Bæjarráð, fundur 892
28. apríl 2025, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 396 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs nr. 891, 892 og 893, utan liðar 13 í fundargerð 892. eru teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 28. apríl, utan liðar 13, er staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Yfirlýsing vegna kaupréttar
Mál 2209031 Allur ferill málsins
Niðurstaða Héraðsdóms Austurlands í dómsmáli varðandi fasteignina að Hafnargötu 6 á Reyðarfirði frá 14. apríl 2025. Lögfræðingur sveitarfélagsins mætti á fundinn og fór yfir niðurstöðuna.
Málið tekið aftur fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
-
2. Skipulag úrgangsmála í Fjarðabyggð
Mál 2404177 Allur ferill málsins
Áframhald á umræðum frá síðasta fundi um úrgangsmál í Fjarðabyggð.
Sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs falið að vinna áfram að málinu og leggja fyrir bæjarráð að nýju á næsta fundi.
-
3. Viðtalstímar 2025
Mál 2504190 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga að viðtalstímum bæjarráðs og bæjarstjóra í maí 2025.
Viðtalstímar bæjarráðs og bæjarstjóra verða auglýstir á eftirtöldum dagsetningum:
Reyðarfjörður mánudagur 12. maí kl. 17:30-18:30
Fáskrúðsfjörður þriðjudagur 13. maí 17:00-18:00
Breiðdalsvík miðvikudagur 14. maí kl. 16:30-17:30
Stöðvarfjörður miðvikudagur 14. maí kl. 18:00-19:00
Mjóifjörður mánudagur 19. maí kl. 11:00-12:00
Norðfjörður þriðjudagur 20. maí kl. 16:30-17:30
Eskifjörður þriðjudagur 20. maí kl. 18:00-19:00
-
4. Styrkir til verkefna til að draga úr losun gróðhúsaloftegunda og notkun jarðefnaeldsneytis
Mál 2504189 Allur ferill málsins
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í loftslags- og orkusjóð vegna almennra verkefna sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsloftegunda, og notkun jarðefnaeldsneytis. Umsóknarfrestur er til 1. júní.
Málinu vísað til úrvinnslu á skipulags- og framkvæmdasviði og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
-
5. Umsókn um lóð Hjallaleira 5 og 7
Mál 2504117 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð Hjallaleira 5 og 7 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd hefur samþykkt úthlutun lóðarinnar fyrir sitt leyti með fyrirvara um óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Bæjarráð staðfestir úthlutun lóðarinnar
-
6. Sómastaðir 4 spennistöð
Mál 2504133 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð að Sómastöðum 4. Skipulags- og framkvæmdanefnd hefur samþykkt úthlutun lóðarinnar fyrir sitt leyti.
Bæjarráð staðfestir úthlutun lóðarinnar.
-
7. Til umsagnar 272. mál - Sveitarstjórnarlög (mat á fjárhagslegum áhrifum)
Mál 2504126 Allur ferill málsins
Óskað hefur verið eftir umsögnum um mál nr. 272 um sveitarstjórnarlög.
Umsagnaraðilar geta sent umsögn í gegnum umsagnagátt Alþingis.
-
8. Til umsagnar 271. mál - Stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu og byggðamála (stefnumörkun)
Mál 2504112 Allur ferill málsins
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur óskað eftir umsögnum um mál nr. 271: Stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu og byggðamála (stefnumörkun).
Umsagnaraðilar geta sent umsögn í gegnum umsagnagátt Alþingis og frestur til að senda inn umsögn er til og með 25. apríl nk.
-
9. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Mál 2502038 Allur ferill málsins
Fundargerð 976. fundar lögð fram til kynningar
-
10. Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 2025
Mál 2501007 Allur ferill málsins
Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 82 og 83 lagðar fram til kynningar
-
11. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2025
Mál 2502101 Allur ferill málsins
Fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga nr. 85,86, 87 og 88 lagðar fram til kynningar
-
12. Fundarboð Stapa þriðjudaginn 13.maí nk.
Mál 2504152 Allur ferill málsins
Framlagt fundarboð á ársfund lífeyrissjóðsins Stapa sem fram fer þriðjudaginn 13. maí.
-
13. Aðalfundur Breiðdalsseturs 2025
Mál 2504192 Allur ferill málsins
Framlagt fundarboð á aðalfund Breiðdalsseturs sem fram fer 10. maí nk. Einnig er óskað eftir því að Fjarðabyggð tilnefni fulltrúa í stjórn.
Bæjarstjóri sækir fundinn fyrir hönd Fjarðabyggðar og tekur sæti í stjórn.
-
14. Orkufundur 26.maí 2025
Mál 2504162 Allur ferill málsins
Framlagt fundarboð Orkufund sem haldinn er af Samtökum orkusveitarfélaga mánudaginn 26. maí.
-
15. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2026
Mál 2504199 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga að skipulagi við vinnu fjárhagsáætlunar 2026 ásamt dagsetningum í ferlinu.
Vísað til kynningar í nefndum sveitarfélagsins.
-
16. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 31
Fundargerð 31. fundar skipulags- og framkvæmdanefndar lögð fram til staðfestingar
- 16.1 Umsókn um lóð Hjallaleira 5 og 72504117
- 16.2 Byggingarleyfi Borg, Mjóafirði2503129
- 16.3 Deiliskipulag miðbæjar Reyðarfjarðar Búðargata 32411122
- 16.4 Framkvæmdaleyfi vegna stoðvirkja Norðfirði2504021
- 16.5 Framkvæmdaleyfi stúka við fótboltavöll Norðfirði2504083
- 16.6 Umsókn um að hafa klæddan gám á íbúðarhúsalóð2411016
- 16.7 Styrktarsjóður EBÍ 20252504042
- 16.8 Jarðhiti jafnar leikinn - Styrkir til nýtingar og leitar á jarðhita2503223
- 16.9 Sólvellir 10b - sala2503207
- 16.10 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20252502155
- 16.11 Umsókn um lóð fyrir flugskýli á Norðfirði2412155
- 16.12 Framkvæmdaleyfi fyrir hreinsivirki Breiðdalsvík2504128
- 16.13 Umsókn um óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar neskaupstaðar vegna stúku við knattspyrnuvöll2503208
- 16.14 Sómastaðir 4 spennistöð2504133
-
17. Fjölskyldunefnd - 31
Fundargerð 31. fundar fjölskyldunefndar lögð fram til staðfestingar.
- 17.1 Aðgerðaáætlun barnaverndar2504110
- 17.2 Geðverndar og virkni úrræði2504109
- 17.3 Móttaka og innritun barna í leikskóla2504113
- 17.4 Frístundakerfið Vala samningur og vinnslusamningur2502062
- 17.5 Frumkvæðisathugun á stoð- og stuðningsþjónustureglum sveitarfélaga - Skýrsla2502156