Bæjarráð, fundur 902
7. júlí 2025, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 400 liður 7
Fundargerð bæjarráðs frá 7. júlí.
Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en
bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Dagskrá
-
1. Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2025
Mál 2409205 Allur ferill málsins
Fjallað um umsóknir um stofnframlög til íbúðabygginga.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að vinna umsóknir um stofnframlög til íbúðabygginga og skila inn umsóknum.
-
2. Beiðni um að vinna frumathugun
Mál 2505169 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar svar Ofanflóðasjóðs vegna frumathugunar á vörnum í Einarsstaðaá innri á Stöðvarfirði þar sem sjóðurinn samþykkir að vinna málið áfram.
-
3. Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
Mál 2009034 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar svar Ofanflóðasjóðs vegna viðbótar við keilur í Nes- og Bakkagiljum. Verkið bætist við núverandi framkvæmdir.
-
4. Þjónustugjald þjónustuíbúða í Neskaupstað endurskoðun
Mál 2505095 Allur ferill málsins
Lögð fram niðurstaða könnunar um notkun á öryggishnöppum meðal íbúa í Breiðabliki, þjónustuíbúðum eldri borgara.
Bæjarráð samþykkir að hætt verði þjónustu á vegum sveitarfélagsins með útvegun á öryggishnöppum í Breiðablik í ljósi niðurstöðu könnunar. Sviðsstjóra fjölskyldusviðs falið að kynna nýtt fyrirkomulag.
-
5. Samstarf í öldrunarmálum milli Fjarðabyggðar og Heilbrigðisstofnunar
Mál 2507019 Allur ferill málsins
Framlögð drög að viljayfirlýsingu vegna samstarfs um öldrunarmál í Fjarðabyggð til skoðunar.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að vinna áfram að viljayfirlýsingunni og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
-
6. Fyrirkomulag fasteigna vegna hjúkrunarheimila
Mál 2401200 Allur ferill málsins
Fjallað um frágang samkomulags um flutning húsnæðis hjúkrunarheimilanna frá Fjarðabyggð til Heilbrigðisstofnunar Austurlands.
Bæjarráð samþykkir að eignarhlutir sveitarfélagsins í hjúkrunarheimilum í Fjarðabyggð færist til ríkisins samkvæmt samkomulagi ríkisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga þar um. Breytingum vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025.
-
7. Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2022 - 2026
Mál 2205171 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga að breytingu á nefnaskipan Sjálfstæðisflokksins í skipulags- og framkvæmdanefnefn. Sigurjón Rúnarsson er tilnefndur sem varamaður í stað Barböru Kubelas.
Bæjarráð staðfestir skipun með vísun til umboðs sem bæjarstjórn hefur veitt til fullnaðarafgreiðslu.
-
8. Boð á vinnustofu -skráning lögheimilis í frístundabyggð
Mál 2507015 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um lögheimilisskráningar í frístundabyggð. Boðað er til vinnustofu 11. september nk.
Bæjarráð samþykkir að senda fulltrúa.
-
9. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2025
Mál 2502101 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga nr. 90 lögð fram til kynningar