Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu

Stjórn menningarstofu, fundur 20

18. ágúst 2025, kl. 14:00 til 15:50, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
  • Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 908 liður 18

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 18. ágúst framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 401 liður 5

    Fundargerð stjórnar menningarstofu nr. 20 frá 18. ágúst lögð fram til staðfestingar.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson og Arndís Bára Pétursdóttir.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu nr. 20 er staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Verkefni menningarstofu 2025

    Mál 2501084 Allur ferill málsins

    Verkefnastjóri fór yfir verkefni sumarsins hjá menningarstofu og það sem er á döfinni næstu vikur.

    Stjórn þakkar fyrir góða kynningu og starfsmönnum hennar fyrir vel heppnuð verkefni í menningarlífinu í sumar.

  2. 2. Skjalasafn Fjarðabyggðar

    Mál 2409018 Allur ferill málsins

    Framhaldið umræðu um stöðu endurgerðar Lúðvíkshúss og hlutverk þess sem framtíðarskjalasafns Fjarðabyggðar, Skjala- og myndasafns Norðfjarðar og Myndasafns Eskifjarðar. Farið yfir hugmyndir að opnun hússins sem verður á næstu vikum.

  3. 3. Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins

    Mál 2206071 Allur ferill málsins

    Farið yfir tillögur hönnuða að nýju stríðsárasafni.

    Stjórn fagnar þeirri vinnu sem lokið er og tekur málið fyrir að nýju þegar frekari útfærslur liggja fyrir.

  4. 4. Yfirferð og uppsetning fræðsluskilta

    Mál 2506083 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað verkefnastjóra safna um sögu- og myndaskilti sem eru nú þegar í eigu Fjarðabyggðar og hafa staðið í Neskaupstað. Tillaga er um að skiltin verði sett upp víðsvegar um bæinn og óskað verði eftir undirstöðum fyrir myndirnar hjá hafnarsjóði.

    Stjórn lýst vel á hugmyndina og fer þess á leit við Fjarðabyggðahafnir að menningarstofu verði lánaðar undirstöður fyrir myndirnar.

  5. 5. Skipun stjórnar Tónlistarmiðstöðvar

    Mál 2001188 Allur ferill málsins

    Stjórn menningarstofu leggur til breytingar á skipan Tónlistarmiðstöðvar Austurlands.

    Aðalmenn verði Gunnar Jónsson, Jóhann G. Harðarson og Þórhildur Tinna Sigurðardóttir. Varamenn verði Þórður Vilberg Guðmundsson, Árni Pétur Árnason og Anna Marín Þórarinsdóttir.

  6. 6. Bæjarhátíðir í Fjarðbyggð

    Mál 2508067 Allur ferill málsins

    Fjallað um fyrirkomulag styrkveitinga til bæjarhátíða og fjárhæðir til hátíðanna.

    Stjórn tekur málið til umfjöllunar áfram í tengslum við fjárhagsáætlunargerð 2026.

  7. 7. Kynningarfundur nýrrar gjaldskrá Þjóðskjalasafns

    Mál 2506012 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar gögn frá Þjóðskjalasafni vegna breytingar á gjaldskrá safnsins.