Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu

Stjórn menningarstofu, fundur 21

8. september 2025, kl. 14:00 til 15:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
  • Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Árni Pétur Árnason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 911 liður 11

    Fundur stjórnar menningarstofu frá 8. september tekin til staðfestingar

  • Bæjarstjórn, fundur 402 liður 6

    Enginn tók til máls.

    Fundgerð stjórnar menningarstofu frá 8. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ný heimasíða fyrir Fjarðabyggð 2023

    Mál 2303098 Allur ferill málsins

    Upplýsingafulltrúi fór yfir drög að nýrri heimasíðu Fjarðabyggðar.

    Stjórn menningarstofu lýsir ánægju með nýja heimasíðu og þakkar upplýsingafulltrúa. Stefnt er að því að setja heimasíðuna formlega í loftið í lok september.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2026

    Mál 2508192 Allur ferill málsins

    Framlagðir rammar fjárhagsáætlunar fyrir menningarmál á árinu 2026.

    Stjórn felur bæjarritara að hefja vinnu við gerð áætlunarinnar fyrir árið 2026 og leggja fyrir stjórn drög að áætlun til staðfestingar.

  3. 3. Gjaldskrá safna 2026

    Mál 2508018 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um gjaldskrá safna 2026. Samræmingu verðlagningar og gjaldskráa.

    Stjórn samþykkir samræmingu á gjaldskrá safna í Fjarðabyggð og samræmingu á ársmiðum í söfnin. Stjórn tekur umfjöllun um gjaldskrá ársins 2027 á næsta fundi.

  4. 4. Samhæfing safna Fjarðabyggðar

    Mál 2505090 Allur ferill málsins

    Farið yfir upplýsingar sem Sara Blöndal hefur tekið saman um stöðu safna og forvörslu muna þeirra.

    Stjórn þakkar fyrir upplýsingarnar og vísar þeim til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð ársins 2026 og áherslur stjórnarinnar.

  5. 5. Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins

    Mál 2206071 Allur ferill málsins

    Kynnt staða vinnu við hönnun og skipulag endurgerð Íslenska stríðsárasafnsins.

  6. 6. Eftirlit safnaráðs með viðurkenndum söfnum

    Mál 2502162 Allur ferill málsins

    Fjallað um stöðu viðurkenningar Safnaráðs á Sjóminjasafni Austurlands.

    Stjórn leggur áherslu á að við vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2026 verði horft til þess markmiðs að söfn Fjarðabyggðar nái viðurkenningu Safnaráðs eftir forgangsröð sem stjórnin ákveður samhliða þeirri vinnu.

  7. 7. Skapandi sumarstörf 2024

    Mál 2409017 Allur ferill málsins

    Framlögð til umfjöllunar skýrsla um verkefni skapandi sumarstarfa sumarið 2025.

    Stjórn þakkar greinargóða skýrslu og árangursríkt starf á árinu.

    Stjórn felur starfsmönnum menningarstofu að hafa skýrsluna til hliðsjónar við skipulagningu starfsins á næsta ári.