Bæjarráð, fundur 910
8. september 2025, kl. 08:30 til 10:20, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 402 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku Ragnar Sigurðsson og Stefán Þór Eysteinsson.
Fundgerð bæjarráðs frá 9. september staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Úrgangsmál - gerð útboðsgagna
Mál 2505110 Allur ferill málsins
Farið yfir þær fyrirspurnir sem hafa borist í útboði vegna úrgangsmála. Bæjarráð samþykkir breytingar á útboði í samræmi við þær fyrirspurnir og felur verkefnastjóra að koma þeim á framfæri við EFLU.
-
2. Vatnsveita Stöðvarfjarðar
Mál 2508035 Allur ferill málsins
Starfsmenn skipulags- og framkvæmdasviðs fóru yfir stöðu mála og þær aðgerðir sem fara þarf í við vatnsveituna á Stöðvarfirði. Farið var yfir niðurstöður þrýstiprófana og þær framkvæmdir sem nauðsynlegar eru við veituna í haust. Bæjarráð samþykkir að farið verði í framkvæmdir við vatnsveituna og keypt geislatæki fyrir þéttbýli. Skipulags- og framkvæmdasviði falið að hefja vinnu við verkið.
-
3. Dómsmál - Stefna
Mál 2509059 Allur ferill málsins
Fært í trúnaðarmálabók. Bæjarstjóra falið að halda utan um málið í samráði við lögmann sveitarfélagsins.
-
4. Reglur um frístundaheimili í Fjarðabyggð
Mál 2508176 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd vísar reglum Fjarðabyggðar um frístundaheimili til bæjarráðs til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
5. Reglur um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar
Mál 2508172 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að reglum um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar vegna barnaverndarmála.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
6. Lóðamál Fjarðabyggðarhafna
Mál 2506008 Allur ferill málsins
Umræða tekin um lóðamál Fjarðabyggðarhafna.
-
7. Fundur með Rarik
Mál 2509022 Allur ferill málsins
Stjórn Rarik og framkvæmdastjórn óska eftir að hitta bæjarstjóra ásamt fulltrúum Fjarðabyggðar á hádegisfundi þriðjudaginn 23. september.
-
8. Umsögn breytinga á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum
Mál 2509011 Allur ferill málsins
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs Áform um breytingu á lögum nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.
Umsagnarfrestur er til og með 19.09.2025 og er bæjarstjóra falið að skila inn umsögn vegna málsins.
-
9. Ályktanir aðalfundar NAUST 2025
Mál 2509012 Allur ferill málsins
Framlagðar ályktanir frá Náttúrverndarsamtökum Austurlands til kynningar.
-
10. Bakhópar Sambands íslenskra sveitarfélga í umhverfismálum
Mál 2509057 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur frá sambandi Íslenskra sveitarfélaga þar sem óskað er eftir tilnefningum Fjarðabyggðar í bakhópa sambandsins vegna úrgangsmála og hringrásarhagkerfis og annan um loftslagsmál. Fulltrúar Fjarðabyggðar verða Aron Leví Beck (Úrgangsmál og hringrásarhagkerfis) og Birgitta Rúnardóttir (Loftslagsmál).
-
11. Sameiginlegur fundur sveitarstjórna Fjarðabyggðar og Fljótsdalshrepps
Mál 2406069 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fundargerð frá sameiginlegum fundi bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og sveitarstjórnar Fljótsdalshrepps frá 29. ágúst sl.
-
12. Fundargerðir - samtaka svf á köldum svæðum 2025
Mál 2501180 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum nr. 87.
-
13. Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026
Mál 2205170 Allur ferill málsins
Breyting á nefndarskipan Framsóknarflokks 2022 - 2026.
Jón Kristinn Arngrímsson er tilnefndur sem varamaður í hafnarstjórn í stað Árna Björns Guðmundssonar.
-
14. Fjölskyldunefnd - 37
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 1. september lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 14.1 Farsældarráð Austurlands2406046
- 14.2 Nýr vefur fyrir Fjarðabyggð2303098
- 14.3 Reglur um frístundaheimili í Fjarðabyggð2508176
- 14.4 Samningur við Píeta samtökin2501156
- 14.5 Reglur um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar2508172
- 14.6 Fundaáætlun fjölskyldunefndar haust 20252508082
- 14.7 Sex mánaða yfirlit fjölskyldusviðs2508205