Fjölskyldunefnd, fundur 37
1. september 2025, kl. 16:15 til 18:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Birgir Jónsson, varaformaður
- Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
- Líneik Anna Sævarsdóttir
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 910 liður 14
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 1. september lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 402 liður 4
Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Enginn tók til máls.
Fundgerð fjöldkyldunefndar frá 1. september staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Farsældarráð Austurlands
Mál 2406046 Allur ferill málsins
Nína Hrönn Gunnarsdóttir kynnir vinnu við og undirbúning farsældaráðs Austurlands.
-
2. Nýr vefur fyrir Fjarðabyggð
Mál 2303098 Allur ferill málsins
Upplýsingafulltrúi kynnir nýja heimasíðu Fjarðabyggðar. Stefnt er að því að setja hana í loftið 9. september næstkomandi.
-
3. Reglur um frístundaheimili í Fjarðabyggð
Mál 2508176 Allur ferill málsins
Uppfærðar reglur um frístundaheimili Fjarðabyggðar lagðar fyrir fjölskyldunefnd. Fjölskyldunefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leiti og vísar áfram til bæjarráðs.
-
4. Samningur við Píeta samtökin
Mál 2501156 Allur ferill málsins
Lagt er fram erindi frá Píeta samtökunum þar sem óskað er eftir endurskoðun samnings vegna aukinnar þarfar og eftirspurnar. Bæjarráð hefur samþykkt að hækka árlegt framlag til Píeta úr 700.000 kr. í 1.500.000 kr. á þessu ári.
-
5. Reglur um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar
Mál 2508172 Allur ferill málsins
Lögð eru fram drög að reglum um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar vegna barnaverndarmála. Fjölskyldunefnd samþykkir þessar reglur fyrir sitt leiti og víum áfram til bæjaráðs.
-
6. Fundaáætlun fjölskyldunefndar haust 2025
Mál 2508082 Allur ferill málsins
Fundaáætlun fjölskyldunefndar haust 2025 lögð fyrir fjölskyldunefnd til samþykktar. Fjölskyldynefnd samþykkir framlagða fundaáætlun.
-
7. Sex mánaða yfirlit fjölskyldusviðs
Mál 2508205 Allur ferill málsins
Sex mánaða rekstraryfirlit Fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar kynnt.