Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu

Stjórn menningarstofu, fundur 23

6. október 2025, kl. 14:00 til 15:55, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
  • Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Árni Pétur Árnason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 915 liður 14

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 6. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 404 liður 6

    Fundargerðir stjórnar menningarstofu teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 6. október staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins

    Mál 2206071 Allur ferill málsins

    Kynnt fyrir stjórn menningarstofu hönnun og aðaluppdrættir 1. áfanga endurbyggingar Íslenska stríðsárasafnsins á Reyðarfirði.

    Stjórn samþykkir allar forsendur í hönnun og lokaútfærslur og aðaluppdrættir verða teknir fyrir á næsta fundi stjórnar til afgreiðslu. Jafnframt samþykkir stjórnin að fela fasteigna- og framkvæmdafulltrúa að sækja um leyfi vegna framkvæmdanna og fá tilboð í verkþætti framkvæmdanna með sviðstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2026

    Mál 2508192 Allur ferill málsins

    Framlögð fyrstu drög fjárhagsáætlunar 2026. Jafnframt fjallað um samþykkt hafnarstjórnar um að Menningarstofu Fjarðabyggðar verði falið umhald þeirra styrkja sem hafnarstjórn hefur komið að hvað varðar menningarviðburði í heimabyggð í gegnum tíðina og fái til þess fjármagn frá hafnarsjóði árlega. Er stjórn Menningarstofu falið að útfæra þá styrki innan sinna úthlutunar til menningarmála en hafnarstjórn leggur áherslu á að þær hátíðir og viðburðir sem hún hefur styrkt njóti styrkja áfram.

    Stjórn felur formanni og bæjarritara að útfæra viðbótarfjármagn í fjárhagsáætlun ársins 2026.

    Jafnframt að vinna áfram að fjárhagsáætlunargerð og leggja fyrir stjórn á næsta fundi.

  3. 3. Umsókn um styrki til menningarmála hljómsveitin Rown

    Mál 2509147 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til stjórnar menningarstofu umsókn um styrki til menningarmála hljómsveitin Rown, Einari Erni fyrir hönd hljómsveitarinnar Rown Ósk til að halda Rown''s RockFest 29. nóvember nk.

    Bæjarritara falið að ræða við forsvarsmenn hátíðarinnar og leggja fyrir stjórn að nýju.

  4. 4. Heimsókn Big Band Ribe í okt 2026

    Mál 2510001 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar áform hljómsveitar frá vinabæ Fjarðabyggðar í Danmörku, Esbjerg.

  5. 5. Bæjarhátíðir í Fjarðbyggð

    Mál 2508067 Allur ferill málsins

    Stjórn fór yfir með fulltrúum bæjarhátíðanna Útsæðis á Eskifirði og Franskra daga á Fáskrúðsfirði framkvæmd og fyrirkomulag hátíðanna og samstarf sveitarfélagsins við þær.

    Fulltrúar Neistaflugs í Neskaupstað og Stöð í Stöð á Stöðvarfirði koma síðar til fundar við stjórn.