Bæjarráð, fundur 906
11. ágúst 2025, kl. 08:30 til 12:55, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 400 liður 11
Fundargerð bæjarráðs frá 11. ágúst.
Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en
bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Dagskrá
-
1. Vatnsveita Stöðvarfjarðar
Mál 2508035 Allur ferill málsins
Fjallað um stöðu vatnsveitu á Stöðvarfirði og mengun í vatnsbólum.
Bæjarráð Fjarðabyggðar harmar að ekki hafi verið brugðist nægilega hratt og rétt við í upplýsingagjöf til íbúa Stöðvarfjarðar vegna mengunar í vatnsveitu. Engu að síður brást sveitarfélagið tafarlaust við þegar niðurstöður sýnatökunnar lágu fyrir og hóf aðgerðir en brotalöm varð á upplýsingagjöf til íbúa í byrjun.
Bæjarráð ítrekar að farið verði tafarlaust yfir verkferla í samvinnu við Heilbrigðiseftirlit Austurlands (HAUST) til að tryggja skýra og tímanlega upplýsingagjöf milli aðila í framtíðinni.
Bæjarstjóra er falið að ræða við HAUST um ástæður þess að niðurstöður úr sýnatöku lágu ekki fyrr fyrir en það hefði getið komið í veg fyrir óþægindi og möguleg veikindi fyrr.
Þá leggur bæjarráð á það þunga áherslu að tillögur til úrbóta við vatnsveitu Stöðvarfjarðar verði lagðar fyrir bæjarráð sem fyrst til að hægt sé að ráðast í þær og draga þannig úr líkum á mengun í vatni á Stöðvarfirði í framtíðinni.
-
2. Greinargerð um framkvæmdir ársins
Mál 2505164 Allur ferill málsins
Farið yfir verkefni sumarsins, starfsmenn skipulags- og framkvæmdasviðs fóru yfir stöðu helstu verkefna.
-
3. Samstarf í öldrunarmálum milli Fjarðabyggðar og Heilbrigðisstofnunar
Mál 2507019 Allur ferill málsins
Farið yfir framgang viðræðna við Heilbrigðisstofnun Austurlands um viljayfirlýsingu um samstarf í öldrunarmálum.
-
4. Úrgangsmál - gerð útboðsgagna
Mál 2505110 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu á fyrirhuguðu útboði.
-
5. Ágangsfé í landi Áreyja
Mál 2508012 Allur ferill málsins
Framlögð tvö erindi frá Svavari Valtýssyni þar sem óskað er eftir smölun búfjárs af landi hans í Áreyjum í Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir að fela skipulags- og framkvæmdasviði að kanna ágang sauðfjár sem lýst er í landi Áreyja og skili bæjarráði upplýsingum þar um.
-
6. Skýring málefna Golfklúbbs Eskifjarðar
Mál 2508026 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Jóns Baldurssonar vegna málefni Golfklúbbs Eskifjarðar.
Bæjarráð felur bæjarritara að fara yfir málið og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
-
7. Forkaupsréttur fasteigna
Mál 2508036 Allur ferill málsins
Farið yfir forkaupsréttarlista og uppfærslur á honum.
Bæjarráð felur skipulags- og framkvæmdanefnd að hefja vinnu við uppfærslu á forkaupsréttarlista sveitarfélagsins.
-
8. Sameiginlegur fundur sveitarfélaganna
Mál 2508037 Allur ferill málsins
Fjallað um sameiginlegan fund sveitarfélaganna Fljótsdalshrepps og Fjarðabyggðar sem haldinn verður 29. ágúst nk.
Bæjarstjórn ásamt bæjarstjóra munu sækja sveitarstjórn Fljótsdalshrepps heim.
-
9. Samráðsfundir með innviðaráðherra í landshlutum
Mál 2508038 Allur ferill málsins
Framlagt fundarboð innviðaráðherra þar sem boðað er til opins íbúafundar 26. ágúst nk. kl. 16:30 í öllum landshlutum til að eiga samráð um málaflokka ráðuneytisins. Tilgangur fundanna er að kalla eftir sjónarmiðum íbúa og sveitarstjórnarfólks um málaflokka ráðuneytisins - samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál og fjarskipti og stafræna innviði.
-
11. Hallormsstaðaskóli - boðsbréf 28. ágúst
Mál 2508040 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar boð á samkomu til að fagna komu Háskóla Íslands á Hallormsstað þann 28. ágúst kl. 13:00.
Bæjarstjórn mun taka þátt í samkomunni.