótel um samstarf milli Menningarstofu Fjarðabyggðar og hótelsins um rekstur á safninu Frakkar á Íslandsmiðum.

    Stjórnin samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarráðs.

  4. 4. Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins

    Mál 2206071 Allur ferill málsins

    Stjórn fól forstöðumanni ásamt verkefnastjóra safna að móta tillögur að skipulagi sýningarhalds sem falli að áformum um uppbyggingu safnsins og leggja fyrir stjórn. Farið yfir drög að tillögum að hönnun, sýningarstjórn og uppsetningu á yfirfærslu grunnsýningar safnsins á fundinum. Tekið aftur fyrir á næsta fundi.

  5. 5. Útilistaverk á sementstanka

    Mál 2504238 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga um útilistaverk á sementstanka við Ægisgötu á Reyðarfirði og hugmyndir og kostnaðaráætlanir þriggja listamanna ásamt minnisblaði.

    Stjórn lýst vel á hugmynd að verki á sementstanka sem felur forstöumanni að vinna að málinu ásamt verkefnastjóra. Tekið fyrir að nýju á næsta fundi stjórnar.

  6. 6. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2026

    Mál 2504199 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til kynningar samþykktri tillögu að skipulagi við vinnu fjárhagsáætlunar 2026 ásamt dagsetningum í ferlinu.

    Tekið fyrir á næsta fundi stjórnarinnar.

  7. 7. Styrktarsjóður EBÍ 2025

    Mál 2504042 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands þar sem auglýst er eftir styrkumsóknum. Menningarstofu sækir um styrk til endurhönnunar sýningar í Stríðsárasafni.