Stjórn menningarstofu, fundur 22
22. september 2025, kl. 14:00 til 15:35, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
- Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Árni Pétur Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 913 liður 24
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 22. september lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 403 liður 9
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 22. september staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2026
Mál 2508192 Allur ferill málsins
Fjallað um áherslur í gerð fjárhagsáætlun 2026 og fjárhagsáætlunargerðina. Fjallað um á næstu fundum og bæjarritara og starfsmönnum falið að vinna áfram að áætlunargerðinni.
-
2. Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
Mál 2206071 Allur ferill málsins
Framlögð drög að samningum um sýningarhönnun og sýningarstjórnun fyrir Íslenska stríðsárasafnið.
Bæjarritara og verkefnastjóra falið að ræða við hlutaðeigandi og leggja fyrir stjórnina að nýju.
-
3. Bæjarhátíðir í Fjarðbyggð
Mál 2508067 Allur ferill málsins
Vísað til áframhaldandi umræðu í tengslum við fjárhagsáætlunargerð 2026 málefnum bæjarhátíða og 17. júní.
Stjórn samþykkir að óska eftir því að forsvarsmenn bæjarhátíða í Fjarðabyggð mæti til fundar með stjórninni 6. október nk.
-
4. Stuttmynd og sjónvarpsverkefni með tengingu við Austurland
Mál 2509135 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Ásdísar Söndru Ágústsdóttur og Ólafs Árheim vegna gerðar stuttmyndar, „Opus Americana“, sem fjallar um hernámið á Íslandi í seinni heimsstyrjöldinni. Áformað er að Íslenska stríðsárasafnið hafi hlutverk í myndinni. Óskað er eftir samstarfi við safnið.
Stjórnin tekur vel í erindið en óskar eftir frekari upplýsingum um það.
-
5. Umsókn um styrk til fornleifarannsókna í Stöðvarfirði 2025
Mál 2509068 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til stjórnar menningarstofu erindi frá Félagi áhugafólks um fornleifar um áframhaldandi styrk vegna fornleifauppgraftrar á Stöð í Stöðvarfirði.
Stjórn menningarstofu tekur vel í erindið og vísar því til gerðar fjárhagsáætlunar 2026