Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 40

10. september 2025, kl. 16:00 til 17:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 911 liður 9

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 10. september tekin til staðfestingar

  • Bæjarstjórn, fundur 402 liður 7

    Enginn tók til máls.

    Fundgerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 10. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2026

    Mál 2505170 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf fjármálastjóra um úthlutun bæjarráðs á fjárhagsramma nefndarinnar fyrir árið 2026. Vísað til áframhaldandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.

  2. 2. Aðalskipulag breyting tjaldsvæði Eskifirði

    Mál 2401199 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga á vinnslustigi um breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 vegna tjaldsvæðis á Eskifirði og nýrrar byggðar í deiliskipulagsáfanganum Dalur 3. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að kynna tillöguna í samræmi við ákvæði 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

  3. 3. Byggingarleyfi viðbygging Mýrargata 21

    Mál 2507028 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Mýrargötu 21. Grenndarkynningu lokið, engar athugasemdir bárust. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað og vísar niðurstöðu grenndarkynningar til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.

  4. 4. Villikettir Fjarðabyggð

    Mál 2508028 Allur ferill málsins

    Drög að nýjum samningi við Villiketti. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir samninginn fyrirvara um lítilsháttar breytingar eftir umræður á fundinum.

  5. 5. Framkvæmdaleyfi grjótvarnir Norðfjarðaá

    Mál 2505078 Allur ferill málsins

    Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir grjótvarnir Norðfjarðaá. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  6. 6. Umsókn um stöðuleyfi

    Mál 2502199 Allur ferill málsins

    Umsókn um stöðuleyfi. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út stöðuleyfissamning til eins árs þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  7. 7. Umhverfisviðurkenning 2025

    Mál 2509024 Allur ferill málsins

    Umhverfisviðurkenning 2025. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu.

  8. 8. Forkaupsréttur fasteigna

    Mál 2508036 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til skipulags- og framkvæmdanefndar vinnu við uppfærslu á forkaupsréttarlista Fjarðabyggðar. Minnisblað stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar lag fram. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillögu að uppfærðum forkaupsréttarlista og vísar erindinu í bæjarráð.

  9. 9. Umsókn um lóð Búðarmelur 31

    Mál 2509074 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð að Búðarmel 31, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir umsóknina og vísar málinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.

  10. 10. Hjólabraut á Norðfirði

    Mál 2509076 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð fyrir hjólabraut á Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að setja sig í samband við umsækjanda.

  11. 11. Framkvæmdaleyfi háspennustrengur frá Ormsstöðum að Glúfraborg

    Mál 2509107 Allur ferill málsins

    Umsókn um háspennustreng frá Ormsstöðum að Glúfraborg. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.