Bæjarstjórn, fundur 401
4. september 2025, kl. 16:00 til 17:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Birgir Jónsson, aðalmaður
- Arndís Bára Pétursdóttir, varamaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Sigurjón Rúnarsson, varamaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, 1. varaforseti bæjarstjórnar
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Dagskrá
Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.
-
1. Bæjarráð - 908
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:00:28
Fundargerðir bæjarráðs nr. 908 og 909 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Jóhanna Sigfúsdóttir vakti athygli á vanhæfi sínu varðandi lið 9 í fundargerð 908 og Þuríður Lillý Sigurðardóttir vakti athygli á vanhæfi sínu í lið 10 í sömu fundargerð. Voru þeir liðir því teknir fyrir sérstaklega.
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs nr. 908 og 909 utan liða 9 og 10 í fundargerð 908. eru staðfestar með 9 atkvæðum.
- 1.1 Greinargerð um framkvæmdir ársins2505164
- 1.2 Vatnsveita Stöðvarfjarðar25080350:02:48
- 1.3 Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf fyrir árið 20242508136
- 1.4 Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 20242508137
- 1.5 Áhrif kjarasamninga á launaáætlun 202525031210:03:44
- 1.6 Fjárhagsáætlun 2025 - viðauki 125081440:04:40
- 1.7 Rekstur skíðasvæðisins í Oddsskarði25081450:05:08
- 1.8 Málefni Skólavegar 98-11224080470:07:28
- 1.9 Aðgengismál Lundargötu 425061370:00:28
- 1.10 Ágangsfé í landi Áreyja25080120:01:24
- 1.11 Reglur Fjarðabyggðar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra2508022
- 1.12 Reglur Fjarðabyggðar um stoðþjónustu2508048
- 1.13 Reglur Fjarðabyggðar um notendasamninga2508021
- 1.14 Fjármálaráðstefna 20252508142
- 1.15 Tillaga um flokkun Hamarsvirkjunar í biðflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar25081320:08:52
- 1.16 Tjaldsvæði Norðfjörður 2025 - hönnun og framkvæmdir25061390:11:40
- 1.17 Fjölskyldunefnd - 362508008F
- 1.18 Stjórn menningarstofu - 202508005F
-
2. Bæjarráð - 909
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:14:00
Fundargerðir bæjarráðs nr. 908 og 909 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Jóhanna Sigfúsdóttir vakti athygli á vanhæfi sínu varðandi lið 9 í fundargerð 908 og Þuríður Lillý Sigurðardóttir vakti athygli á vanhæfi sínu í lið 10 í sömu fundargerð. Voru þeir liðir því teknir fyrir sérstaklega.
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs nr. 908 og 909 utan liða 9 og 10 í fundargerð 908. eru staðfestar með 9 atkvæðum.
- 2.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 202625041990:14:00
- 2.2 Umsókn um stofnframlög á árinu 202525020290:14:28
- 2.3 Rekstur skíðasvæðisins í Oddsskarði2508145
- 2.4 Verkefnið Sterkur Stöðvarfjörður22111080:24:44
- 2.5 Skýring málefna Golfklúbbs Eskifjarðar2508026
- 2.6 Landamerkjamál Stuðla2309243
- 2.7 Hjólarampar á Reyðarfjörð25081590:15:24
- 2.8 Samstarf í öldrunarmálum milli Fjarðabyggðar og Heilbrigðisstofnunar25070190:16:20
- 2.9 Samningur við Píeta samtökin25011560:17:44
- 2.10 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 392508019F
-
3. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 39
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:34:04
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 39 frá 27. ágúst lögð fram til staðfestingar.
Engin tók til máls.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 39 staðfest með 9 atkvæðum.
- 3.1 Ný heimasíða fyrir Fjarðabyggð 20232303098
- 3.2 Deiliskipulag efri byggð Stöðvarfjarðar2302013
- 3.3 Óveruleg breyting á deiliskipulagi smábátahöfn Bankastræti 52506082
- 3.4 Þórhólsgata 1a óveruleg breyting dsk miðbæjar Neskaupstaðar2508151
- 3.5 Byggingarleyfi Búðargata 52502045
- 3.6 Umsókn um lóð Nesgata 342501148
- 3.7 Umsókn um lóð Víðimýri 15 Norðfjörður2508135
- 3.8 Neðri Skálateigur L158164 uppskipting lands2507056
- 3.9 Villikettir Fjarðabyggð2508028
- 3.10 Umsókn um stöðuleyfi2508055
- 3.11 Umsókn um stöðuleyfi2507064
- 3.12 Forkaupsréttur fasteigna2508036
- 3.13 Fundaáætlun SFN 20252212113
- 3.14 Fiskeldissjóður - umsóknir 20242308085
- 3.15 Streitishvarf - uppbygging ferðamannastaðar2407140
- 3.16 Óveruleg breyting á deiliskipulagi Melur 12505197
-
4. Fjölskyldunefnd - 36
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:34:32
Fundargerð fjölskyldunefndar nr. 36 frá 18. ágúst lögð fram til staðfestingar.
Engin tók til máls.
Fundargerð fjölskyldunefndar nr. 36 er staðfest með 9 atkvæðum.
- 4.1 Húsnæði Nesskóla 20252505069
- 4.2 Fundaáætlun fjölskyldunefndar haust 20252508082
- 4.3 Aðalfundur SUM 20252506174
- 4.4 Stofnun undirbúningshóp fyrir stofnun farsældarráðs á Austurlandi2507071
- 4.5 Beiðni um rekstrarstyrk til Þúfunnar áfangaheimili fyrir konur2507085
- 4.6 Reglur Fjarðabyggðar um stoðþjónustu2508048
- 4.7 Reglur Fjarðabyggðar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra2508022
- 4.8 Reglur Fjarðabyggðar um notendasamninga2508021
-
5. Stjórn menningarstofu - 20
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:35:00
Fundargerð stjórnar menningarstofu nr. 20 frá 18. ágúst lögð fram til staðfestingar.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson og Arndís Bára Pétursdóttir.
Fundargerð stjórnar menningarstofu nr. 20 er staðfest með 9 atkvæðum.
- 5.1 Verkefni menningarstofu 202525010840:35:00
- 5.2 Skjalasafn Fjarðabyggðar24090180:37:48
- 5.3 Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins22060710:40:08
- 5.4 Yfirferð og uppsetning fræðsluskilta2506083
- 5.5 Skipun stjórnar Tónlistarmiðstöðvar2001188
- 5.6 Bæjarhátíðir í Fjarðbyggð25080670:41:32
- 5.7 Kynningarfundur nýrrar gjaldskrá Þjóðskjalasafns2506012
-
6. Fjárhagsáætlun 2025 - viðauki 1
Mál 2508144 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:46:40
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir viðauka.
Vísað frá bæjarráð til afgreiðslu bæjarstjórnar viðauka 1 við fjárhagsáætlun ársins 2025.
Viðaukinn felur í sér breytingu á fjárhagsáætlun ársins 2025 vegna áhrifa af kjarasamningum á gildandi launaáætlun fyrir árið 2025.
a)
Úthlutun fjármagns vegna kjarasamninga til deilda í a- og b- hluta að fjárhæð 479,4 m.kr. af sameiginlegum kostnaði, fjárliður 21690.
Breytingar á fjárhagsáætlun ársins 2025 eru að rekstrarniðurstaða a-hluta batnar um 25,3 m.kr. en lækkar um sömu fjárhæð í b-hluta og niðurstaða samstæðunnar er óbreytt.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025.
-
7. Reglur Fjarðabyggðar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra
Mál 2508022 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:49:00
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir drögum að regum um stuðning við börn og fjölskyldur.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar drögum að reglum um stuðning við börn og fjölskyldur.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum reglur um stuðning við börn og fjölskyldur.
-
8. Reglur Fjarðabyggðar um stoðþjónustu
Mál 2508048 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:49:28
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir reglum um stoðþjónustu.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar drögum að reglum um stoðþjónustu.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum reglur um stoðþjónustu.
-
9. Reglur Fjarðabyggðar um notendasamninga
Mál 2508021 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:50:24
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir drögum að reglum um notendasamninga.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar drögum að reglum um notendasamninga.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum reglur um notendasamninga.
-
10. Deiliskipulag efri byggð Stöðvarfjarðar
Mál 2302013 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:50:52
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir uppfærðu deiliskipulagi.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar uppfærðri greinagerð vegna deiliskipulags efri byggðar á Stöðvarfirði í samræmi við umsögn Minjastofnunar. Bæjarstjórn staðfesti skipulagið áður á fundi sínum 5. júní 2025.
Enginn tók til máls
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum deiliskipulag efri byggðar á Stöðvarfirði.
-
11. Grenndarkynning vegna Blómsturvalla 31
Mál 2505144 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir staðfestingu grenndarkynningar
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til staðfestingar bæjarstjórnar grenndarkynningu vegna Blómsturvalla 31 Norðfirði. Engar athugugasemdir voru gerðar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum grenndarkynningu vegna Blómsturvalla 31.
-
12. Grenndarkynning vegna Kvíabrekkur 1a
Mál 2505197 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:51:20
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir staðfestingu grenndarkynningar
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til staðfestingar bæjarstjórnar grenndarkynningu vegna óverulegrar breytingu á deiliskipulaginu Melur 1 á Reyðarfirði vegna Kvíabrekku 1a. Engar athugugasemdir voru gerðar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum grenndarkynningu og óverulega breytingu á deiliskipulaginu.
-
13. Óveruleg breyting á deiliskipulagi smábátahöfn Bankastræti 5
Mál 2506082 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:51:48
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir óverulegri breytingu á deiliskipulagi.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til staðfestingar bæjarstjórnar óverulegri breyting á deiliskipulagi smábátahafnar að Bankastræti 5 á Stöðvarfirði. Breyting er ekki talin hafa grenndaráhrif.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum óverulega breytingu á deiliskipulagi smábátahafnar á Stöðvarfirði.
-
14. Óveruleg breyting deiliskipulags miðbæjar Neskaupstaðar
Mál 2508151 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:52:16
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir óverulegri breytingu á deiliskipulagi.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til staðfestingar bæjarstjórnar óverulegri breytingu deiliskipulags miðbæjar Neskaupstaðar vegna Þórhólsgötu 1a . Breyting er ekki talin hafa grenndaráhrif.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar í Neskaupstað.