Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 905

31. júlí 2025, kl. 08:30 til 09:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 400 liður 10

    Fundargerð bæjarráðs frá 31. júlí.

    Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en

    bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Stefna vegna ágangsfjár

    Mál 2507086 Allur ferill málsins

    Framlögð stefna Málflutningsstofu Snæfellsness fyrir hönd Hrefnu Dagbjartar Arnardóttur um meinta skaðabótaábyrgð vegna ágangs búfjár.

    Bæjarráð samþykkir að fela lögmanni að annast málið fyrir hönd sveitarfélagsins.

  2. 2. Skólaakstur Eskifjarðarskóli sund 2025

    Mál 2507041 Allur ferill málsins

    Lagt fram tilboð í akstur skólabarna milli Eskifjarðarskóla og Sundlaugar Eskifjarðar í sundkennslu skólaárið 2025 - 2026.

    Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við bjóðanda og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.

  3. 3. Skólaakstur Eskifjarðarskóli íþróttir 2025

    Mál 2507039 Allur ferill málsins

    Lagt fram tilboð í akstur nemenda milli Eskifjarðarskóla og Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar í íþróttakennslu skólaárið 2025 - 2026.

    Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við bjóðanda og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.

  4. 4. Akstur grunnskólanema í VA haustið 2025

    Mál 2507042 Allur ferill málsins

    Lagt fram tilboð í akstur nemenda í 9. og 10. bekk í Fjarðabyggð

    í VA á haustönn 2025 vegna valgreinakennslu.

    Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við bjóðanda og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.