NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 38
14. ágúst 2025, kl. 12:00 til 12:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Ívar Dan Arnarson, varamaður
Starfsmenn
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 907 liður 8
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 14. ágúst lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 400 liður 3
Enginn tók til máls.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 14. ágúst staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Byggingarleyfi Mjöldragari Hafnargata 1 - 750
Mál 2507053 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarheimild fyrir mjöldragara við Hafnargötu 1, Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarheimild þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
2. Byggingarleyfi Blómsturvellir 31
Mál 2505144 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi vegna Blómsturvalla 31 Norðfirði. Grenndarkynningu er lokið og engar athugasemdir bárust. Skipulags- og framkvæmdanefnd vísar niðurstöðu grenndarkynningar í bæjarstjórn og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
3. Byggingarleyfi Bakkabakki 3 viðbygging
Mál 2508023 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarheimild fyrir viðbyggingu við Bakkabakka 3, Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna áformin fyrir Bakkabakka 1, 5 og 7 og leggja fyrir nefnd að nýju.
-
4. Framkvæmdaleyfi ljósleiðari Lönd, Stöðvarfirði
Mál 2508017 Allur ferill málsins
Framkvæmdaleyfi ljósleiðari Lönd, Stöðvarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
5. Umsókn um stöðuleyfi
Mál 2508043 Allur ferill málsins
Umsókn um stöðuleyfi fyrir 40 feta gám á gámasvæði Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir umsókn um stöðuleyfi og felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að gefa út stöðuleyfi.
-
6. Umsókn um stöðuleyfi
Mál 2508044 Allur ferill málsins
Umsókn um stöðuleyfi fyrir 40 feta gám á gámasvæði Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir umsókn um stöðuleyfi og felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að gefa út stöðuleyfi.
-
7. Ársreikningur Fenúr 2024
Mál 2506046 Allur ferill málsins
Ársreikningur Fenúr lagður fram til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.