Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 36

18. ágúst 2025, kl. 16:15 til 18:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Birgir Jónsson, varaformaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Helga Rakel Arnardóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 908 liður 17

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 18. ágúst framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 401 liður 4

    Fundargerð fjölskyldunefndar nr. 36 frá 18. ágúst lögð fram til staðfestingar.

    Engin tók til máls.

    Fundargerð fjölskyldunefndar nr. 36 er staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Húsnæði Nesskóla 2025

    Mál 2505069 Allur ferill málsins

    Vegna lokunar húsnæðis tónlistarskólans hefur þrengt að frístundastarfinu í Vinaseli, starfi tónlistarskólans (frá 2024) og starfi Nesskóla.

    Fjölskyldunefnd samþykkir að starfsemi frístundaheimilisins Vinasels verði flutt tímabundið í Matthíasarborg á leikskólanum Eyrarvöllum á meðan unnið er að varanlegri lausn húsnæðismála í Nesskóla.

    Fulltrúi Fjarðalistans situr hjá og leggur fram eftirfarandi bókun: Fjarðalistinn skilur aðstæður og nauðsyn þess að bregðast við húsnæðisvanda Nesskóla, en telur aðra valkosti ekki hafa verið skoðaða nægilega. Fjarðalistinn telur frekari gögn vanta til að taka endanlega afstöðu og situr því hjá við afgreiðslu málsins.

  2. 2. Fundaáætlun fjölskyldunefndar haust 2025

    Mál 2508082 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að fundaáætlun fjölskyldunefndar fyrir haustið 2025. Fjölskyldunefnd samþykkir framlagða fundaáætlun.

  3. 3. Aðalfundur SUM 2025

    Mál 2506174 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar SUM lögð fram til kynningar.

  4. 4. Stofnun undirbúningshóp fyrir stofnun farsældarráðs á Austurlandi

    Mál 2507071 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd tilnefnir Líneik Önnu Sævarsdóttur og Bergeyju Stefánsdóttur í undirbúningshóp fyrir stofnun farsældarráðs á Austurlandi.

  5. 5. Beiðni um rekstrarstyrk til Þúfunnar áfangaheimili fyrir konur

    Mál 2507085 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd getur því miður ekki samþykkt styrkbeiðnina að svo stöddu þar sem fjárheimild fyrir styrktarfé er fullnýtt.

  6. 6. Reglur Fjarðabyggðar um stoðþjónustu

    Mál 2508048 Allur ferill málsins

    Lagðar fram reglur um stoðþjónustu í Fjarðabyggð skv. ábendingum sem fram komu í frumkvæðisathugun Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála. Fjölskyldunefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til samþykktar í bæjarstjórn.

  7. 7. Reglur Fjarðabyggðar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra

    Mál 2508022 Allur ferill málsins

    Lögð er fram tillaga að reglum um stuðning við börn og fjölskyldur í Fjarðabyggð skv. ábendingum sem fram komu í frumkvæðisathugun Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála. Fjölskyldunefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til samþykktar í bæjarstjórn. Samhliða samþykkt í bæjarstjórn falla reglur um þjónustu stuðningsfjölskyldna fyrir fötluð börn úr gildi.

  8. 8. Reglur Fjarðabyggðar um notendasamninga

    Mál 2508021 Allur ferill málsins

    Lögð er fram tillaga að reglum um notendasamninga í Fjarðabyggð skv. ábendingum sem fram komu í frumkvæðisathugun Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála. Fjölskyldunefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til samþykktar í bæjarstjórn. Samhliða samþykkt í bæjarstjórn falla reglur um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk úr gildi.