Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu

Stjórn menningarstofu, fundur 19

16. júní 2025, kl. 14:00 til 15:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
  • Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Árni Pétur Árnason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 900 liður 17

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 16. júní lögð fram til staðfestingar.

    Bæjarráð staðfestir fundargerð með vísan til fullnaðarumboðs sem bæjarstjórn hefur falið bæjarráði.

Dagskrá

  1. 1. Viðurkenning safna Fjarðabyggðar

    Mál 2503092 Allur ferill málsins

    Guðbrandur fór yfir aðdraganda og vinnu við sameiningu safna í Reykjavík sem voru fimm einingar fyrir sameiningu.

    Stjórnin þakkar góða kynningu. Vísað til áframhaldandi umfjöllun um framþróun og viðurkenningu minjasafna Fjarðabyggðar til eflingu þeirra og faglegs starfs.

  2. 2. Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins

    Mál 2206071 Allur ferill málsins

    Tekið fyrir að nýju frá fyrri fundi. Farið yfir fjármögnun og skipulag framkvæmda næstu mánaða. Lagt fram minnisblað um verkefnið. Sviðsstjóri skipulags- og framkvæmdasviðs ásamt fasteignafulltrúa mæta á fund og fóru yfir undirbúning, skipulag og framkvæmd.

    Stjórn felur bæjarritara ásamt formanni að vinna málið áfram með skipulags- og framkvæmdasviði.

  3. 3. Þjónustusamningur við Sjóminjasafn 2024-2026

    Mál 2503175 Allur ferill málsins

    Frá síðasta fundi. Farið yfir áform um framtíð Sjóminjasafns Austurlands og fund.

    Stjórn samþykkir að tilnefna sem fulltrúa í stjórn Sjóminjasafns Austurlands Jón Björn Hákonarson formann stjórnar menningarstofu og Kömmu Dögg Gísladóttur.

  4. 4. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2026

    Mál 2504199 Allur ferill málsins

    Framhaldið umræðu um gerð fjárhagsáætlunar fyrir menningarmálaflokkinn árið 2026.

    Framlagt minnisblað um tillögur að breytingum fyrir næsta fjárhagsár.

    Stjórnin fór yfir forsendur og samþykkir að vísa minnisblaði sem tillögum sínum til fjárhagsáætlunargerðar 2026.

  5. 5. Umsókn um styrk til Stöð í Stöð 2025

    Mál 2503086 Allur ferill málsins

    Framlögð að nýju beiðni frá Stöð í Stöð um aukið framlaga til bæjarhátíðarinnar.

    Stjórn vísar til fyrri samþykktar sinnar um styrkveitingar en felur bæjarritara að fara yfir styrkveitinguna og vera í sambandi við forsvarsmenn hátíðarinnar.