NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 36
23. júní 2025, kl. 16:15 til 17:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Birkir Snær Guðjónsson, varamaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 901 liður 13
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 23. júní lögð fram til staðfestingar.
Bæjarráð með fullnaðarumboði bæjarstjórnar samþykkir fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar.
Dagskrá
-
1. Umsókn um styrk - Fráveita Eskifirði
Mál 2503172 Allur ferill málsins
Uppfærð kostnaðaráætlun og framkvæmdaráætlun fyrir hreinsivirki á Leirubakka. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir uppfærða kostnaðaráætlun og felur sviðsstjóra að koma verkinu af stað.
-
2. Einangrun og kynding í Fjarðabyggðarhöllina
Mál 2403230 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðuna á einangrun á þaki Fjarðabyggðarhallarinnar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
-
3. Umsókn um stöðuleyfi
Mál 2506120 Allur ferill málsins
Umsókn um stöðuleyfi fyrir 2 stk 20 feta kaffiaðstöðu/mötuneytis gámum. 6 stk 10 feta verkfæra gámar og 1 stk salernisgám. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út stöðuleyfi.
-
4. Afnot af lóð Hjallaleira 3 bráðarbirgða tjaldsvæði
Mál 2506127 Allur ferill málsins
Afnot að lóð Hjallaleira 3 fyrir bráðabirgða tjaldsvæði vegna harmonikulandsmóts á Reyðarfirði fyrstu helgina í júlí. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir afnot að landi Hjallaleiru 3 meðan á landsmótinu stendur.
-
5. Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
Mál 2009034 Allur ferill málsins
Bráðabirgða tjaldsvæði í Neskaupstað. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða staðsetningu fyrir bráðabirgða tjaldsvæði. Um er að ræða túnið ofan við bakkaveg sem áður hefur verið notað sem bráðabirgða tjaldsvæði.