NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 37
16. júlí 2025, kl. 10:00 til 12:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Elís Pétur Elísson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 904 liður 9
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 16. júlí lögð fram til staðfestingar.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar.
Dagskrá
-
1. Stækkun iðnaðarsvæðis og athafnasvæðis við Hjallaleiru
Mál 2507013 Allur ferill málsins
Lögð fram skipulagslýsing fyrir breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 og breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis Nes 1 á Reyðarfirði, sbr. 30. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Til stendur að stækka austustu lóðirnar í deiliskipulaginu og hnika til lóðarmörkum nokkurra annarra lóða. Einnig verður gert ráð fyrir mön á austurjaðri svæðisins. Því þarf að stækka aðalskipulagsreitina AT-300 og I-300 um u.þ.b. 25 metra til austurs. Vegna áforma um breytta legu þjóðvegar fyrir botni Reyðarfjarðar stendur til að breyta vegtengingu svæðanna við Ægisgötu og færa hana austar.
Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir matslýsinguna fyrir sitt leyti og vísar erindinu til afgreiðslu bæjarráðs í sumarleyfi bæjarstjórnar.
-
2. Óveruleg breyting á deiliskipulagi Strandgata 46c ESK
Mál 2507004 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í stækkun lóðar nr. 46c að Strandgötu á Eskifirði í 1.062 fermetra. Breytingin felur ekki í sér grenndaráhrif gagnvart nágrönnum.
Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar á Eskifirði og vísar staðfestingu til bæjarráðs sem fer með umboð bæjarstjórnar í sumarleyfi.
-
3. Byggingarleyfi Flugskýli Norðfirði
Mál 2506156 Allur ferill málsins
Framlögð umsókn um byggingarheimild vegna flugskýlis, Norðfirði.
Skipulag- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarheimild þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
4. Byggingarleyfi viðbygging Mýrargata 21
Mál 2507028 Allur ferill málsins
Framlögð umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Mýrargötu 21, Norðfirði.
Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna fyrirhugaðar framkvæmdir ásamt því að leita umsagnar Veðurstofu er varða styrkingar vegna ofanflóða og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
5. Umsókn um lóð Hlíðarbrekka 5
Mál 2505031 Allur ferill málsins
Framlögð umsókn um lóðina Hlíðarbrekku 5 á Fáskrúðsfirði.
Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti úthlutun lóðarinnar og vísar umsókninni til afgreiðslu bæjarráðs.
-
6. Umsókn um lóð Hlíðarbrekka 7
Mál 2505032 Allur ferill málsins
Framlögð umsókn um lóðina Hlíðarbrekku 7 á Fáskrúðsfirði.
Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti úthlutun lóðarinnar og vísar umsókninni til afgreiðslu bæjarráðs.
-
7. Seley nýting æðavarps
Mál 2507055 Allur ferill málsins
Framlagt erindi leigutaka æðvarvarps í Seley vegna framlengingar á nýtingu æðavarps í samræmi við ákvæði samnings um þrjú ár.
Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að samningur verði framlengdur til samræmis við ákvæði samnings.
-
8. Æðavarp Hafranesi
Mál 2507054 Allur ferill málsins
Framlagt erindi vegna ágangs hrafns í æðarvarpi og hópsöfnun hans í kringum urðunarstað í Berunesi.
Vísað til sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs til úrbóta.
-
9. Stækkun á kirkjugarðinum á Eskifirði
Mál 2507007 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá Sóknarnefnd Eskifjarðarkirkju vegna stækkunar á kirkjugarðinum á Eskifirði.
Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur vel í erindi sóknarnefndarinnar og felur skipulagsfulltrúa að ræða við fulltrúa hennar og að skoða mögulega deiliskipulagsgerð svæðisins.
-
10. Leikvellir og græn svæði á Neskaupstað
Mál 2506161 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til skipulags- og framkvæmdanefndar bréfi Kvenfélagsins Nönnu vegna leikvalla og grænna svæða á Norðfirði.
Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa ásamt garðyrkjustjóra að skoða svæði í innri hluta Neskaupstaðar sem valkosti til að setja niður leikvöll og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
11. Búðarvegur jarðvinna og lagnir verðkönnun
Mál 2506112 Allur ferill málsins
Lagðar fram niðurstöður verðkönnunar vegna jarðvinnu og lagna vegna Búðarvegs á Fáskrúðsfirði.
Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir niðurstöður verðkönnunar og felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að ganga frá samningi við bjóðanda og felur bæjarstjóra undirritun verksamnings.
-
12. Strandgata jarðvinna og lagnir verðkönnun
Mál 2507050 Allur ferill málsins
Framlögð niðurstaða verðkönnunar vegna jarðvinnu og lagna í Strandgötu í Neskaupstað.
Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að ræða við bjóðanda um verkið og ganga frá samningi um verkið og bæjarstjóra falin undirritun hans.
-
13. Vatnsveitumál í Mjóafirði
Mál 2503205 Allur ferill málsins
Fjallað um rekstur og stöðu vatnsveitu í Mjóafirði.
Skipulags- og framkvæmdanefnd vísar máli til umræðu á næsta fundi nefndarinnar.
-
14. Boð á Umhverfisþing
Mál 2506167 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar boð á umhverfisþing 2025.
Nefndin sendir fulltrúa á þingið.
-
15. Ársskýrsla HAUST 2024
Mál 2507023 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits Austurlands fyrir árið 2024.