Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 39

27. ágúst 2025, kl. 16:15 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Benedikt Jónsson, varamaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 909 liður 10

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 27. ágúst lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 401 liður 3

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 39 frá 27. ágúst lögð fram til staðfestingar.

    Engin tók til máls.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 39 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ný heimasíða fyrir Fjarðabyggð 2023

    Mál 2303098 Allur ferill málsins

    Upplýsingafulltrúi kemur og kynnir nýja heimasíðu Fjarðabyggðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar upplýsingafulltrúa fyrir kynninguna og líst vel á drög að nýrri heimasíðu.

  2. 2. Deiliskipulag efri byggð Stöðvarfjarðar

    Mál 2302013 Allur ferill málsins

    Uppfærð greinagerð í samræmi við umsögn Minjastofnunar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykktir fyrir sitt leyti skipulagið og vísar því til endanlegrar afgreiðslu í Bæjarstjórn.

  3. 3. Óveruleg breyting á deiliskipulagi smábátahöfn Bankastræti 5

    Mál 2506082 Allur ferill málsins

    Óveruleg breyting á deiliskipulagi smábátahöfn Bankastræti 5. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi og telur hana ekki hafa grenndaráhrif. Málinu vísað til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.

  4. 4. Þórhólsgata 1a óveruleg breyting dsk miðbæjar Neskaupstaðar

    Mál 2508151 Allur ferill málsins

    Þórhólsgata 1a óveruleg breyting dsk miðbæjar Neskaupstaðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti óverulega breytingu á deiliskipulagi, nefndin telur breytinguna ekki hafa grenndaráhrif. Málinu er vísað til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.

  5. 5. Byggingarleyfi Búðargata 5

    Mál 2502045 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingarheimild vegna breytinga innanhúss við Búðargötu 5, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir áformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarheimild þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  6. 6. Umsókn um lóð Nesgata 34

    Mál 2501148 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð og færsla á byggingarreit við Nesgötu 34, Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að ræða við umsækjanda í samræmi við umræður á fundinum.

  7. 7. Umsókn um lóð Víðimýri 15 Norðfjörður

    Mál 2508135 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð Víðimýri 15 Norðfjörður. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir lóðarúthlutunina og vísar erindinu í bæjarráð. Jákvæð umsögn veðurstofu liggur fyrir.

  8. 8. Neðri Skálateigur L158164 uppskipting lands

    Mál 2507056 Allur ferill málsins

    Umsókn um uppskiptingu lands Neðri Skálateig L158164. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir uppskiptingu lands þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  9. 9. Villikettir Fjarðabyggð

    Mál 2508028 Allur ferill málsins

    Endurnýjun samnings við Villiketti. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu til næsta fundar.

  10. 10. Umsókn um stöðuleyfi

    Mál 2508055 Allur ferill málsins

    Umsókn um stöðuleyfi fyrir 40ft gám á gámasvæði Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gera stöðuleyfissamning.

  11. 11. Umsókn um stöðuleyfi

    Mál 2507064 Allur ferill málsins

    Umsókn um stöðuleyfi. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrú að gera stöðuleyfissamning til eins árs.

  12. 12. Forkaupsréttur fasteigna

    Mál 2508036 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til skipulags- og framkvæmdanefndar vinnu við uppfærslu á forkaupsréttarlista Fjarðabyggðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að fara yfir listann, uppfæra og leggja fyrir fund að nýju.

  13. 13. Fundaáætlun SFN 2025

    Mál 2212113 Allur ferill málsins

    Fundaáætlun SFN 2025. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir óbreyttan fundartíma og felur formanni nefndar að setja upp fundaáætlun.

  14. 14. Fiskeldissjóður - umsóknir 2024

    Mál 2308085 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að klæðningu hreinsivirkis, Breiðdalsvík. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða tillögu.

  15. 15. Streitishvarf - uppbygging ferðamannastaðar

    Mál 2407140 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að bílastæði fyrir Streitishvarf. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillöguna

  16. 16. Óveruleg breyting á deiliskipulagi Melur 1

    Mál 2505197 Allur ferill málsins

    Óveruleg breyting á deiliskipulagi Melur 1, Reyðarfirði lögð fram til staðfestingar. Grenndarkynningu við Kvíabrekku 1a er lokið. Engar athugugasemdir voru gerðar við fyrirhugaðarframkvæmdir. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leiti óverulega breytingu á deiliskipulagi Melur 1 og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.