Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 903

14. júlí 2025, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varamaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 400 liður 8

    Fundargerð bæjarráðs frá 14. júlí.

    Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en

    bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði 2025

    Mál 2507022 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur landeigenda Óseyrar í Stöðvarfirði sem óska eftir smölun lands síns.

    Bæjarráð samþykkir að fela skipulags- og framkvæmdasviði að meta aðstæður á vettvangi og upplýsa bæjarráð.

  2. 2. Úrgangsmál sveitarfélagsins

    Mál 2505110 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu og fyrirkomulag úrgangsmála.

  3. 3. Framlenging um eitt ár á samningi um skólamáltíðir

    Mál 2507034 Allur ferill málsins

    Lögð er fram tillaga að framlengingu á samningi um skólamáltíðir í grunnskólum Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð samþykkir að samningur um skólamáltíðir sé framlengdur um eitt ár.

  4. 4. Breiðdals-og Stöðvarfjarðarskóli útboð skólaakstur

    Mál 2505082 Allur ferill málsins

    Lagt fram tilboð í samræmi við verðfyrirspurn í skólaakstur nemenda milli Breiðdals og Stöðvarfjarðar skólaárið 2025 - 2026. Eitt tilboð barst og er lagt til að ganga til viðræðna við bjóðanda á grunni tilboðsins og verðfyrirspurnarinnar.

    Bæjarráð samþykkir að fela stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu að ganga til viðræðna við tilboðsgjafa og bæjarstjóra að undirrita samning um aksturinn.

  5. 5. Nesskóli útboð skólaakstur

    Mál 2505081 Allur ferill málsins

    Lögð fram niðurstaða verðfyrirspurnar vegna skólaakstur á milli Norðfjarðarsveitar og Nesskóla. Eitt tilboð barst.

    Bæjarráð samþykkir að fela stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu að ganga til viðræðna við tilboðsgjafa og bæjarstjóra að undirrita samning um aksturinn.

  6. 6. Samningur við Tröppu

    Mál 2505042 Allur ferill málsins

    Lagður fram viðauki við samning við Tröppu vegna frummats á börnum í leik- og grunnskólum Fjarðabyggðar sem þurfa inngrip talmeinafræðings.

    Bæjarráð samþykkir viðaukanna og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  7. 7. Yfirlýsing stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitafélaga

    Mál 2507029 Allur ferill málsins

    Yfirlýsing stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga lögð fram til kynningar.

    Bæjarráð Fjarðabyggðar harmar þá miklu hækkun veiðigjalda sem taka mun gildi um næstu áramót og lýsir yfir alvarlegum áhyggjum af áhrifum hennar á fjárfestingu, störf og tekjugrunn sveitarfélagsins. KPMG-greining fyrir Samtök sjávarútvegssveitarfélaga sýnir að hækkunin leggst sérstaklega þungt á fyrirtæki í Fjarðabyggð sem mun þannig skila sér í samdrætti í verðmætasköpun og útsvarstekjum. Bæjarráð tekur undir yfirlýsingu Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga um að gjaldtakan grafi undan byggðafestu og dragi úr fjárfestingum á svæðum sem reiða sig á sjávarútveg. Bæjarstjóra er falið að funda án tafar með helstu útgerðum og stoðgreinum í sveitarfélaginu, leggja mat á afleiðingar skattahækkunarinnar og skila samantekt sem nýtist við gerð næstu fjárhagsáætlunar.

  8. 8. Fundargerðir - samtaka svf á köldum svæðum 2025

    Mál 2501180 Allur ferill málsins

    Fundargerð 82. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum lögð fram til kynningar.

  9. 9. Fundargerð aðalfundar-Leigufélagsins Bríetar ehf.

    Mál 2506175 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar lögð fram til kynningar.

  10. 10. Skíðasvæði í Oddsskarði

    Mál 2507049 Allur ferill málsins

    Fulltrúar Vina Oddskarðs mættu til fundar og ræddu málefni svæðisins og kynntu félagið.