Bæjarráð, fundur 900
23. júní 2025, kl. 08:30 til 11:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 400 liður 5
Fundargerð bæjarráðs frá 23. júní.
Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en
bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2025
Mál 2506119 Allur ferill málsins
Lagt fram yfirlit fjármálastjóra um rekstur og fjárfestingar fyrir janúar til apríl auk yfirlits yfir launakostnað og skattekjur fyrir janúar - maí 2025.
-
2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2026
Mál 2504199 Allur ferill málsins
Farið yfir tillögur nefnda um breytingar á fjárhagsrömmum málaflokka fyrir árið 2026.
Bæjarráð vísar tillögunum til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2026 og frekari vinnslu fjármála- og greiningarsviðs.
-
3. Greinargerð um framkvæmdir ársins
Mál 2505164 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu framkvæmda og viðhalds Fjarðabyggðar í a- og b- hluta á árinu 2025 á móti fjárhagsáætlun ársins.
-
4. Fiskeldissjóður - umsóknir 2025
Mál 2502013 Allur ferill málsins
Framlagðir samngingar milli Fiskeldissjóðs og Fjarðabyggðar vegna styrkja til þriggja verkefna, hvert að fjárhæð 44.840.000 kr. eða alls 134.520.000 kr.
Bæjarráð samþykkir samningana og felur bæjarstjóra undirritun þeirra.
-
5. Verksamningur - þak á Fjarðabyggðarhöll
Mál 2506122 Allur ferill málsins
Framlögð drög að uppfærðum verksamningi við Jötunverk ehf. um einangrun Fjarðabyggðarhallarinnar ásamt umsögn eldvarnareftirlits vegna framkvæmdarinnar.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra frágang og undirritun hans. Jafnframt er fjármögnun framkvæmdarinnar vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025.
-
6. Tillaga um stuðning við hjálparstarf á Gasa
Mál 2506051 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar bæjarráðs breytingartillögu Fjarðalistans vegna mannúðaraðstoðar: "Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir að veita 2.000.000 kr. styrk til hjálparsamtakanna Vonarbrúar til stuðnings mannúðaraðstoðar við íbúa í Gaza, með sérstakri áherslu á velferð barna, og felur bæjarráði að gera viðeigandi ráðstafanir í fjárhagsáætlun til að tryggja fjármögnun styrksins."
Bæjarráð vísar á að utanríkisráðuneytið annast úthlutun styrkja á grundvelli faglegra og samræmdra viðmiða, sbr. verklagsreglur ráðuneytisins um stuðning við félagasamtök á sviði alþjóðlegrar mannúðaraðstoðar. Málið tekið fyrir að nýju þegar fyrir liggja niðurstöður í málinu.
-
7. Leikskóli Breiðdal
Mál 2505204 Allur ferill málsins
Fjölskyldusvið leggur til að fyrirhuguðum framkvæmdum á bókasafni og leikskóla í skólahúsnæði Breiðdals og Stöðvarfjarðarskóla á Breiðdalsvík verði frestað á þessu ári.
Bæjarráð vísar erindi til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2026 til útfærslu í framkvæmdaáætlun þess árs.
-
8. Þarfagreining vegna húsnæðisuppbyggingar fyrir 60
Mál 2406138 Allur ferill málsins
Öldungaráð leggur til breytingar á spurningalista vegna þarfagreiningar á húsnæðisuppbyggingu fyrir 60 ára og eldri.
Bæjarráð samþykkir að lögð verði könnun fyrir íbúa á grundvelli spurningarlistans og felur fjölskyldusviði umhald og úrvinnslu upplýsinganna.
-
9. Svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Austfirði
Mál 2506045 Allur ferill málsins
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið óskar eftir sameiginlegri tilnefningu Fjarðabyggðar og Múlaþings í svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Austfirði. Óskað er eftir tilnefningu þriggja aðalfulltrúa og þriggja varafulltrúa.
Bæjarráð samþykkir með vísan til fullnaðarumboðs sem bæjarstjórn hefur falið bæjarráði að fulltrúar Fjarðabyggðar verði áfram Þuríður Lillý Sigurðurdóttir og Jón Björn Hákonarson sem aðalmenn. Til vara eru Þórdís Mjöll Benediktsdóttir og Stefán Þór Eysteinsson.
-
10. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026
Mál 2205172 Allur ferill málsins
Stjórn menningarstofu leggur til breytingu á skipan stjórnar Sjóminjasafns Austurlands og leggur til að Jón Björn Hákonarson taki sæti Jens Garðar Helgasonar í stjórninni.
Bæjarráð samþykkir tilnefningu stjórnarinnar með vísan til fullnaðarumboðs sem bæjarstjórn hefur falið bæjarráði.
-
11. Samkomulag ríkis og sveitarfélag vegna vegna barna með fjölþættan vanda
Mál 2506126 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar bréf mennta- og barnamálaráðuneytis vegna samkomulags milli ríkisins og sveitarfélaga um ábyrgð á rekstri og kostnaði vegna búsetu barna með fjölþættan vanda sem vistuð eru utan heimilis. 1. janúar 2026 tekur ríkið ábyrgð á þriðja stigs þjónustu við börn með flóknar og fjölþættar þjónustuþarfir sem búsett eru utan heimilis. Á móti skuldbinda sveitarfélög sig til að tryggja að viðunandi úrræði séu í boði fyrir þennan hóp barna á fyrsta og öðru stigi þjónustu.
Vísað til fjölskyldunefndar.
-
12. Verksamningur sorphirðu - framlenging
Mál 2506125 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá Kubb ehf. þar sem óskað er framlengingar samnings um sorphirðu.
Bæjarráð samþykkir að samningur um sorphirðu verði ekki framlengdur að svo stöddu.
-
13. Ársfundur Brákar 11.júní 2025
Mál 2506003 Allur ferill málsins
Framlagður til kynningar ársreikningur Brákar íbúðafélags hses ásamt fundargerð ársfundarins.
-
14. Fundargerðir Austurbrúar og SSA 2025
Mál 2502102 Allur ferill málsins
Framlagðar til kynningar fundargerðir stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi frá 4. júní og stjórnar Austurbrúar frá sama degi.
-
15. Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 2025
Mál 2501007 Allur ferill málsins
Framlagðar til kynningar fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 19. og 25 . maí.
-
16. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Mál 2502038 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 13.júní og 16.júní.
-
17. Stjórn menningarstofu - 19
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 16. júní lögð fram til staðfestingar.
Bæjarráð staðfestir fundargerð með vísan til fullnaðarumboðs sem bæjarstjórn hefur falið bæjarráði.
- 17.1 Viðurkenning safna Fjarðabyggðar2503092
- 17.2 Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins2206071
- 17.3 Þjónustusamningur við Sjóminjasafn 2024-20262503175
- 17.4 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20262504199
- 17.5 Umsókn um styrk til Stöð í Stöð 20252503086