NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 35
11. júní 2025, kl. 16:15 til 18:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Elís Pétur Elísson, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Benedikt Jónsson, varamaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 899 liður 5
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 11.júní.
Bæjarstjórn, fundur 399 liður 3
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar 11. júní tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
Engin tók til máls.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 11. júní staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Lögbýlisumsókn Blávík
Mál 2503070 Allur ferill málsins
Framlögð endurnýjuð beiðni um umsögn vegna lögbýlisumsóknar. Skipulags- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugasemd við fyrirhuguð áform og felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að gera umsögn.
-
2. Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
Mál 2009034 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til skipulags- og frakvæmdanefndar minnisblaði Verkís vegna endurskoðunar á hönnun ofanflóðamannvirkja í Nes- og Bakkagilum á Norðfirði, keiluraðir. Skipulags- og framkvæmdanefnd lýst vel á tillögu um að fjölga keilum.
-
3. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2025
Mál 2502155 Allur ferill málsins
Fundargerð 185. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands lögð fram til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
-
4. Styrkur til að þróa viðskiptaáætlun og orkuskiptaplan
Mál 2506016 Allur ferill málsins
Styrkur til að þróa viðskiptaáætlun og orkuskiptaplan. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að vera í sambandi við verkefnastjóra Eyglóar.
-
5. Byggingarleyfi Skorrastaðir 3E
Mál 2506018 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi fyrir íbúðarhús við Skorrastaði 3E. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Framkvæmdin er ekki talin hafa grenndaráhrif og erindinu vísað til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.
-
6. Skipulag skógræktar í landinu
Mál 2506037 Allur ferill málsins
Skipulag skógræktar í landinu. Skipualgs- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir kynninguna og tekur undir mikilvægi þess að vernda þurfi íslenska náttúru.
-
7. Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2026
Mál 2505170 Allur ferill málsins
Önnur umræða um starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdasviðs fyrir árið 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar yfirferð sviðstjóra.
-
8. Byggingarleyfi Búðareyri 25 - breytt notkun
Mál 2410182 Allur ferill málsins
Lögð fyrir lýsing og tillaga á vinnslustigi um breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 sem felur í sér breytt ákvæði fyrir reit AT-301 á Reyðarfirði þar sem rýmkaðar eru heimildir fyrir íbúðir og þjónustu á hluta reitsins. Skipulags= og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að kynna gögnin í samræmi við ákvæði skipulagslaga og vísar erindinu í bæjarstjórn.