Bæjarráð, fundur 901
1. júlí 2025, kl. 10:00 til 11:15, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varamaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 400 liður 6
Fundargerð bæjarráðs frá 30. júní.
Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en
bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Dagskrá
-
1. Samstarfssamningur um rannsóknarsetur Gamli skólinn Eskifirði
Mál 2505189 Allur ferill málsins
Framlögð viljayfirlýsing milli Háskóla Íslands, Fjarðabyggðar og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Tilefni hennar er að ákveðið hefur verið að setja á stofn Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Eskifirði í húsnæði Barnaskólans á Eskifirði og mun verða hluti af Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands.
Bæjarráð staðfestir viljayfirlýsinguna og fagnar mikilvægum áfanga ásamt því að þakka samstarfið við ráðuneytið og skrifstofu rektors Háskóla Íslands.
-
2. Notkun á skólphreinsistöð Hreinsitækni hf.
Mál 2506141 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá LMG lögmönnum vegna notkunar á skólphreinsistöð Hreinsitækni við Mjóeyrarhöfn.
Bæjarráð felur sviðstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að hefja viðræður við bréfritara um efni bréfsins.
-
3. Aðgengismál Lundargötu 4
Mál 2506137 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Réttar - Aðalsteinssonar & Partners ehf. vegna aðgengis að fasteigninni að Lundargötu 4, Reyðarfirði, fasteignanúmer F217-7255.
Bæjarráð felur lögmanni sveitarfélagsins að svara erindi bréfritara.
-
4. Forkaupsréttur sveitarfélags á bátnum Austfirðingur 2640
Mál 2506163 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Goðaborgar ehf. þar sem óskað er afstöðu Fjarðabyggðar til að nýta forkaupsrétt að bátnum Austfirðingi 2640 sem Gullrún ehf á Breiðdalsvík er að selja.
Bæjarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt að bátnum Austfirðing 2640.
-
5. Rof á fjarskiptasambandi
Mál 2506166 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fundargerð frá fundi viðbragðsaðila vegna rofs á fjarskiptasambandi á Eskifirði og Norðfirði vegna bilunar í símstöð á Reyðarfirði.
Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir á næsta almannavarnanefndarfundi.
-
6. Framlenging verksamnings
Mál 2506168 Allur ferill málsins
Framlagt erindi UHA Umhverfisþjónustunnar um framlengingu á verksamningi vegna sorpförgunar um þrjú ár.
Bæjarráð samþykkir að framlengja verksamning ekki að svo stöddu.
-
7. Leikvellir og græn svæði á Neskaupstað
Mál 2506161 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Kvenfélagsins Nönnu vegna leikvalla og grænna svæða á Norðfirði.
Bæjarráð vísar erindi til skipulags- og framkvæmdanefndar.
-
8. Ný heimasíða fyrir Fjarðabyggð 2023
Mál 2303098 Allur ferill málsins
Vinna við heimasíðu Fjarðabyggðar er langt komin og svo til allt efni komið inná vefinn. Framundan er svo að samræma útlit og uppsetningu á efni. Forritun og uppsetning á vefnum er sömuleiðis á lokametrunum.
Bæjarráð samþykkir tillögur sem koma fram í minnisblaði.
-
9. Franskir dagar 2025
Mál 2406077 Allur ferill málsins
Dagana 17. júlí - 20. júlí verða franskir dagar á Fáskrúðsfirði af því tilefni mun koma líkt og undanfarin ár frönsk sendinefnd frá Gravelines.
Bæjarráð felur forseta bæjarstjórnar að skipuleggja þátttöku kjörinna fulltrúa í heimsókninni.
-
10. Sinfó í sundi í tilefni af 75 ára afmæli Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Mál 2503010 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar erindi Sinfóníuhljómsveitar Íslands um beina útsendingu í sundlaugum landsins frá sjónvarpstónleikunum Klassíkinni okkar - Söngur lífsins! landsins 29. ágúst kl. 20:00.
Bæjarráð vísar erindi til sviðsstjóra fjölskyldusviðs.
-
11. Ársreikningur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2024
Mál 2506144 Allur ferill málsins
Ársreikningur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2024 lagður fram til kynningar.
-
12. Innviðaþing 28. ágúst
Mál 2506138 Allur ferill málsins
Framlagður til kynningar tölvupóstur innviðaráðuneytisins vegna innviðaþings sem haldið verður 28. ágúst nk.
-
13. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 36
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 23. júní lögð fram til staðfestingar.
Bæjarráð með fullnaðarumboði bæjarstjórnar samþykkir fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar.
- 13.1 Umsókn um styrk - Fráveita Eskifirði2503172
- 13.2 Einangrun og kynding í Fjarðabyggðarhöllina2403230
- 13.3 Umsókn um stöðuleyfi2506120
- 13.4 Afnot af lóð Hjallaleira 3 bráðarbirgða tjaldsvæði2506127
- 13.5 Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður2009034