Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2025

Yfirlýsing stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitafélaga

Mál 2507029 Fyrst á dagskrá 14. júlí 2025, síðast 21. ágúst 2025. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Sjávarútvegur og fiskeldi

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2025

    Bæjarráð, fundur 903 liður 7

    Yfirlýsing stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga lögð fram til kynningar.

    Bæjarráð Fjarðabyggðar harmar þá miklu hækkun veiðigjalda sem taka mun gildi um næstu áramót og lýsir yfir alvarlegum áhyggjum af áhrifum hennar á fjárfestingu, störf og tekjugrunn sveitarfélagsins. KPMG-greining fyrir Samtök sjávarútvegssveitarfélaga sýnir að hækkunin leggst sérstaklega þungt á fyrirtæki í Fjarðabyggð sem mun þannig skila sér í samdrætti í verðmætasköpun og útsvarstekjum. Bæjarráð tekur undir yfirlýsingu Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga um að gjaldtakan grafi undan byggðafestu og dragi úr fjárfestingum á svæðum sem reiða sig á sjávarútveg. Bæjarstjóra er falið að funda án tafar með helstu útgerðum og stoðgreinum í sveitarfélaginu, leggja mat á afleiðingar skattahækkunarinnar og skila samantekt sem nýtist við gerð næstu fjárhagsáætlunar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 400 liður 8.7

    Fundargerðin „Bæjarráð - 903“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is