Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 904

21. júlí 2025, kl. 08:30 til 10:20, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 400 liður 9

    Fundargerð bæjarráðs frá 21. júlí.

    Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en

    bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Fyrirkomulag úrgangsmála

    Mál 2505110 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu og fyrirkomulag úrgangsmála.

    Bæjarráð samþykkir að úrgangsmál, hirðing og förgun, verði boðin út frá og með 1. janúar 2026 og felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að fylgja málinu eftir með Eflu verkfræðistofu og auglýsa útboðið.

  2. 2. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði 2025

    Mál 2507022 Allur ferill málsins

    Framlögð greinargerð um ágang fjár í landi Óseyrar á Stöðvarfirði.

    Bæjarráð samþykkir að send verði áskorun á fjáreigendur sem eiga fjárvon í Stöðvarfirði um að þeir sæki fé það sem er í Stöðvarfirði.

  3. 3. Leigusamningur um skammtímavistun og starfsmannarými í búsetukjarna Reyðarfirði

    Mál 2507065 Allur ferill málsins

    Framlagður leigusamningur um skammtímavistun og starfsmannarými í nýja íbúakjarnanum að Búðareyri 10 á Reyðarfirði.

    Bæjarráð samþykkir leigusamning og felur bæjarstjóra undirritun samnings.

  4. 4. Urðunarstaður Þernunesi - aflagður hluti svæðis Auratún

    Mál 2507074 Allur ferill málsins

    Framlögð ábyrgðaryfirlýsing sveitarstjórnar vegna urðunarstaðar í Þernunesi. Óskað hefur verið eftir formlegri staðfestingu á ábyrgð sveitarfélagsins á urðunarstaðnum en hún var staðfest upphaflega í desember 2006.

    Bæjarráð með umboði bæjarstjórnar staðfestir ábyrgðaryfirlýsingu vegna urðunarstaðarins að Þernunesi.

  5. 5. Óveruleg breyting á deiliskipulagi Strandgata 46c ESK

    Mál 2507004 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna stækkunar lóðar nr. 46c að Strandgötu á Eskifirði. Breytingin felur ekki í sér grenndaráhrif gagnvart nágrönnum.

    Bæjarráð með umboði bæjarstjórnar samþykktir tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Eskifjarðar.

  6. 6. Stækkun iðnaðarsvæðis og athafnasvæðis við Hjallaleiru

    Mál 2507013 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 og breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis Nes 1 á Reyðarfirði, sbr. 30. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breyting felur í sér stækkun lóða í eystri hluta skipulags og hnika til lóðarmörkum annarra lóða ásamt mön á austurjaðri svæðisins. Aðalskipulagsreitina AT-300 og I-300 er gert ráð fyrir að stækka um u.þ.b. 25 metra til austurs. Vegna áforma um breytta legu þjóðvegar fyrir botni Reyðarfjarðar er gert ráð fyrir breyttri vegtengingu svæðis við Ægisgötu.

    Bæjarráð með umboði bæjarstjórnar samþykkir skipulagslýsingu fyrir sitt leyti og vísar henni til áframhaldandi vinnu nefndarinnar.

  7. 7. Umsókn um lóð Hlíðarbrekka 5

    Mál 2505031 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdasviði til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina Hlíðarbrekku 5 á Fáskrúðsfirði.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar að Hlíðarbrekku 5 en felur bæjarstjóra að fara yfir hugsanlegar kvaðir áður en til úthlutunar kemur.

  8. 8. Umsókn um lóð Hlíðarbrekka 7

    Mál 2505032 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdasviði til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina Hlíðarbrekku 7 á Fáskrúðsfirði.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar að Hlíðarbrekku 7 en felur bæjarstjóra að fara yfir hugsanlegar kvaðir áður en til úthlutunar kemur.

  9. 9. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 37

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 16. júlí lögð fram til staðfestingar.

    Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar.

    1. 9.1 Stækkun iðnaðarsvæðis og athafnasvæðis við Hjallaleiru2507013
    2. 9.2 Óveruleg breyting á deiliskipulagi Strandgata 46c ESK2507004
    3. 9.3 Byggingarleyfi Flugskýli Norðfirði2506156
    4. 9.4 Byggingarleyfi viðbygging Mýrargata 212507028
    5. 9.5 Umsókn um lóð Hlíðarbrekka 52505031
    6. 9.6 Umsókn um lóð Hlíðarbrekka 72505032
    7. 9.7 Seley nýting æðavarps2507055
    8. 9.8 Æðavarp Hafranesi2507054
    9. 9.9 Stækkun á kirkjugarðinum á Eskifirði2507007
    10. 9.10 Leikvellir og græn svæði á Neskaupstað2506161
    11. 9.11 Búðarvegur jarðvinna og lagnir verðkönnun2506112
    12. 9.12 Strandgata jarðvinna og lagnir verðkönnun2507050
    13. 9.13 Vatnsveitumál í Mjóafirði2503205
    14. 9.14 Boð á Umhverfisþing2506167
    15. 9.15 Ársskýrsla HAUST 20242507023