Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 909

1. september 2025, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 401 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 908 og 909 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Jóhanna Sigfúsdóttir vakti athygli á vanhæfi sínu varðandi lið 9 í fundargerð 908 og Þuríður Lillý Sigurðardóttir vakti athygli á vanhæfi sínu í lið 10 í sömu fundargerð. Voru þeir liðir því teknir fyrir sérstaklega.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 908 og 909 utan liða 9 og 10 í fundargerð 908. eru staðfestar með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2026

    Mál 2504199 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að fjárhagsrömmum fyrir árið 2026 fyrir stofnanir og deildir Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð samþykkir rammana og vísar þeim til umfjöllunar og vinnslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026 hjá nefndum sveitarfélagsins.

  2. 2. Umsókn um stofnframlög á árinu 2025

    Mál 2502029 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um staðfestingu stofnframlaga vegna byggingu fimm íbúða.

    Bæjarráð samþykkir að veita stofnframlög til fimm íbúða í gegnum Brák íbúðafélag.

  3. 3. Rekstur skíðasvæðisins í Oddsskarði

    Mál 2508145 Allur ferill málsins

    Vísað frá fundi bæjarráðs málefnum skíðasvæðisins í Oddsskarði.

    Bæjarráð samþykkir að farið verið í viðhald á toppmastri í Skíðasvæðinu í Oddsskarði.

    Framkvæmdasviði falið umhald verksins, bæjarráð leggur áherslu á að aflað verði tilboða í verkið og því lokið sem fyrst á sem hagkvæmastan hátt í samræmi við það kostnaðarmat sem fyrir liggur.

    Kostnaði við verkið verður vísað til viðaukagerðar við fjárhagsáætlun 2025.

  4. 4. Verkefnið Sterkur Stöðvarfjörður

    Mál 2211108 Allur ferill málsins

    Farið yfir málefni Sterks Stöðvarfjarðar með verkefnastjóra verkefnisins.

  5. 5. Skýring málefna Golfklúbbs Eskifjarðar

    Mál 2508026 Allur ferill málsins

    Farið yfir málefni Golfklúbbs Eskifjarðar.

    Bæjarráð felur bæjarritara að svara erindi bréfritara.

  6. 6. Landamerkjamál Stuðla

    Mál 2309243 Allur ferill málsins

    Fjallað um málshöfðun eigenda Stuðla vegna landamerkja Móa, Seljateigshjáleigu, Seljateigs. Lögð fram til afgreiðslu dómsátt í málinu sem lögð verður fyrir Héraðsdóm Austurlands mánudaginn 1. september 2025.

    Bæjarráð samþykkir tillögu að dómsátt og felur lögmanni sveitarfélagsins að ganga frá sáttinni fyrir hönd Fjarðabyggðar.

  7. 7. Hjólarampar á Reyðarfjörð

    Mál 2508159 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Ísarr Leví um hugmynd af hjólarömpum á Reyðarfirði.

    Bæjarráð vísar erindi til ungmennaráðs og felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.

  8. 8. Samstarf í öldrunarmálum milli Fjarðabyggðar og Heilbrigðisstofnunar

    Mál 2507019 Allur ferill málsins

    Farið yfir framvindu í viðræðum við Heilbrigðisstofnun Austurlands um viljayfirlýsingu um þjónustu við eldra fólk.

  9. 9. Samningur við Píeta samtökin

    Mál 2501156 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir að hækka árlegt framlag til Píeta úr 700.000 kr. í 1.500.000 kr á árinu 2025. Bæjarráð er sammála um hækkunina og þakkar Píeta fyrir gott og þarft starf í Fjarðabyggð til að mæta sérstökum aðstæðum; jafnframt eru íbúar hvattir til að nýta þjónustu samtakanna ef þurfa þykir. Samstarf Fjarðabyggðar og Píeta hófst fyrr á þessu ári og hefur gefið góða raun og felur í sér fasta viðveru og reglubundna þjónustu í sveitarfélaginu.

    Kostnaður vegna viðbótarinnar verður fjármögnuð af liðnum óráðstafað.

  10. 10. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 39

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 27. ágúst lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 10.1 Ný heimasíða fyrir Fjarðabyggð 20232303098
    2. 10.2 Deiliskipulag efri byggð Stöðvarfjarðar2302013
    3. 10.3 Óveruleg breyting á deiliskipulagi smábátahöfn Bankastræti 52506082
    4. 10.4 Þórhólsgata 1a óveruleg breyting dsk miðbæjar Neskaupstaðar2508151
    5. 10.5 Byggingarleyfi Búðargata 52502045
    6. 10.6 Umsókn um lóð Nesgata 342501148
    7. 10.7 Umsókn um lóð Víðimýri 15 Norðfjörður2508135
    8. 10.8 Neðri Skálateigur L158164 uppskipting lands2507056
    9. 10.9 Villikettir Fjarðabyggð2508028
    10. 10.10 Umsókn um stöðuleyfi2508055
    11. 10.11 Umsókn um stöðuleyfi2507064
    12. 10.12 Forkaupsréttur fasteigna2508036
    13. 10.13 Fundaáætlun SFN 20252212113
    14. 10.14 Fiskeldissjóður - umsóknir 20242308085
    15. 10.15 Streitishvarf - uppbygging ferðamannastaðar2407140
    16. 10.16 Óveruleg breyting á deiliskipulagi Melur 12505197