Bæjarráð, fundur 908
25. ágúst 2025, kl. 08:30 til 11:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 401 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs nr. 908 og 909 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Jóhanna Sigfúsdóttir vakti athygli á vanhæfi sínu varðandi lið 9 í fundargerð 908 og Þuríður Lillý Sigurðardóttir vakti athygli á vanhæfi sínu í lið 10 í sömu fundargerð. Voru þeir liðir því teknir fyrir sérstaklega.
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs nr. 908 og 909 utan liða 9 og 10 í fundargerð 908. eru staðfestar með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Greinargerð um framkvæmdir ársins
Mál 2505164 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu framkvæmda og viðhalds í málaflokkum sviðsins á árinu 2025.
-
2. Vatnsveita Stöðvarfjarðar
Mál 2508035 Allur ferill málsins
Farið yfir tillögur að úrbótum á vatnsveitu Stöðvarfjarðar.
Unnið er að þrýstiprófunum á vatnsveitunni og liggja þær fyrir í vikunni. Málið tekið fyrir að nýju á næsta bæjarráðsfundi.
-
3. Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf fyrir árið 2024
Mál 2508136 Allur ferill málsins
Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. fyrir árið 2024 lagður fram til undirritunar.
Bæjarráð staðfestir ársreikning með áritun sinni.
-
4. Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 2024
Mál 2508137 Allur ferill málsins
Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar fyrir árið 2024 lagður fram til undirritunar.
Bæjarráð staðfestir ársreikning með áritun sinni.
-
5. Áhrif kjarasamninga á launaáætlun 2025
Mál 2503121 Allur ferill málsins
Framlögð greinargerð um áhrif nýrra kjarasamninga á fjárhagsáætlun 2026 vegna launabreytinga.
Bæjarráð samþykkir að launabreytingum sé vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025.
-
6. Fjárhagsáætlun 2025 - viðauki 1
Mál 2508144 Allur ferill málsins
Framlagður viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2025. Viðaukinn innifelur breytingar vegna kjarasamninga.
Bæjarráð samþykkir viðaukann og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
7. Rekstur skíðasvæðisins í Oddsskarði
Mál 2508145 Allur ferill málsins
Fjallað um málefni skíðasvæðisins í Oddsskarði, rekstrarfyrirkomulag og starfsemi ásamt viðhaldsþörf svæðisins.
Bæjarráð samþykkir að taka málefnið fyrir að nýju á fundi bæjarráðs.
-
8. Málefni Skólavegar 98-112
Mál 2408047 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu framkvæmda og úrræði vegna tafa á því að byggingar verði teknar í notkun.
Unnið verður að málinu að það tekið fyrir að nýju.
-
9. Aðgengismál Lundargötu 4
Mál 2506137 Allur ferill málsins
Framlögð greinargerð frá lögmanni sveitarfélagsins vegna aðkomu að Lundargötu 4 á Reyðarfirði.
Bæjarráð getur ekki orðið við kröfum lóðarhafa Lundargötu 4.
-
10. Ágangsfé í landi Áreyja
Mál 2508012 Allur ferill málsins
Lögð fram greinargerð um ágang sauðfjár í landi Áreyja.
Bæjarráð samþykkir að send verði áskorun á fjáreigendur sem eiga fjárvon í landi Áreyja um að þeir sæki fé það sem þar er.
-
11. Reglur Fjarðabyggðar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra
Mál 2508022 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að reglum um stuðning við börn og fjölskyldur.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
12. Reglur Fjarðabyggðar um stoðþjónustu
Mál 2508048 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að reglum um stoðþjónustu.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
13. Reglur Fjarðabyggðar um notendasamninga
Mál 2508021 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að reglum um notendasamninga.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
14. Fjármálaráðstefna 2025
Mál 2508142 Allur ferill málsins
Fjallað um fjármálaráðstefnu og fulltrúa Fjarðabyggðar sem sækja hana.
Bæjarráð samþykkir að ráðstefnuna sæki Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Þuríður Lillý Sigurðardóttir ásamt bæjarstjóra og fjármálastjóra.
-
15. Tillaga um flokkun Hamarsvirkjunar í biðflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar
Mál 2508132 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga um flokkun Hamarsvirkjunar í biðflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar.
Bæjarráð Fjarðabyggðar leggur áherslu á, líkt og fyrr, að Hamarsvirkjun komi til framkvæmda sem fyrst. Virkjunin er mikilvæg forsenda fyrir áframhaldandi verðmætasköpun og uppbyggingu á Austurlandi, m.a. fyrir þróun græns orkugarðs á Reyðarfirði, auk orkuskipta í atvinnulífi.
Bæjarráð tekur undir fyrri umsagnir sveitarfélaga á Austurlandi og SSA um áðurnefnt mikilvægi Hamarsvirkjunar á þessum þáttum og myndi tilkoma hennar bæta stöðuna verulega.
Bæjarritara er falið að koma athugasemdum bæjarráðs á framfæri með formlegri umsögn í samráðsgátt stjórnvalda.
-
16. Tjaldsvæði Norðfjörður 2025 - hönnun og framkvæmdir
Mál 2506139 Allur ferill málsins
Framlögð og kynnt drög að hönnunarteikningum af nýju tjaldsvæði við Strandgötu 62 á Norðfirði á grundvelli gildandi deiliskipulags.
Bæjarráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti og felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að fylgja málinu eftir gagnvart hönnuðum og framkvæmdaaðilum.
-
17. Fjölskyldunefnd - 36
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 18. ágúst framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 17.1 Húsnæði Nesskóla 20252505069
- 17.2 Fundaáætlun fjölskyldunefndar haust 20252508082
- 17.3 Aðalfundur SUM 20252506174
- 17.4 Stofnun undirbúningshóp fyrir stofnun farsældarráðs á Austurlandi2507071
- 17.5 Beiðni um rekstrarstyrk til Þúfunnar áfangaheimili fyrir konur2507085
- 17.6 Reglur Fjarðabyggðar um stoðþjónustu2508048
- 17.7 Reglur Fjarðabyggðar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra2508022
- 17.8 Reglur Fjarðabyggðar um notendasamninga2508021
-
18. Stjórn menningarstofu - 20
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 18. ágúst framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 18.1 Verkefni menningarstofu 20252501084
- 18.2 Skjalasafn Fjarðabyggðar2409018
- 18.3 Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins2206071
- 18.4 Yfirferð og uppsetning fræðsluskilta2506083
- 18.5 Skipun stjórnar Tónlistarmiðstöðvar2001188
- 18.6 Bæjarhátíðir í Fjarðbyggð2508067
- 18.7 Kynningarfundur nýrrar gjaldskrá Þjóðskjalasafns2506012